Umhverfismál

Landnotkun bænda stærsti sökudólgurinn í kolefnislosun
Landnotkun á Norðurlandi vestra losar 90 prósent alls kolefnis sem losnar í landsfjórðungnum. Langstærstur hluti þess er framræsing votlendis. "Sláandi niðurstöður,“ segir Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur. Upplýsingafull

Umgengni í höfninni í Eyjum til skammar
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum íhuga að koma upp eftirlitsmyndakerfi til að fylgjast með umgengni við höfnina sem sé ekki góð. Ólafur Þór Snorrason hafnarstjóri segir oftast um óviljaverk að ræða þegar olía og grútur fer í hana.

Stórátak í loftslagsmálum: Viðskiptavinum býðst að kolefnisjafna eldsneytiskaup
Einu stærsta átaki sem ráðist hefur verið í til að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda hér á landi verður ýtt úr vör í dag að sögn stjórnarformanns Votlendissjóðs.

Umhverfismálin munu hafa mikil áhrif
Magnús Orri Schram segir mikilvægt að Ísland verði áfangastaður þar sem ferðamenn geti verið umhverfisvænni en heima hjá sér.

Uppbygging í Bláfjöllum geti hæglega endað í katastrófu
Forstöðumaður hjá Veitum varar við fyrirhugaðri uppbyggingu á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Brýnar úrbætur þurfi á Bláfjallavegi og frekari rannsókna sé þörf á þeim áhrifum sem hugsanleg mengunarslys geti haft á vatnsból höfuðborgarinnar.

Landsbankinn og Arion innkalla endurskinsmerki vegna hættulegra efna
Í tilkynningu sem Arion banki og Landsbankinn sendu frá sér eru viðskiptavinir beðnir afsökunar.

Samstarfsvettvangi um loftslagsmál komið á fót
Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

Frans páfi ávarpaði fund sem Bjarni Benediktsson sótti
Frans páfi var ómyrkur í máli þegar hann gagnrýndi þjóðir heims fyrir aðgerðarleysi í loftslagsmálum.

Hvað eru tafa- og mengunargjöld?
Reykjavíkurborg íhugar nú að feta í græn fótspor annarra stórborga sem hafa tekið upp margvíslega gjaldheimtu til að stýra og takmarka bílaumferð.

Vinnuskúrar eru enn til trafala á Reyðarfirði
Alcoa Fjarðaál gerir nú lokatilraun til að reyna að selja restina af vinnuskúrum sínum. Hafa ekki verið notaðir síðan framleiðsla hófst árið 2007. Álverið vinnur að því að skila lóðinni aftur til sveitarfélagsins og því mikilvæg

Svartolíubann kostar fyrirtæki skildinginn
Svartolía verður bönnuð í íslenskri landhelgi frá og með áramótum samkvæmt drögum að nýrri reglugerð sem voru birt í dag. Olían er sú óhreinasta sem notuð er í skiptaflotanum og þetta er bæði mikilvægt loftgæða- og loftslagsmál að sögn umhverfisráðherra. Breytingarnar hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir fyrirtæki.

Fjöldi nemenda skellti sér í enn eitt verkfallið fyrir loftslagið
Fjöldi ungmenna kom saman á Austurvelli í hádeginu til að minna stjornmálamenn á að grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar séu til að staðið verði við ákvæði Parísarsamkomulagsins.

Kringlan plastpokalaus innan árs
Verslunarmiðstöðin Kringlan ætlar að vera plastpokalaus árið 2020 og verslunum Kringlunnar verður þá eingöngu heimilt að bjóða viðskiptavinum sínum upp á umhverfisvæna poka.

Hvetja til endurnýtingar á BDSM-búnaði eftir Eurovision
Samtökin BDSM á Íslandi hvetja alla þá sem fjárfestu í BDSM-búnaði eða fatnaði í tengslum við Eurovision og hafa ekki lengur not fyrir hann að skila því inn til félagsins eða til Rauða krossins.

Verðlauna fyrir framúrskarandi plastlausa lausn
Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til nýrrar viðurkenningar sem hlotið hefur heitið Bláskelin.

