Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Blásið á bull V-listans og Mið­flokksins

Í aðdraganda kosninga glæðist jafnan umræðan um þjóðmálin. Frambjóðendur láta að sér kveða, árétta afstöðu sína á hinum ýmsu málum á fjölbreyttum vettvangi fjöl- og samfélagsmiðla og freista þess að kjósendur hrífist með. Vera má að sumir freistist til þess að færa eilítið í stílinn í því skyni að ná sér í atkvæði.

Skoðun
Fréttamynd

Of­beldi og á­byrgð

Af hverju er ekki sjálfsagt að sagt sé opinskátt frá ofbeldi sem á sér stað eða rætt upphátt ef um er að ræða staðfestan grun um ofbeldi?Af hverju þykir í lagi að ráðast að þeim sem segja frá og þeir gerðir að blóraböggli á meðan ofbeldið sætir þöggun og gerendur þannig látnir njóta vafans?

Skoðun
Fréttamynd

Viðsnúningur til hins verra í rekstri Hveragerðisbæjar á kjör­tíma­bilinu

Ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2025 var nýverið lagður fram á fundi bæjarstjórnar. Í bókun vegna þessa hreykir meirihluti Framsóknar og Okkar Hveragerðis sér af því að reksturinn hafi skilað rúmlega 100 milljóna króna afgangi. Við fyrstu sýn hljómar það ágætlega. En staðreyndin er hins vegar allt önnur.

Skoðun
Fréttamynd

Um­mæli sveitar­stjóra sem styðst ekki við stað­reyndir

Í viðtali í fréttum á Bylgjunni í gær hélt sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, Fjóla St. Kristinsdóttir, því fram að gífurleg aukning hefði orðið á íbúafjölda hreppsins með ótilgreint lögheimili og gaf í skyn að skráningar tengdust tilraunum til að hafa áhrif á komandi sveitarstjórnarkosningar.

Skoðun
Fréttamynd

Fötlunargleraugun upp!

Það var mikið gleðiefni þegar Ísland lögfesti loksins samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lok síðasta árs eftir áratuga baráttu fatlaðs fólks, aðstandenda og hagsmunasamtaka þeirra. Nú sitjum við eftir með spurninguna „Og hvað svo?“ því mannréttindasáttmálar eru einskis virði ef samfélagið ætlar ekki að virða þá, vinna eftir þeim og læra af mistökunum sem gerð hafa verið.

Skoðun
Fréttamynd

Kársnesið verður þéttbyggðasti reitur landsins

Meirihluti Kópavogsbúa er andvígur Borgarlínunni og þéttingu byggðar. Þetta segir rannsókn sem kynnt var á RÚV. Niðurstaðan kemur eflaust fáum á óvart en í oddvitaumræðum Vísis kom það skýrt fram að einungis Miðflokkurinn ætli að sporna við nýlegri þéttingarstefnu meirihlutans í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju er ung­lingum út­hýst úr Garða­bæ?

Mikið hefur verið fjallað um leikskólamál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en í Garðabæ búa ekki bara leikskólabörn. Í bænum búa líka unglingar, unglingar sem eiga ekki lengur greiða leið inn í framhaldsskólann í bænum, Fjölbrautaskólann í Garðabæ.

Skoðun
Fréttamynd

Svaka­leg saga um of­beldi á vinnu­stað

Börn sem eru bara að mæta í skólann. Spennt fyrir nýjum kafla í lífinu, hugrökk að taka stórt skref af því þau eru viljug til að læra. Ef þau lenda svo í ofbeldi þá eiga þau sér enga undankomuleið og verða bara að halda áfram að mæta, það eru lög sem kveða svo á um.

Skoðun
Fréttamynd

Börn og ung­menni í vanda geta ekki beðið

Sem deildarstjóri í grunnskóla í Garðabæ hef ég á undanförnum árum séð stuðningsþörf barna og fjölskyldna aukast verulega án þess að úrræðum hafi fjölgað í sama takti. Þetta á við um börn og ungmenni með fatlanir, börn sem glíma við skólaforðun og þau sem þurfa stuðning barnaverndar eða félagsþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Í liði bæjar­stjórans – eða ekki?

