Eldgos og jarðhræringar
116 117 118 119 120 121 122 123 124 … 132 ›
Strandaglópar á Keflavíkurflugvelli Fleiri hundruð manns eru nú strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. Reykjavíkurflugvelli var lokað um leið. Innlent 14.5.2010 07:15
Yfirgáfu heimili sín - mikið öskufall undir Eyjafjöllum Mikið öskufall var undir Eyjafjöllum í gærkvöldi og fram á nótt. Skyggni fór allt niður í tvo metra þegar verst var, og yfirgáfu nokkrar fjölskyldur heimili sín og gistu annarsstaðar. Undir morgun færðist öskufallið yfir Fljótshlíðina og þar er nú meira öskufall en orðið hefur frá upphafi gossins. Gosmökkurinn nær líka hærra upp en undanfarna daga, eða í rúmlega 30 þúsund feta hæð, sem er u.þ.b. níu kílómetrar. Aska fellur á Hvolsvelli þessa stundina og allt vestur fyrir Hellu, samkvæmt vegfaranda í morgun. Innlent 14.5.2010 07:05
Sjúkraflug í öskufalli bíður vottunar Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur í tvígang kallað til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja sjúklinga til lands, fremur en að kalla til Mýflug, sem í síðustu viku tók við sjúkraflutningum þaðan af Flugfélagi Vestmannaeyja. Innlent 13.5.2010 22:24
Eyjafjallajökull: Gríðarlegt öskufall undir jökli Mjög mikið öskufall er nú undir Eyjafjöllum. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að um klukkan átta hafi nánast verið kolniðamyrkur frá Holtsá og austur fyrir Skóga. Lögreglumenn sem voru á ferð á svæðinu sögðu að skyggni hefði aðeins verið um tveir metrar þegar verst lét. Að sögn lögreglu jafnast öskufallið næstum á við það eins og það var mest á fyrstu dögum gossins og hefur það ekki verið jafn mikið í langan tíma. Innlent 13.5.2010 21:11
Eyjafjallajökull: Gosmökkurinn heldur hærri í dag en undanfarið Gosvirknin í Eyjafjallajökli virðist nokkuð stöðug núna en mökkurinn er þó nokkuð hærri í dag en í gær. Í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni segir að ekkert bendi til þess að gosinu sé að ljúka. Óróinn er nokkuð stöðugur og hefur verið svipaður síðustu sólarhringa og um klukkan fjögur í dag mældust fjórir skjálftar undir jöklinum. Skjálftarnir voru allir grunnir. Innlent 13.5.2010 17:52
Eyjafjallajökull: Breytingar á áætlun Icelandair Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugáætlun sinni í ljósi þess veðurspá gefur til kynna að Keflavíkurflugvöllur gæti lokast hluta morgundagsins vegna gossins í Eyjafjallajökli. Innlent 13.5.2010 14:33
Hafa ekki keypt notaða bíla vegna eldgossins Bílaleigur hafa lítið sem ekkert keypt af notuðum bílum í vor eins og vonir stóðu til eftir að lög voru samþykkt sem heimiluðu þeim að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Ástæðan er samdráttur í bókunum sem rakin er til eldgossins í Eyjafjallajökli. Innlent 12.5.2010 12:52
Heybanki stofnaður fyrir bændur Öskufall í Skaftártungum suðaustur af Eyjafjallajökli var hið mesta í nótt frá upphafi gossins í Eyjafjallajökli. Heybanki verður stofnaður til að tryggja bændum á öskufallssvæðunum fóður fyrir skepnur þeirra í vetur. Innlent 12.5.2010 11:49
Heimsækja bæi á öskufallssvæðinu Skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli upp úr klukkan sex í morgun en skjálftarnir voru allir vægir, eða innan við tvo á Richter. Gosið hélt ámóta styrk í nótt og var í gærdag en vindur er hægur á slóðum gossins þannig að öskufall er mest í næsta nágrenni eldstöðvarinnar. Innlent 11.5.2010 10:37