Stærsta timburhús landsins verður við Malarhöfða
Gert er ráð fyrir að stærsta timburhús landsins munu rísa við Malarhöfða eftir að verkefnið Lifandi landslag var á meðal þeirra sem bar sigur úr bítum í samkeppni C40 um umhverfisvæna byggingu og vistvænt skipulag á reit á Malarhöfða hjá Elliðaárvogi.

Dýradagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi
Landvernd stendur í dag fyrir skrúðgöngu frá Laugarnesskóla yfir í Grasagarðinn í tilefni Dýradagsins, sem er nýr viðburður á vegum Landverndar sem fyrirhugað er að verði árlegur.

Stærsta verkefni Íslendinga í umhverfismálum er í Kína
Íslendingar koma að uppbyggingu og rekstri á stærsta hitaveitukerfi í heimi í tugum borga í Kína.

„Ástandið væri betra ef fólk yrði duglegra við að flokka“
Myndband sem Rakel Steinarsdóttir birti af urðunarsvæðinu við Fíflholt á Mýrum á Vesturlandi hefur vakið mikla athygli undanfarna daga.

Losun frá stóriðju og flugi jókst í fyrra
Fyrirtæki á Íslandi keyptu tæplega milljón losunarheimildir í fyrra. Losun frá flugi var meira en tvöfalt meiri en losunarheimildir sem flugfélög fengu endurgjaldslaust.

Þörf á róttækum aðgerðum í loftslagsmálum þótt Ísland lýsi ekki yfir neyðarástandi
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, segir þörf á róttækum aðgerðum í loftslagsmálum þótt hún hafi persónulega ekki fulla sannfæringu fyrir því að Ísland eigi að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftslagsbreytinga og áhrifa þeirra.

Ísland eitt fárra landa í Vestur-Evrópu án aðlögunaráætlunar vegna loftslagsbreytinga
Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands, sagði í erindi um næstu skref aðlögunaráætlunar loftslagsbreytinga að setja yrði á fót loftslagssetur sem yrði samráðsvettvangur um loftslagsmál.

Bein útsending: Erum við viðbúin loftslagsbreytingum?
Ráðstefnan hefst klukkan 9:30 og stendur til klukkan 12.

Tveir þingmenn Vinstri grænna flugu mest í fyrra
Þingmenn Norðausturkjördæmis flugu langmest innanlands.

Spá svifryksmengun í höfuðborginni næsta sólahringinn
Orsökin er rakin til sandfoks af Suðurlandi. Spáð er svipuðu veðri næsta sólahringinn.

Loftslagssjóður sem Hildur stýrir fær 500 milljónir króna
Hildur Knútsdóttir hefur verið skipuð formaður stjórnar loftslagssjóðs, en sjóðnum er ætlað að stuðla að nýsköpun í baráttunni við loftslagsbreytingar.

Plastrusl finnst á botni dýpsta svæðis sjávar
Bandaríkjamaðurinn Victor Vescovo fann plastrusl á botninum á dýpsta svæði sjávar, Maríanadjúpálnum í Kyrrahafinu, þegar hann kafaði þangað niður á dögunum.

„Kvíði hjá krökkum út af einhverju sem við höfum skapað“
Þrátt fyrir að það sé jákvætt að börn og ungmenni séu upplýst um loftslagsmál er það engin lausn að börn séu haldin loftslagskvíða og upplifi andvökunætur.

Rósa Björk: Loftslagsvandinn kallar á róttækar samfélagsbreytingar
„Við á Íslandi höfum alltaf talið okkur hafa náttúrulegt forskot þegar kemur að loftslagsmálunum og umhverfismálunum, við séum hérna með hreina orku og hreint vatn, hreint loft og svo framvegis og þurfum þar af leiðandi ekki að gera eins mikið og aðrir og þetta er kannski svolítið að koma í bakið á okkur og hefur verið að gera síðustu árin.“

Ráðgera mikinn samdrátt í losun
Áætlaður samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda frá orkugeiranum á Íslandi nemur 23 prósentum til ársins 2030 miðað við árið 2005.