Átök í Ísrael og Palestínu

Fréttamynd

Harðari tónn en áður hafi verið sleginn

Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún beindi spjótum sínum að Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur vakið mikla athygli. Stjórnmálafræðingur segir ræðuna í takti við íslenska utanríkisstefnu, þó í henni megi finna harðari tón en áður hafi verið sleginn.

Innlent
Fréttamynd

UEFA rann­sakar ekki kynþáttaníð Ísraela

Kynþáttaníð ísraelskra stuðningsmanna í garð hörundsdökkra leikmanna írska landsliðsins í 3-0 sigri Írlands í leik liðanna í Þjóðadeildinni í Ungverjalandi í gær verður ekki til rannsóknar hjá UEFA sökum formgalla.

Fótbolti
Fréttamynd

Vill gera á Vestur­bakkanum það sem gert var á Gasa

Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, segist vilja að Ísraelar fari í stríð á Vesturbakkanum, leysi Palestínustjórnina upp og beiti þar sambærilegum hernaðaraðferðum og á Gasaströndinni. Hann segist jafnframt vilja innlima hluta Gaza og landsvæði í Líbanon allt norður að Litani-fljóti.

Erlent
Fréttamynd

Ringul­reið hjá Heimi og leikur við Ís­rael í upp­námi

Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Af indíánum og kú­rekum

Höfundur er alin upp í stórum systkinahópi, meira að segja á þeirra tíma mælikvarða, sjö vorum við krakkarnir sem ólumst upp á sveitabæ nokkrum í Hrútafirði.Við vorum þrjár systur og fjórir bræður, hvorug systranna næst mér í aldri, heldur bræður mínir, þremur og fimm árum eldri.

Skoðun
Fréttamynd

Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn með hinum

Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. 

Innlent
Fréttamynd

Tugir full­trúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls

Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja.

Erlent
Fréttamynd

Opið bréf til ríkis­stjórnar Ís­lands - Á­kall um að­gerðir vegna þjóðarmorðs

Í nánast þrjú ár hefur ríkisstjórn síonista í Ísrael framið þjóðarmorð á Gaza. Alþjóðalög eru brotin daglega af ógnargrimmum her ríkis síonista, með kerfisbundnum árásum á óbreytta borgara, vísvitandi og markvisst er skotið á börn. Þá er heilbrigðisstarfsfólk, hjálparstarfsmenn og blaðamenn drepin markvisst. Fólk er sprengt, skotið, brennt, limlest og beitt andlegum og líkamlegum pyntingum.

Skoðun
Fréttamynd

Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu

Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.

Innlent
Fréttamynd

Erfið og leiðin­leg staða fyrir Heimi að vera í

Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Sport
Fréttamynd

Öll spjót beinast að Írum og Heimi

Heimir Hallgrímsson dansar erfiðan línudans þessa dagana vegna komandi leikja Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni í fótbolta. Undirskrifalistar, mótmæli og harðorð viðtöl við fyrrum landsliðsmenn eru meðal þess sem blasir við í írskum fjölmiðlum.

Fótbolti
Fréttamynd

Sheeran og Gaza

„Þessir tónleikar eru enn staður þar sem allir eru velkomnir og geta staðið við hlið þeirra sem hafa andstæðar skoðanir.“

Skoðun
Fréttamynd

Sheeran bað að­dá­endur af­sökunar

Ed Sheeran bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa gert „mistök“ þegar hann hélt sína fyrstu tónleika eftir að rapparinn Macklemore var rekinn af tónleikaferð hans fyrir að lýsa yfir stuðningi við Palestínu á tónleikum þegar hann hitaði upp fyrir Sheeran.

Tónlist
Fréttamynd

Macklemore svarað

Bandaríski viðskiptajöfurinn Robert Kraft segir að hann og tónlistarmaðurinn Ed Sheeran muni jafna framlag rapparans Macklemore til mannúðarmála á Gasa í Palestínu og meira til, bæta fjórum milljónum Bandaríkjadollara ofan á milljón rapparans. Rapparinn hafði skorað á auðjöfurinn að gera þetta eftir að Macklemore var sparkað sem upphitunaratriði fyrir Sheeran.

Lífið
Fréttamynd

Írar ekki með í Euro­vision annað árið í röð

Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn.

Tónlist
Fréttamynd

Skorar á Kraft að jafna fram­lag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa

Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum.

Lífið
Fréttamynd

Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“

Macklemore segir Ed Sheeran hafa verið beittan þrýstingi af Roberti Kraft og öðrum bandarískum leikvangaeigendum sem varð til þess að Sheeran sparkaði rapparanum af tónleikaferðalagi sínu. Pólitísku hlutleysi Sheerans hefði loksins verið ögrað og hann ekki þorað að velja sér hlið. Þegar kæmi að Palestínu væri hlutleysi afstaða og Sheeran væri þar með að taka afstöðu gegn hinum undirokuðu.

Lífið