Þegar ég flutti í Þorlákshöfn sem unglingur skömmu eftir aldamót var bærinn allt annar er hann er í dag. Lýsisbrælan hékk yfir og mér leist sannast sagna lítið á þetta vindbarða pláss – við fyrstu sýn. En ég lærði fljótt að fólkið er gott í Þorlákshöfn og samfélagið samheldið. Í bænum er gott að búa og þar var gott að vera ungmenni.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað ætla ég að kjósa ef hagur barna og barnafjölskyldna stendur mér næst?

Sem uppalinn Garðbæingur hef ég fylgst með bænum stækka og þroskast síðustu áratugi. Lítill og fallegur bær er orðinn að rúmlega 20. þúsund íbúa samfélagi. Ég man vel þá tíma þegar við lékum okkur í fótbolta á auðum svæðum þar sem nú eru fullsköpuð íbúðahverfi, og ég á góðar minningar af skólagöngu minni sem var frjáls og áhyggjulaus. Í dag er Garðabær mikið breyttur, líkt og mínar aðstæður. Orðinn fimmtugur fjölskyldumaður og el börn mín upp sem Garðbæinga með stóru G. Yngsta barnið er í leikskóla og tvö eldri eru í Hofstaðaskóla. Málefni barna og barnafjölskyldna standa mér því mjög nærri og það skiptir mig miklu máli hvernig haldið er á spilunum gagnvart þessum mikilvæga hópi í Garðabæ.

Skoðun
Fréttamynd

Ugla sat á kvisti í kjör­klefanum

Í æsku minni notaðist ég oft við vísuna Ugla sat á kvisti þegar ég þurfti t.d. að velja síðasta leikmanninn í fótbolta í frímínútum eða þegar ég átti við almennan valkvíða að stríða. Nú á þrítugsaldri hefur þessi valkvíði skotið kollinum upp aftur þegar kemur að því hvaða flokk skal kjósa í sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík og því neyðist ég til þess að nýta mér vísuna aftur í kjörklefanum þann 16.maí.

Skoðun
Fréttamynd

Týnda kosningamálið

Á laugardag verður gengið að kjörborðinu í sveitarfélögum landsins og flokkar keppast nú um athygli fólks í raunheimum jafnt sem á samfélagsmiðlum. Í slíku ati fara málefnin stundum halloka og að þessu sinni fer óþægilega lítið fyrir efnislegri umræðu um eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaganna sem er húsnæðismál. Húsnæði hefur grundvallaráhrif á lífsgæði og kjör fólks og hefur verið helsti drifkraftur verðbólgunnar. Þannig snerta húsnæðismál efnahagslífið eins og það leggur sig, ekki aðeins í dag heldur líka til framtíðar. Aðgerðaleysi í dag er verðbólga framtíðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Styrkjum hafnfirskt hug­vit

Hafnarfirði á blómstra fjölbreytt og lífleg byggð, þar sem raunveruleg tækifæri eru til staðar fyrir uppbyggingu og atvinnustarfsemi í heimabyggð með tryggum rekstrargrundvelli smærri fyrirtækja svo Hafnfirðingar á öllum aldri fái tækifæri til að starfa í sinni heimabyggð.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrir og eftir Kópavogsmódelið

Fyrir Kópavogsmódelið vorum við hjónin með dóttur okkar á leikskóla í Kópavogi. En áður en hún komst inn á leikskóla vorum við í miklum vandræðum með að finna pláss hjá dagmömmu.

Skoðun
Fréttamynd

Nokkrar stað­reyndir um fjár­mál Kópa­vogs­bæjar

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er eðlilega mikið rætt um rekstur og fjárhagsstöðu viðkomandi sveitarfélaga. Meirihlutinn í Kópavogi hefur verið duglegur að koma á framfæri upplýsingum um góða stöðu, að reksturinn haldi áfram að styrkjast, að skuldir og skuldbindingar lækki að raunverði og að árin 2024 og 2025 séu bestu rekstrarár bæjarinus í 18 ár. Þetta eru stór orð og margir eru farnir að trúa þessum lýsingum. En hverjum þykir sinn fugl fagur og það er aldrei gott að vera dómari í eigin sök.

Skoðun
Fréttamynd

Það sem hentar að bíða með þar til eftir kosningar í Kópa­vogi!

