Kosningar 2010

Akureyri: L-listinn fær sex menn
Fyrstu tölur á Akureyri benda til þess að L-listinn fái hreinann meirihluta í bæjarstjórn og sex menn kjörna. Búið er að telja um 7000 atkvæði og aðrir flokkar í framboði, Bæjarlistinn, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG, skipta á milli sín atkvæðunum og ná einum manni inn hver.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar úti í kuldanum
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar nær ekki inn samkvæmt nýjustu tölum í Hafnarfirði en þegar hafa 6800 verið talin.

Fyrstu tölur í RVK: Besti flokkurinn með sex menn
Fyrstu tölur eru komnar í hús í Reykjavík og Besti flokkurinn hefur fengið 8000 atkvæði og sex menn kjörna miðað við þetta. Sjálfstæðisflokkurinn nær inn fimm mönnum og Samfylkingin fær fjóra. Aðrir flokkar ná ekki inn manni.

Sjálfstæðisflokkurinn fær flest atkvæði í Kópavogi
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Kópavogi en þeir fengu 3617 atkvæði en búiið er að telja 11964 atkvæði. Þá fékk Samfylkingin 3370 atkvæði. Þá fékk VG 1129 atkvæði. Næst besti flokkurinn hlaut 1687 atkvæði. Listi Kópavogs hlaut 1233 atkvæði. Frjálslyndi flokkurinn fékk 87 atkvæði.

Lögreglan innsiglar talningarmenn - fyrstu tölur upp úr tíu
Lögreglan hefur innsiglað talningamenn um allt land. Þessi mynd var tekin í Ráðhúsinu í Reykjavík.

Betri kjörsókn í Reykjavík en fyrir fjórum árum síðan
Alls hafa 55.366 borgarbúar greitt atkvæði klukkan níu í kvöld en það gera 64,54 prósent.

Úrslit í Skorradalshreppi
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Skorradalshreppi eru ljós. Alls greiddu 22 atkvæði eða 52,30 prósent. Á kjörskrá eru 42.

Eurovision ekki haft mikil áhrif á kosningarnar
Alls höfði 53936 þúsund borgarbúar greitt atkvæði klukkan átta í Reykjavík. Það gera 62,88 prósent en í síðustu sveitarstjórnarkosningunum höfðu 60,84 prósent kosið á sama tíma. Tæplega 86 þúsund manns eru á kjörskrá.

Framsókn dregur kæru til baka vegna auglýsingaspjalla
Vegna umræðu um skemmdir á auglýsingaskiltum Framsóknarflokksins í Kópavogi hefur stjórn fulltrúaráðsins sent eftirfarandi yfirlýsingu frá sér:

Gunnar Helgi: Kosningarnar verða sögulegar
Prófessor í stjórnmálafræði segir að gömu flokkarnir geti ekki látið eins og ekkert hafi í skorist fái Besti flokkurinn fylgi í samræmi við kannanir.

ívið betri kosningaþátttaka en árið 2006
Alls hafa 45112 kosið í Reykjavík eða 52,59 prósent klukkan sex í dag. Það er um það bil tveimur prósentum meira en kusu í sveitarstjórnarkosningunum árið 2006. Þá voru 50,87 prósent búnir að kjósa eða 43551. Tæplega 86 þúsund eru á kjörskrá í Reykjavík.

Baldvin Jónsson: Höfum ekki hugmynd um það hvað gerist
„Við höfum fundið fyrir gríðarlegum meðbyr eftir Kastljósið í gær en við höfum ekki hugmynd hvað gerist,“ segir Baldvin Jónsson, oddviti Reykjavíkurframboðsins, en hann segir daginn í dag vera þann fyrsta þar sem frambjóðendurnir framboðsins eru ekki á hlaupum út um allan bæ.

Ólafur F. Magnússon býst við öllu í kvöld
„Við erum búin með okkar vinnu, við erum ekki að smala heldur sitjum við hérna í garðinum mínum og þéttum raðirnar,“ segir Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi H-listans en hann tekur kosningadaginn rólega og segist ekki smala mikið síðustu stundirnar.

Kjörsókn eykst í Reykjavík
Kjörsókn hefur aukist nokkuð í Reykjavík en alls hafa 31827 borgarbúar kosið. Það gera 37,1 prósent. Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar höfðu 32725 þúsund kosið á sama tíma. Kjörsókn hefur því aukist nokkuð í Reykjavík frá því klukkan tvö í dag.

Sambærileg kosningaþátttaka á Ísafirði og Suðurnesjum
Alls höfðu 3227 kjósendur greitt atkvæði klukkan fjögur í dag á Suðurnesjum. Það gera 34,48 prósent. Það er tæpu prósentustigi minna en á sama tíma fyrir fjórum.

