Ferðaþjónusta

Um hundrað þúsund ónýttar ferðagjafir renna út á þriðjudag
Nú fer hver að verða síðastur að nýta ferðagjöf sína sem gefin var út í fyrrasumar. Ferðagjöfin rennur út um mánaðamótin, á þriðjudaginn eftir fimm daga, og enn eiga um hundrað þúsund Íslendingar eftir að nota sína gjöf.

Nýtt lúxushótel með 35 ára reynslu „rétt hjá útlöndum“
Vísir mælir með Hótel Keflavík þar sem lúxusupplifun bíður gesta.

Áður í Eden
Mörg eigum við góðar minningar um ísbíltúr í Hveragerði. Gott stopp í Eden þar sem hægt var að skoða blómin í gróðurhúsinu, fá sér að snæða, njóta myndlistar og fá sér sæti með fjölskyldunni í básunum góðu.

Auglýsa aðstoð við styrkumsóknir í útvarpinu
„Á þitt fyrirtæki rétt á viðspyrnustyrk? Accountant.“ Svo hljóðar auglýsing sem glymur um ljósvakann um þessar mundir og ábyrgðaraðilinn er Accountant ehf.

„Bráðvantar starfsfólk í ferðaþjónustu“
Formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir bráðvanta starfsfólk í geirann. Ferðaþjónustan sé að taka fyrr við sér en gert var ráð fyrir. Þá þurfi að ráða þúsundir aftur inn fyrir haustið.

Geldingadalir gætu fyllst og hraunið leitað niður gönguleiðina
Óvíst er hvenær hraun nær Suðurstrandarvegi; sumir telja að það gæti orðið eftir vikur en aðrir mánuði. Kannað verður á næstu dögum hvort reisa eigi leiðigarða við gosið.

Ekki sama hvar eða hvenær fjölskyldan hyggst dýfa tánum í náttúrubað
Mikið hefur verið lagt í uppbyggingu ferðamannastaða hérlendis á síðustu árum og enn bætist í flóru baðstaða sem er ætlað að bjóða upp á eitthvað annað en hina hefðbundnu sundlaugaupplifun.

Þrettán sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30. apríl 2021.

Ekki í lagi að ferðaglaðir Íslendingar séu að græta erlent starfsfólk
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu, segir að reynsla erlends starfsfólks í ferðaþjónustu í samskiptum við íslenska viðskiptavini hafi verið bitur í mörgum tilvikum síðasta sumar.

Adolf Ingi leiðir fyrsta hóp erlendra ferðamanna um landið
Ferðaþjónustan er komin í fyrsta gír. Adolf Ingi Erlingsson fararstjóri með meiru er nú á ferðalagi með hóp Bandaríkjamanna, hringinn í kringum landið.

Sannleikurinn um íslenska ferðamenn sem enginn þori að segja upphátt
Egill Páll Egilsson, Húsvíkingur og blaðamaður á Vikublaðinu, telur starfsfólk í ferðamennsku margt hvert óttast annað íslenskt ferðasumar. Stór hluti Íslendinga gleymi nefnilega öllum mannasiðum um leið og það setur niður í ferðatösku.

Hætta ekki að skima bólusetta ferðamenn eða þá með mótefni á næstu vikum
Ekki stendur til að hætta á næstunni að skima ferðamenn á landamærum sem eru bólusettir eða eru með mótefni. Enn sé verið að greina bólusetta einstaklinga á landamærunum með veiruna.

Opna kaffihús og boða mikla uppbyggingu í Reykjadal
Nýtt kaffihús opnaði um liðna helgi við minni Reykjadals í Hveragerði og hefur vakið þónokkra athygli. Mikil uppbygging hefur farið fram í Reykjadal að undanförnu. Göngustígar þangað hafa verið lagfærðir og búið er að malbika vegin alveg að gönguleiðinni, og sömuleiðis malbika bílastæði sem áður voru malarlögð.

Telur skynsamlegast að hraðprófa bólusetta ferðamenn eða hætta að skima þá
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar telur að vænlegast væri að bólusettir ferðamenn verði hraðprófaðir fyrir kórónuveirunni á landamærum, eða þeir gerðir undanþegnir skimunum, að því gefnu að gögn sýni að þeir greinist almennt ekki jákvæðir við komu til landsins.

