Fréttir
165 166 167 168 169 170 171 172 173 … 334 ›
Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Gistinætur á Íslandi í maí voru um fimmtán prósent færri en á sama mánuði í fyrra. Samdrátturinn í hótelgistingu var 7,1 prósent og var mestur á Austurlandi, eða um 24 prósent. Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóri fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir að bókunarstaðan sé undir væntingum, en ekki sé hægt að tala um hrun. Innlent 15.7.2024 14:43
Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fjölda annarra brota, á enga fjölskyldu hér á landi, hefur aldrei verið í vinnu og hefur þegið opinbert fé til framfærslu. Innan við ári eftir komu til landsins hlaut hann sinn fyrsta refsidóm af þónokkrum. Innlent 15.7.2024 14:14
Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Byrjað er að mála yfir veggmynd sem staðið hefur við gömlu verslun Guðsteins Eyjólfssonar í miðbæ Reykjavíkur í áratugi. Mynd af málara við störf hefur strokið íbúum í miðbænum öfugt, sem mótmæltu gjörningnum á Facebook. Verslunareigandi segir að verið sé að sinna viðhaldi, og myndin verði máluð á nýjan leik. Innlent 15.7.2024 13:58
Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Fjöldi einstaklinga og samtaka hefur lagt fram kæru á hendur Matvælastofnun – MAST – vegna útgáfu á rekstrarleyfi til fiskeldis í Óshlíð, Drangsvík og Eyjahlíð sem dagsett er 13. júlí til Arnarlax. Innlent 15.7.2024 13:50
Íslendingur fannst látinn á Spáni 48 ára Íslendingur fannst látinn á föstudag á Spáni. Þetta fæst staðfest af utanríkisráðuneyti en frekari upplýsingar af málinu, og hvers eðlis það er, fást ekki að svo stöddu. Innlent 15.7.2024 13:39
Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Fulltrúar Hamas og Fatah munu funda í Kína í næstu viku og freista þess að ná saman, sem margir segja forsendu þess að hægt verði að endurbyggja Gasa að átökum loknum. Erlent 15.7.2024 13:24
Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sýslumaður hefur farið þess á leit við fjársýslu ríkisins að greiðslur til Kirkju sjöunda dags aðventista á sóknargjöldum til félagsins verði felldar niður. Lögmaður KSDA telur engar heimildir fyrir því. Innlent 15.7.2024 13:01
Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Formaður Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglarnir, segir Vegagerðina vera að taka skref í rétta átt til að tryggja öryggi bifhjólafólks á vegum landsins þó að það mætti gerast hraðar. Hún segir að Sniglarnir muni ekki taka þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld og að það sé ekki stefna félagsins að krefjast breytinga með reiði. Innlent 15.7.2024 13:00
Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Donald Trump hefur enn ekki greint frá því hvern hann hyggst útnefna sem varaforseta efni sitt en hann er sagður hafa farið fram og til baka, líkt og árið 2016. Erlent 15.7.2024 12:12
Lík Jay Slater fundið Spænska lögreglan hefur staðfest að líkið sem fannst af manni á Tenerife fyrr í dag er af Jay Slater. Við fyrstu sýn virðist eins og um slys hafi verið að ræða. Erlent 15.7.2024 12:00
„Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir það hafa verið þung skref, að höfða mál gegn Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, vegna mikils tjóns sem skip stöðvarinnar olli á neysluvatnslögninni milli lands og Eyja síðasta haust. Innlent 15.7.2024 11:47
Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Kourani var ákærður fyrir að reyna að bana Mustafa Al Hamoodi, eiganda verslunarinnar, með hnífi í mars síðastliðnum, sem og fyrir önnur brot. Nánar verður fjallað um málið í hádegisfréttum. Innlent 15.7.2024 11:43
Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Karlmaður á sjötugsaldi hefur verið ákærður í tengslum við andlát eiginkonu hans að heimili þeirra að Kjarnagötu á Akureyri í apríl. Ákæran hefur ekki verið birt manninum og því getur Héraðssaksóknari ekki gefið upp fyrir hvað maðurinn er ákærður nákvæmlega. Innlent 15.7.2024 11:23
Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Innlent 15.7.2024 11:03
Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður. Innlent 15.7.2024 10:39
Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands, hefur sagt af sér en mun sitja áfram þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Kalls hefur verið útnefnd til að taka við sem næsti yfirmaður utanríkis- og öryggismála hjá Evrópusambandinu. Erlent 15.7.2024 10:28
Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru rúmar 9,2 milljónir króna að meðaltali árið 2023, eða um 770 þúsund krónur á mánuði. Það er rúm 10 prósent hækkun frá fyrra ári. Sé horft til verðlagsleiðréttingar er raunhækkunin um 1,3 prósent. Meðaltal heildarteknanna var hæst í Vestmannaeyjum, 13,9 milljónir, en lægst í Tjörneshreppi, 6,5 milljónir. Innlent 15.7.2024 10:19
Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Lögregluyfirvöld í Kenía hafa handtekið raðmorðingja sem er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti níu konur hvers líkamsleifar fundust í námu í höfuðborginni Naíróbí, þar sem sorp var losað. Erlent 15.7.2024 10:07
Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa miklar áhyggjur af tíðum bikblæðingum sem hafa verið í klæðningu á vegum landsins undanfarin ár. Haldinn var kynningarfundur á vegum Vegagerðarinnar 10. júlí þar sem meðal annars kom fram að ástæða tíðra blæðinga síðastliðinna ára sé vegna mikillar aukningar þungaflutninga og stærri bíla á vegum með klæðningu. Sniglar taka undir með Vegagerðinni og krefjast úrbóta með auknu fjárframlagi. Innlent 15.7.2024 09:03
Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon Viðstaddir stóðu á fætur og klöppuðu Katrínu lof í lófa þegar prinsessan mætti á úrslitaviðureign Carlos Alcaraz og Novak Djokovic á Wimbledon í gær. Erlent 15.7.2024 08:13
„Ég ætti að vera dauður“ „Ég á að vera dauður,“ sagði Donald Trump við New York Post í gær, þegar hann ræddi við miðilinn um banatilræðið sem hann lifði af. Hann sagði upplifunina hafa verið „afar súrrealíska.“ Erlent 15.7.2024 07:58
Rólegt sumarveður um allt land í dag Útlit er fyrir rólegt sumarveður í flestum landshlutum í dag, austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða bjartviðri. Hiti 13- 25 stig, hlýjast á Norðurlandi. Veður 15.7.2024 07:28
Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Sameinuðu þjóðirnar segja að það myndi taka hundrað flutningabifreiðar 15 ár að flytja á brott þau næstum 40 milljón tonn af húsarústum sem hafa orðið til í árásum Ísraelsmanna á Gasa. Erlent 15.7.2024 07:16
Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði bandarísku þjóðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi og hvatti til samstöðu gagnvart sundrung og reiði. Hann sagði of mikinn hita og reiði einkenna pólitíska orðræðu í landinu og hvatti menn til að „kæla hana niður“. Erlent 15.7.2024 06:49
Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rán og frelsissviptingu til rannsóknar en einn var handtekinn í gær í tengslum við málið. Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Innlent 15.7.2024 06:22
Ástand hinna særðu sagt stöðugt Tveir karlmenn, einn á sextugsaldri og annar á áttræðisaldri, voru fluttir á sjúkrahús alvarlega særðir eftir skotárásina á kosningafundi Donalds Trump í gær, þegar einn lést og árásarmaðurinn var skotinn til bana. Ástand mannanna tveggja er sagt stöðugt. Erlent 14.7.2024 23:53
Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Um sjötíu prósent landsmanna hafa spilað fjárhættuspil síðastliðna tólf mánuði. Ungir karlmenn veðja mun meira á erlendum veðmálasíðum en áður. Sérfræðingur í spilafíkn segir þá sem spila á netinu vera líklegri til að þróa með sér spilafíkn en aðrir. Innlent 14.7.2024 23:00
Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Formaður utanríkismálanefndar segir skautun í stjórnmálum áhyggjuefni hér á landi sem og í útlöndum. Blammeringar gagnvart íslenskum ráðamönnum fyrir að óska Donald Trump góðs bata í kjölfar skotárásarinnar í gær séu í anda skautunar og hana beri að varast. Erlent 14.7.2024 21:53
Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Maðurinn sem lést í skotárás á kosningafundi Donald Trump í Pennsylvaníuríki í gær var fimmtugur að aldri og starfaði sem slökkviliðsmaður. Þegar árásarmaðurinn hóf að skjóta í átt til fjölskyldu mannsins stökk hann í veg eiginkonu sína og dóttur til að hlífa þeim við skotunum. Erlent 14.7.2024 20:01
Stúlkan er fundin Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Innlent 14.7.2024 19:06