Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Birgir Olgeirsson skrifar 9. september 2026 12:59 Frá vinstri eru Sigfús Aðalsteinsson, ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, sem hefur brugðist harkalega við kröfunni um afsögn Þorgerðar. Samsett Tæplega 6.900 manns hafa skrifað undir áskorun um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér embætti utanríkisráðherra og leiði Viðreisn úr ríkisstjórn. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir tilraunina „yfirgengilega aumkunarverða“.
Alls höfðu 6.867 manns skrifað undir áskorunina á Ísland.is þegar fréttin var unnin rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag. Ábyrgðarmaður söfnunarinnar er Sigfús Aðalsteinsson. Listinn var opnaður 7. september og verður opinn til 7. október. Sigfús hefur áður verið áberandi sem forsvarsmaður hreyfingarinnar Ísland, þvert á flokka, sem stóð fyrir mótmælafundum á Austurvelli gegn stefnu stjórnvalda í málefnum hælisleitenda. Hann leiddi framboð Okkar borgar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor en náði ekki kjöri. Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB-viðræðurnar lagði hann jafnframt fram kæru og krafðist þess að atkvæðagreiðslan yrði lýst ógild. Vilja þingrof og kosningar Í áskoruninni er þess krafist að Þorgerður Katrín segi tafarlaust af sér og leiði Viðreisn úr ríkisstjórn. Þar segir að ríkisstjórnin hafi gert Evrópumálið að helsta baráttumáli sínu þrátt fyrir ófullnægjandi undirbúning og villandi upplýsingagjöf. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði að hafa pólitískar afleiðingar. Fjölmenni á Austurvelli. Í undirskriftasöfnuninni segir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði að hafa pólitískar afleiðingar. Krafist er að Viðreisn fari úr ríkisstjórn og kallað verði eftir þingrofi og kosningum.Bjarni Einarsson Þess er jafnframt krafist að Viðreisn yfirgefi ríkisstjórnina og kallað verði eftir þingrofi og kosningum. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst höfnuðu 52,8 prósent kjósenda því að Ísland hæfi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Já sögðu 47,2 prósent. Kjörsókn var 82,6 prósent. Segir Þorgerði myndu taka slaginn aftur Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra brást við söfnuninni á Facebook í morgun. Hún segir niðurrifsöfl og þjóðernispopúlista vilja losna við Þorgerði Katrínu, sem hún lýsir sem öflugasta leiðtoga frjálslyndra og alþjóðasinnaðra stjórnmálamanna á Íslandi. Hanna Katrín segir fátt lýsa styrk Þorgerðar betur en að hún myndi taka slaginn aftur ef þjóðinni yrði boðið að greiða á ný atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún segir „þessar gungur“ vera í miklum minnihluta og að fjölmargir standi stoltir við bakið á formanni Viðreisnar. „Íslensk þjóð þarf fleiri eins og hana. Færri gungur,“ segir Hanna Katrín.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira