Efnahagsmál „
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 71 ›
„Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar geldur varhug við umræðu um „betur borgandi ferðamenn,“ en hún segir hugtakið vera nokkurs konar klisju. Hún segir að óþægilega mikið hafi dregið úr eftirspurn hins almenna ferðamanns, sem eyðir hér að jafnaði hundruðum þúsunda hver. Ísland hafi dregið lappirnar í markaðssetningu um árabil. Viðskipti innlent 13.6.2024 16:47
Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir. Viðskipti innlent 13.6.2024 16:04
Minni hömlur á afleiður og aukin markaðssetning myndi auka áhuga erlendis Verði dregið úr takmörkunum á afleiðuviðskiptum með krónu, samhliða markvissri markaðssetningu og aukinni upplýsingagjöf til fjárfesta, má ætla að áhugi erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfamarkaði fari vaxandi, segir fjármálaráðuneytið. Innherji 13.6.2024 14:06
Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum. 1.Það verður áfram að vera góður grundvöllur fyrir þann byggingariðnað sem er í landinu og það þarf að styrkja hann, meðal annars með því að útskrifa fleiri iðnaðarmenn. Það kerfi sem fyrir er á að taka við þegar jafnvægi er náð. Skoðun 13.6.2024 07:01
Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Viðskipti innlent 12.6.2024 21:24
Ríkisstjórnin hafi sett efnahag venjulegs fólks á hvolf Formaður Samfylkingarinnar heitir því að flokkurinn muni endurheimta og tryggja efnahagslegan stöðugleika á Íslandi, nái flokkurinn í ríkisstjórn. Í eldhúsdagsræðu sinni í kvöld sagði hún ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa sett efnahag venjulegs fólks á hvolf, en Samfylkingin hafi getuna til að rétta úr kútnum. Innlent 12.6.2024 19:59
„Þessi kostnaður hverfur ekki“ Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara. Innlent 10.6.2024 23:42
Kyrrstöðuverðbólga Að kæla hagkerfið, að ná niður verðbólgu og vöxtum hefur verið verkefni Seðlabankans undanfarin ár. Leiðin til þess hefur verið að hækka stýrivexti til að þrengja að ráðstöfunarfé þeirra Íslendinga sem skulda. Stærsti hluti þessa hóps er ungt fólk og millistéttin. Ungt fólk sem nýkomið er út á fasteignamarkaðinn og skuldar stóran hluta í fasteign sinni. Skoðun 10.6.2024 11:30
Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Seðlabankinn í Evrópu lækkaði í dag stýrivexti bankans í fyrsta sinn síðan 2019. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að ástæða lækkunar sé að verð hækki eins hratt og að þau séu á góðri leið að ná verðbólgumarkmiðum sínum sem eru tvö prósent. Bankinn lækkaði stýrivextina um 0,25 prósentustig í 3,75 prósent úr fjögur prósent en þeir höfðu verið fastir í fjögur prósent frá september 2023. Viðskipti erlent 6.6.2024 19:19
„Það sem þú greiðir niður, það kemur aldrei aftur“ Vaxtastuðningur upp að tvö hundruð þúsund krónum á mann stendur fólki nú til boða, til að bregðast við hækkandi vaxtabyrðum húsnæðislána. Fjármálaráðgjafi segir almennt best að ráðstafa fjármunum beint inn á höfðustól lána. Það sé þó ekki algilt. Neytendur 6.6.2024 19:17
Hótelrekendur vonast til að sala hrökkvi í gang eftir afbókanir Allir hótelrekendur finna fyrir því að hægst hefur á bókunum og sala á hótelherbergjum verður eitthvað minni í sumar en í fyrra. Salan gengur betur í Reykjavík og á Suðurlandi en annars staðar úti á landi þar sem hótel hafa brugðið á það ráð að bjóða lægri verð til að ná upp sölunni. Spár um fjölda ferðamanna við upphaf árs munu ekki ganga eftir, segja viðmælendur Innherja. Innherji 6.6.2024 14:31
Varar við þenslu á byggingamarkaði Þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu er verðbólga ekki að láta undan að sögn Seðlabankastjóra. Og það þrátt fyrir að stýrivaxtahækkanir bankans hafi sérstaklega verið beint að henni. Hann segir byggingariðnað í miklum vexti sem geti reynst varasamt á meðan hagkerfið kólnar. Viðskipti innlent 5.6.2024 14:01
Þétt vaxtaaðhald hefur ekki enn ógnað fjármálastöðugleika Hátt raunvaxtastig hefur „enn sem komið er“ ekki ógnað fjármálastöðugleika en það má sumpart rekja til aðgerða sem gripið var til þegar allt lék í lyndi. Jafnvel þótt vanskil hafi ekki aukist væri það barnaskapur að halda að það muni ekki gerast, að sögn seðlabankastjóra, núna þegar tekið er að hægja nokkuð á hjólum efnahagslífsins. Innherji 5.6.2024 11:57
Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika munu sitja fyrir svörum og kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar á fréttamannafundi sem hefst núna klukkan 9:30. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:59
Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum þar sem eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig en vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:34