Bein útsending: Meintur klíkuskapur og kynferðisbrot á Sprengisandi
Staða þolenda í dómskerfinu, nýtt fyrirbrigði í hagfræðinni, meintur klíkuskapur á æðsta dómstigi og stefna í ferðamennsku til framtíðar verður á dagskrá Sprengisands á Bylgjunni í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti.

Til greina kemur að setja kvóta á rástímana
Ásókn í að komast að á golfvelli á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri og bitist er um rástímana. Sekúndum eftir að opnað hefur verið fyrir skráningu eru allir tímar bókaðir; ýmsum til mikillar mæðu.

Farþegar frá enn fleiri löndum fara í sóttvarnahús
Farþegum frá alls 164 ríkjum eða svæðum verður gert að dvelja í sóttvarnahúsi við komuna til Íslands með möguleika á undanþágu frá og með 18. maí. Áður var 131 ríki eða landsvæði á listanum en krafan nær til svæða þar sem nýgengi smita er 500 til 699 og hlutfall jákvæðra sýna er undir fimm prósent.

Jökullinn skartar sínu fegursta
Spennandi ferðir um Langjökul eru í boði hjá Mountaineers of Iceland.

Minnisblað væntanlegt: Mun meiri áhugi á landinu nú en við gerðum ráð fyrir
Sóttvarnarlæknir segir að mun fleiri komi nú til landsins en gert hafi verið ráð fyrir. Hann skilar heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir á landamærum á næstunni. Best væri ef hægt væri að taka á móti öllum án þess að slaka á sóttvarnarkröfum.

Innlit í baðlónið á Kársnesinu og skrefin sjö sem gestirnir fara í gegnum
Baðlónið Sky Lagoon opnaði í síðasta mánuði úti á Kársnesi í Kópavogi og hefur nánast verið uppselt í lónið síðan þá.

Versta brekkan orðin breiður göngustígur
Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi.

Ferðaþjónustan leggur línurnar fyrir kosningarnar
Samtök ferðaþjónustunnar hafa sett fram aðgerðir til að hraða viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Er það innlegg samtakanna fyrir komandi kosningabaráttu en framkvæmdastjórinn segir að fylgst verði með því hvernig flokkarnir taki tillögurnar.

Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum
Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag.

Sex sinnum fleiri brottfarir erlendra farþega í apríl
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 5.800 í aprílmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Eru það sex sinnum fleiri brottfarir en í apríl 2020, þegar brottfarir voru tæplega eitt þúsund.

Töldu sig mega koma því Spánn var grænn þegar þau keyptu farmiða
Tíu ferðamenn sem komu til landsins frá Spáni í gær var snúið til baka í morgun. Fólkið var ósátt við að mega ekki dvelja hér og sagðist hafa keypt farmiða þegar Spánn var grænt land. Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir það ekki skipta máli heldur hvort land sé skilgreint hættusvæði þegar fólk kemur til landsins.

Tíu í haldi á Keflavíkurflugvelli
Tíu manns, sem komu með flugi frá Spáni í gær, eru í haldi á Keflavíkurflugvelli þar sem þeir uppfylla ekki skilyrði þess að koma til landsins.

Afgreiðsluhraðinn tvöfaldaður til að takast á við metfjölda komufarþega
Metfjöldi er í komu farþegaflugvéla til landsins, frá því að faraldurinn hófst, í dag og á morgun. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli breytti verklagi fyrir helgi til að takast á við fjölda komufarþega og var afgreiðsluhraðinn tvöfaldaður.

Methelgi í komu ferðamanna og hraðpróf til skoðunar
Búist er við methelgi í komu farþegaflugvéla um helgina og gætu ferðamenn þurft að bíða klukkustundunum saman á meðan landamæraverðir fara yfir vottorð þeirra allra. Heilbrigðisráðherra segir svokölluð hraðpróf vera til skoðunar til að flýta fyrir ferlinu.

Gosfólkið hámar í sig pylsurnar í stórum stíl
Slysavarnadeildin Þórkatla hefur komið upp sölugámi, sem kallast Ellubúð, við göngustíginn, sem liggur að gosstöðvunum við Fagradalsfjall og hefur algerlega slegið í gegn.

Aðgengið bætt að gosstöðvunum með nýjum stíg
Þeir sem lögðu leið sína á gosstöðvarnar í gærkvöldi voru þeir fyrstu sem fengu að ganga nýlagðan stíg á A-leiðinni svokölluðu sem auðveldar aðgengið til muna.