Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2026 08:00 Gísli Freyr Valdórsson, eigandi Þjóðmála, keypti auglýsingu á RÚV sem var skráð á kennitölu Áfram Ísland. Eigandi birtingarhús sem bókaði auglýsinguna segir að Þjóðmál hafi þrátt fyrir það greitt fyrir birtinguna. Vísir Eigandi birtingarhúss sem bókaði auglýsingar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í síðasta mánuði segir að Áfram Ísland hafi ekki greitt fyrir auglýsingu í nafni hlaðvarpsins Þjóðmála. Auglýsing á RÚV hafi verið misskráð á kennitölu Áfram Íslands.
Heimildin sagði frá því í vikunni að útvarpsauglýsing gegn aðildarviðræðum á vegum hlaðvarpsins Þjóðmála sem var spiluð í Ríkisútvarpinu hafi verið skráð á kennitölu Áfram Íslands, stærstu samtaka andstæðinga aðildarviðræðna. Kosningastjóri Áfram Íslands sagði blaðinu að hann kannaðist ekki við að samtökin hefðu greitt fyrir auglýsingu í nafni Þjóðmála. Gísli Freyr Valþórsson, eigandi Þjóðmála, sagði í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun að hann hefði sjálfur borgað fyrir auglýsinguna í RÚV og sömuleiðis í Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu. Benti hann á að hann hefði notað sama birtingarhús og Áfram Ísland til þess að bóka auglýsingar. Heimildin sagðist ekki hafa fengið svar frá Ratsjá Media, birtingarhúsi bæði Þjóðmála og Áfram Ísland, við fyrirspurn hennar um auglýsinguna. Diðrik Örn Gunnarsson, eigandi Ratsjá Media, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að Þjóðmál hafi borið kostnað af auglýsingum sem voru birtar í nafni hlaðvarpsins. „Áfram Ísland greiddi ekki fyrir þær auglýsingar,“ segir í svari hans. Þjóðmál fékk pláss sem Áfram Ísland nýtti ekki Auglýsingapláss Þjóðmála hafi verið hluti af stærri bókun sem Ratsjá gerði fyrir kosningar. Umfang auglýsingabirtinga Áfram Íslands hafi síðan minnkað og þá hafi Ratsjá framselt plássið til Þjóðmála. „Við framsalið láðist hins vegar að breyta kennitölunni sem skráð var með bókuninni hjá RÚV. Um var að ræða misskráningu í samskiptum Ratsjár og auglýsingadeildar RÚV, sem varð til þess að kennitala Áfram Íslands stóð áfram við bókunina,“ segir Diðrik. Hann fullyrðir jafnframt að Áfram Ísland hafi hvorki komið að efni auglýsingarinnar, gerð hennar né hafi samtökin greitt fyrir hana. „Mér er ekki kunnugt um að aðrar auglýsingar annarra aðila hafi verið skráðar með þessum hætti á Áfram Ísland.“ Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins, staðfesti við Vísi að reikningur fyrir auglýsingu Þjóðmála hafi farið á birtingarhúsið.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Auglýsinga- og markaðsmál Bítið Mest lesið Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Þrettán þúsund hafa skrifað undir Innlent Fleiri fréttir Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Sjá meira