Ívið minni kjörsókn á Selfossi - Eyrarbakki sker sig þó úr
Alls höfðu 40,6 prósent íbúa í Árborg greitt atkvæði klukkan fjögur í dag. Það gera 2217 einstaklingar en alls eru 5450 á kjörskrá í Árborg. Fyrir fjórum árum síðan, eða í síðustu sveitarstjórnarkosningum, höfðu 43,6 prósent kosið á sama tíma.

Framúrskarandi kosningaþátttaka á Akureyri
Kjörsókn á Akureyri hefur verið framúrskarandi góð að sögn formanns kjörstjórnar, Helga Teits Helgasonar, en alls hafa 4452 kosið í bænum. Það gera 34,8 prósent. Í síðustu sveitarstjórnarkosningunum árið 2006 höfðu 32,3 prósent kosið á sama tíma.

Kjörsókn í Reykjavík tveimur prósentum minni en árið 2006
Alls hafa 19266 kosið í Reykjavík klukkan 14:00 í dag en það gera 22,46 prósent. Það er tæpum tveimur prósentustigum minna en fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2006 en þá höfðu 20745 manns kosið eða 24,23 prósent færri.

The Wire og Ray Ban geta leitt til meirihlutasamstarfs
Ekki er útlit fyrir annað en að tveir eða fleiri flokkar myndi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur að kosningum loknum.

Kjörsókn minni en í síðustu sveitarstjórnarkosningum
Kjörsókn klukkan ellefu í morgun í Reykjavík var 5,71 prósent en þá höfðu um 4900 manns kosið. Þetta er prósentustigi minna en árið 2006 en þá höfðu um 5800 kosið á sama tíma eða 6,78 prósent.

Kjörstjórn hvetur fólk til þess að ganga á kjörstað
Kjörstjórnin í Laugardalnum hvetur kjósendur, sem koma því við, að koma ekki á bílum heldur fótgandi eða á hjólum. Ástæðan er sú að það er gríðarlega mikið um að vera í Laugardalnum auk kosninganna.

Gleymdi skilríkjunum en fékk samt að kjósa
„Ég fór í sparifötin og gleymdi þess vegna veskinu upp á kosningaskrifstofunni,“ sagði Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, í viðtali á Bylgjunni en hann átti ekki að fá að kjósa í ljósi þess að hann hafði engin persónuleg skilríki á sér. Fyrir vikið kom maður frá yfirkjörstjórninni sem vottaði að maðurinn væri í raun Jón Gnarr. Þess vegna tókst honum að kjósa að lokum.

Langt seilst þegar börnin manns eru notuð í pólitískum tilgangi
„Það getur allt gerst, við gætum þurrkast út og við gætum fengið fullt af borgarfulltrúum,“ sagði Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í viðtali við Sólveigu Bergmann og Þorgeir Ástvaldsson á Bylgjunni.

Einar: Komumst inn í Eurovision og Framsókn fer í borgarstjórn
„Ég er ekki öruggur inni en þetta verður mjög tæpt. Það munar um hvert atkvæði,“ sagði Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, í viðtali við Sólveigu Bergman og Þorgeir Ástvaldsson á Bylgjunni í morgun.

Dagur B.: Stjórnmálin eru á vegamótum
„Stjórnmálin almennt eru á vegamótum, það hefur fallið mikið á traustið og það verður geysimikið verkefni að endurvinna það,“ sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í viðtali við Þorgeir Ástvaldsson og Sólveigu Bergman á Bylgjunni fyrir utan Ráðhúsið í morgun.

Fáar skoðanakannanir fyrir kosningarnar í dag
Hversu nærri úrslitunum fóru skoðanakannanir sem gerðar voru fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2006?

Hanna Birna vinnur á meðal kvenna
Talsvert fleiri segjast nú vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, verði borgarstjóri en fyrir viku, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Ný framboð skapa óvissu
Fólk vill breytingar í kosningunum, ný framboð skapa óvissu og forspárgildi skoðanakannanna er lítið að mati stjórnmálafræðinga.

Vara við rangfærslum og hræðsluáróðri
Evrópusamtökin mótmæla í yfirlýsingu auglýsingum Samtaka ungra bænda, sem birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í gær. Samtökin segja umræðu um málefni Evrópusambandsins verða að vera málefnalega, ekki byggða á rangfærslum og hræðsluáróðri.

Leiðrétting: Framsóknarflokkurinn á heiðurinn að frístundakortunum
Í frétt á Stöð 2 í kvöld, þar sem fjallað var um kosningaloforð flokkanna fyrir síðustu kosningar og orð og efndir í þeim efnum, varð fréttakonu á að eigna Sjálfstæðisflokknum heiðurinn að frístundakortum fyrir börn í borginni.