Margir eiga inni vaxtastuðning frá skattinum Landsmenn eiga margir rétt á vaxtastuðningi frá skattinum, sem greiddur verður inn á íbúðalán. Vaxtastuðningurinn er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda sem kynntur var við undirritun kjarasamninganna í mars 2024. Innlent 4.6.2024 22:23
Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við. Viðskipti innlent 4.6.2024 12:22
Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 3.6.2024 22:22
Sakar ríkisstjórnina um vanfjármögnun lögreglunnar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sagði á Alþingi í dag að löggæsla ríkisins væri farin að líða verulega fyrir stjórnarstefnu forsætisráðherra. Hún vísaði í umsögn félags yfirlögregluþjóna sem segir að um stöðu lögreglunnar megi segja að þar brenni allir endar. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði að ríkisstjórnin hefði lagt mikla áherslu á styrk lögreglunnar, en hafi glímt við áskoranir eins og styttingu vakta og hækkun launa. Innlent 3.6.2024 22:17
Arðsemiskrafa á íslensk hlutabréf um einu prósenti hærri en á bandarísk VH-hlutfallið fyrir íslensku Úrvalsvísitöluna OMXI15 hefur haldist yfir sögulegu meðaltali síðan í júlí í fyrra þrátt fyrir vaxandi raunhagnað félaga vísitölunnar, segir hagfræðingur. Umræðan 2.6.2024 14:28
Hagtölur sýna „Gullbrár“-mælingu sem er gott í mjúkri lendingu hagkerfisins Hagtölur fyrir fyrsta ársfjórðung, þar sem landsframleiðsla dróst saman um fjögur prósent að raunvirði milli ára, voru „hálfgert Rorschach-próf“ að því leytinu til að það er hægt að lesa bæði jákvæð og neikvæð teikn úr þeim, segir aðalhagfræðingur Kviku banka. Fá merki eru í nýjum þjóðhagsreikningum að hagkerfið sé að fara fram af hengiflugi og mælingin núna kemur á góðum tíma þegar Seðlabankinn er að reyna að stýra efnahagslífinu í mjúka lendingu. Innherji 1.6.2024 08:38
„Sláandi“ verðbólgu má líklega tengja við kjarasamninga Verðbólgan mældist langt yfir væntingum greinenda í maí en skuldabréfamarkaðurinn tók tíðindunum af stóískri ró. Sjóðstjóri segir að verðbólgan hafi verið á nokkuð breiðum grunni sem líklega megi rekja til kostnaðarhækkana í tengslum við kjarasamninga. Ekki er ólíklegt að verðbólguspár verði í kjölfarið hækkaðar. Innherji 31.5.2024 07:00
Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósentustig í maí. Hún stendur nú í 627,3 stigum og hefur hækkað um 6,2 prósent á undanförnum tólf mánuðum. Viðskipti innlent 30.5.2024 10:09
Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Alls fengu um 52 þúsund einstaklingar ofgreiddar lífeyrisgreiðslur í fyrra og þurfa að greiða þær til baka. Miðgildi ofgreiðslna árið 2023 var rúmlega 122.000 krónur en var árið 2022 rúmar 66.000 krónur. Ofgreiðslan nærri tvöfaldast því á milli ára. Viðskipti innlent 28.5.2024 14:22
Svipuð umsvif hjá verktökum og í fyrra en undirbúa sig undir slaka Það er svipað að gera í ár og í fyrra en við erum að undirbúa okkur að það komi einhver slaki í vetur, segir framkvæmdastjóri Arma, stærsta leigufyrirtæki landsins í byggingariðnaði. Hann segir að hátt vaxtastig og lóðaskortur reyni verulega á rekstur verktaka. Aftur á móti standi verktakar traustari fótum en oft áður hvað varði eigið fé eftir góð ár í rekstri. Innherji 28.5.2024 12:33
Meiri halli á utanríkisviðskiptum en vænst var en tölurnar eru óábyggilegar Vöru- og þjónustujöfnuður á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur ekki verið óhagstæðari í nokkur ár. Það má einkum reka til loðnubrests, minni útflutnings á áli og umtalsverðum innflutningi á fjárfestingarvörum. „Vaxandi vöruskiptahalli er því vonandi ekki alslæmur,“ segir hagfræðingur um síðast nefnda atriðið en nefnir að umræddar hagtölur séu um þessar mundir ekki nógu ábyggylegar vegna. Borið hafi á að ferðaþjónustufyrirtæki hafi fært sig til erlendra færsluhirða að undanförnu. Sala þeirra birtist því ekki í útflutningstölum Hagstofunnar. Innherji 27.5.2024 16:27
Hækka leigu á stúdentagörðum um tvö prósent í haust Félagsstofnun stúdenta, FS, hækkar leigu á stúdentagörðunum um tvö prósent frá og með 1. september næstkomandi. Ástæða hækkunar er aukin rekstrarkostnaður og aukin viðhaldskostnaður sem ekki hefur tekist að rétta úr undanfarin ár. Innlent 24.5.2024 10:26
Kostnaður vegna uppkaupa fjórtán milljörðum meiri en áætlað var Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarðar í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Fasteignafélaginu Þórkötlu. Innlent 24.5.2024 08:40
Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, vildi einn lækka stýrivexti á síðasta fundi peningastefnunefndar. Forveri hans í starfi hafði einn viljað lækka vexti á tveimur fundum þar á undan. Viðskipti innlent 23.5.2024 10:42
Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Ráðstefnan Reykjavík Economic Conference um hagstjórn í litlum og opnum hagkerfum fer fram í dag og á morgun. Viðskipti innlent 23.5.2024 08:26