Aska lokar flugvöllum á Spáni Sjö flugvöllum hefur verið lokað á Spáni í morgun vegna ösku sem borist hefur úr Eyjafjallajökli til Vestur-Evrópu. Um er að ræða þrjá flugvelli í suðurhluta meginlandsins og fjóra á Kanarí. Því er ljóst að eldgosið á Eyjafjallajökli mun áfram hafa áhrif á ferðalög þúsundir manna. Um nýliðna helgi þurfti að loka 19 flugvöllum á Spáni líkt og víða annars staðar í Evrópu. Erlent 11.5.2010 08:53
Eyjafjallajökull ógnar Kvikmyndahátíðinni í Cannes Öskufallið frá Eyjafjallajökli gæti haft áhrif á Kvikmyndahátíðina í Cannes, sem gert er ráð fyrir að hefjist á miðvikudaginn. Um 20 flugferðum til flugvallarins í Nice, sem er næstur Cannes, var aflýst í gær og fleiri flugferðum var frestað. Erlent 10.5.2010 21:34
Skjálftahrina undir Eyjafjallajökli skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli um klukkan ellefu í morgun, en virðist vera að hjaðna á ný. Nokkrir skjálftar mældust rúmlega tveir á Richter. Innlent 10.5.2010 11:55
Eyjafjallajökull: Flugfarþegum fækkaði um 23% í Bretlandi Félagið BAA, sem rekur tvo af stærstu flugvöllum Bretlands, Heathrow og Stansted, segir að flugfarþegum um þessa velli hefði fækkað um tæp 23% í apríl miðað við sama mánuði í fyrra. Ástæðan er askan frá gosinu í Eyjafjallajökli. Viðskipti erlent 10.5.2010 10:35
Eldgosið í Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á ferð undir Eyjafjöllum um helgina og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Í safninu má meðal annars smá sjá myndir af dýrum, mönnum, bílum og Eyjafjallajökli. Innlent 10.5.2010 10:29
Flogið frá Keflavík og Reykjavík Keflavíkurflugvöllur verður opnaður eftir rúma klukkustund og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll hefst um og upp úr klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í háloftunum. Fjöldi flugfarþega er á leið til Akureyrar og þangað eru einhverjar vélar komnar eða a leiðinni þangað. Ekki liggur fyrir hvort þeim verði snúið til Keflavíkur. Innlent 10.5.2010 08:56
Reiknað með töluverðri umferð um Akureyri Millilandaflugvélar komu og fóru frá Akureyrarflugvelli fram á nótt, en hlé varð undir morgun. Umferðin er aftur að fara í fullan gang og er reiknað með töluverðri umferð um völlinn í dag. Verulegt álag hefur verið á starfsliði vallarins og aukaliði frá Reykjavík og Keflavík, en engin alvarleg vandamál hafa komið upp, að sögn starfsmanna í morgun. Nánari upplýsingar um flugið er á heimasíðum flugfélaganna. Innlent 10.5.2010 08:19
Áfram flogið um Akureyri Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er. Þá urðu talsverðar seinkanir þar sem fljúga þurfti lengri leiðir til að forðast öskuský. Innlent 9.5.2010 22:40
Eyjafjallajökull: Öllu flugi aflýst í Keflavík - Lokanir í Evrópu Öllum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Þá er truflun á öllu innanlandsflugi og er athugun klukkan 11:15. Nokkrar vélar fóru af stað frá Keflavíkurflugvelli í morgun en nú hefur brottför fimm véla í dag og komu níu véla síðdegis og í kvöld verið aflýst. Innlent 8.5.2010 09:51
Keflavíkurflugvöllur lokast á morgun Loftrými umhverfis Keflavíkurflugvöll fyrir blindflugsumferð lokast eftir hádegi á morgun. Spár gera ráð fyrir að öskuský vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verð komið að vesturströnd Íslands um hádegi á morgun. Iceland Express hefur ákveðið að flýta flugi sem átti að fara síðdegis á morgun til Alicante. Fyrr í dag aflýsti Icelandair tveimur flugferðum sem fara átti á morgun. Innlent 7.5.2010 19:30
Ekkert bendir til að gosinu sé að ljúka Töluverðar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli á síðustu dögum. Hraunrennsli hefur minnkað verulega og sprengivirkni aukist til muna. Svartur gosmökkur steig upp beint frá gosstöðvunum í gær. Innlent 6.5.2010 23:11
