EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Norðmenn fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, ekki síst sjávarútvegsmenn. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Innlent 27.8.2026 18:50
Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Aðeins fleiri segjast ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Breyting er þar á þar sem fyrri kannanir hafa sýnt fram á meiri stuðning við já-hliðina. Innlent 27.8.2026 18:13
„Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins. Innlent 27.8.2026 18:10
„Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir það slá sig illa að forsendur kjarasamninga hafi brostið í morgun, þegar verðbólgumæling ágústmánaðar var birt, þó að það hafi legið í loftinu. Hann telur að erfitt verði að byggja upp traust milli verkalýðshreyfingarinnar og atvinnulífsins á ný. Viðskipti innlent 27. ágúst 2026 10:52
Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við. Innlent 26. ágúst 2026 23:21
Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Innlent 26. ágúst 2026 21:00
Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði. Innlent 26. ágúst 2026 18:59
Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Rétt rúmur helmingur ber mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar Ríkisútvarpsins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins sex prósent bera mikið eða fremur mikið traust til DV í sömu umfjöllun. Þá segist einn af hverjum fimm bera ekkert traust til Morgunblaðsins í umræðunni. Innlent 26. ágúst 2026 15:11
Hvað gerist ef það verður jafnt? Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei. Innlent 26. ágúst 2026 14:44
Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum „Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið. Innlent 26. ágúst 2026 14:41
Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar. Innlent 26. ágúst 2026 14:01
Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlendir fjölmiðlar beina nú sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. AFP segir mjótt á munum en breska dagblaðið Telegraph fjallar um kosningarnar í samhengi við þorskastríðin og langvarandi baráttu Íslendinga fyrir yfirráðum yfir fiskimiðunum. Erlent 26. ágúst 2026 11:38
Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já. Innlent 26. ágúst 2026 08:54
Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er handan við hornið og hefur tekið yfir alla umræðu í landinu. Nóg hefur verið rætt og ritað um málið og margir farið óhefðbundnar leiðir í nálgun sinni. Vísir hefur tekið saman kjánalegustu augnablikin úr umræðunni síðustu vikurnar. Menning 26. ágúst 2026 07:02
ESB-kosning á radar erlendra fjárfesta í íslenskum verðbréfum Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum. Innherji 26. ágúst 2026 06:37
„Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. Innlent 25. ágúst 2026 22:01
Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram á laugardag. Opnunartími í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hefur verið lengdur nú þegar styttist óðum í kjördag. Innlent 25. ágúst 2026 20:52
Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli „Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum. Innlent 25. ágúst 2026 16:25
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. Innlent 25. ágúst 2026 15:11
Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Enn dregur saman milli fylkinga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu hyggjast 51,3 prósent þeirra sem taka afstöðu segja já en 48,7 prósent segja nei. Innlent 25. ágúst 2026 14:03
Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Greint verður frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu nú þegar fjórir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Innlent 25. ágúst 2026 12:01
Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist líta ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, „alvarlegum augum“ þegar hann sagði utanríkisráðuneytið orðið að „áróðursvél“. Kveðst hún vonast til að forystufólk landsins, líka fyrri tíðar, nálgist umræðuna af auðmýkt. Innlent 24. ágúst 2026 21:21
Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða. Innlent 24. ágúst 2026 14:13
Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi. Innlent 24. ágúst 2026 12:01