Fyrir stuttu óskaði ég eftir því að fá upplýsingar um stöðuna á Barnaskóla Kársness á dagskrá bæjarráðs. Ég fékk engin skrifleg gögn. Á fundinum kom hins vegar fram að Kópavogsbær hefði reynt að kyrrsetja eignir ítalska verktakans á Ítalíu. Það gekk ekki, því ítalski verktakinn er í einhvers konar fjárhagslegri endurskipulagningu og ekki hægt að ganga að eignum hans til tryggingar fyrir bótum.

Skoðun
Fréttamynd

Stolt fram­tíð í Kópa­vogi

Ég verð á hverjum degi vör við það mikla stolt sem íbúar í Kópavogi bera til samfélagsins okkar. Það er töluverð innstæða fyrir því stolti, því Kópavogur er öflugur, vaxandi og vel rekinn bær þar sem lögð er áhersla á þjónustu og lífsgæði íbúa. Þetta stolt er drifkrafturinn í okkar starfi og áminning um að þær ákvarðanir sem við tökum í dag móta líf þeirra kynslóða sem á eftir koma.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­sókn vill fjöl­breytta upp­byggingu

Húsnæðismál eru eitt það mikilvægasta sem ný borgarstjórn mun takast á við á næsta kjörtímabili. Draumurinn um að eignast heimili fyrir fjölskylduna á að vera raunhæfur, en í dag fjarlægist hann of marga.

Skoðun
Fréttamynd

Á tali í Garða­bæ

Það er ótrúlegt hvað maður kemst nær samfélaginu með því að taka þátt í sveitarstjórnarkosningum. Samtöl við unga sem aldna Garðbæinga hafa opnað augu mín fyrir hlutum sem maður annað hvort sá ekki áður eða gaf sér ekki tíma til að staldra við. Úr þessum samtölum kvikna nýjar hugmyndir.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíð bæjarins byggist á röddum í­búanna

Aðalskipulag Hveragerðisbæjar er ein mikilvægasta stefnumótandi áætlun sveitarfélagsins hverju sinni. Þar eru meðal annars lagðar línur um landnotkun, byggðaþróun og heildarsýn til framtíðar. Þar sem allt landsvæði sveitarfélagsins er skipulagsskylt er aðalskipulag lykilverkfæri til að móta bæjarbrag og tryggja að uppbygging samræmist bæði sérkennum staðarins og vilja íbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Skóla­mál á Sel­tjarnar­nesi í fyrsta sæti

Á Seltjarnarnesi á skólasamfélagið að vera öruggt, framsækið og manneskjulegt. Það krefst heilnæms húsnæðis, skýrrar sýnar, snemmtæks stuðnings og sveitarfélags sem setur hagsmuni barna ofar bið, vanhaldi og síhækkandi álögum á fjölskyldur.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar sann­leikur er sagður lygi

Í Neskaupstað gengur sá orðrómur að verið sé að ljúga því að verið sé að loka hjúkrunardeildinni í Neskaupstað, eða að hún sé á förum.

Skoðun
Fréttamynd

Heilabilun og sam­þætting þjónustu

Tíðni heilabilunar er talin vera um 2% hjá 65 ára fólki og tvöfaldast á hverjum fimm árum eftir það, fram undir nírætt þegar um þriðjungur er talin vera með heilabilun af einhverjum toga. Lífslíkur fram á efri ár hafa farið vaxandi um nokkurt skeið og er fjöldi fólks með heilabilunarsjúkdóma því ört vaxandi. Eins og staðan er í dag má gera ráð fyrir að þegar fólk greinist með heilabilun hafi hún verið byrjuð nokkru fyrr.

Skoðun
Fréttamynd

Gæði fram­kvæmda eru grund­vallar­at­riði!

Ég hef sterk tengsl við atvinnulífið og starfa daglega að mikilvægum grunninnviðum bæjarins, auk þess að þekkja vel til stjórnsýslu annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Við í Samfylkingunni í Hafnarfirði höfum fylgst náið með þeirri vaxandi tilhneigingu hjá sveitarfélögum að útvista stórum hluta af verklegum framkvæmdum og þjónustu til einkaaðila.

Skoðun