Minna rennsli frá Gígjökli Sérfræðingar telja að Eyjafjallajökull muni halda áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga. Órói í dag var svipaður og í gærdag. Innlent 5.5.2010 19:34
Eyjafjallajökull: Nýtt kvikuskot í jöklinum Eyjafjallajökull heldur áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga að því er sérfræðingar segja en ný kvika virðist vera að þrýsta sér upp neðst í kvikurásinni. Á heimasíðu Veðurstofunnar er bent á að aukin jarðskálftavirkni hafi verið undir jöklinum frá því á mánudag. Nákvæm staðsetning skjálftanna sýnir að þeir fyrstu verða djúpt í jörðu, á um 23 km dýpi, en færast síðan upp. Innlent 5.5.2010 13:02
Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast víða um land Veðurskyrðin sem verið hafa á landinu undanfarna daga og rakinn í loftinu virðast hafa gert það að verkum að drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa borist mun víðar en áður. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að fólk hafi haft samband frá Vesturlandi, Suðurlandi og frá Mýrum og sagt frá drununum. Innlent 5.5.2010 11:26
Eyjafjallajökull: Ferðamönnum fækkaði um tæp 17% í apríl Erlendir ferðamenn voru 16,9% færri nú í apríl en í apríl á síðasta ári. Þannig fóru rúmlega 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í mánuðinum samanborið við tæp 28 þúsund á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 5.5.2010 10:21
Eyjafjallajökull: Enn sprengivirkni í gosinu Litlar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli frá því í gær, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Veðurstofu Íslands í morgun. Gosmökkurinn sást vel í gær en hann var töluvert dekkri en áður. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var greint frá því að ástæðuna mætti rekja til aukinnar sprengivirkni í gosinu. Búast mætti við töluverðu öskufalli næstu daga. Innlent 5.5.2010 08:50
Eyjafjallajökull: Flugvellir á Írlandi og Skotlandi áfram lokaðir vegna eldgossins Flugvellir á Írlandi og í Skotlandi eru lokaðir áfram í dag vegna öskunnar frá gosinu í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frétt um málið á BBC er líklegt að Erlent 5.5.2010 07:12
Landgræðslustjóri ræðir við heimamenn Sérfræðingar miðla upplýsingum til íbúa á áhrifasvæði Eyjafjallajökuls þessa dagana. Fundirnir með sérfræðingum fara fram í hádeginu í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi. Innlent 4.5.2010 22:10
Hætta á gusthlaupum niður Gígjökul Almannavarnir vöruðu í dag við hættu á lífshættulegum gusthlaupum sem gætu farið hratt niður með Gígjökli og náð niður á Markarfljótsaura. Slík eiturský geta orðið 300 stiga heit og drepa allt kvikt sem í vegi þeirra verða. Innlent 4.5.2010 19:05
Eldgosið ógnar heilli atvinnugrein Eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar heilli atvinnugrein. Þetta kom fram í ræðu iðnaðar- og ferðamálaráðherra, á Ferðamálaþingi í dag en þar var kynnt stærsta kynningarátak fyrir ferðaþjónustuna sem ráðist hefur verið í sögu þjóðarinnar. Innlent 4.5.2010 18:57
Átökin í Gígjökli - myndir Mikil átök hafa verið við Gígjökul síðastliðinn sólarhring, eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. Glóandi hrauneðjan er við það að steypast undir snarbrattan skriðjökul. Ís og eldur takast á með feiknarlegum fljóðbylgjum. Egill Aðalsteinsson, kvikmyndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, kynnti sér aðstæður í dag og tók þær myndir sem fylgja þessari frétt. Innlent 3.5.2010 21:16