Átök í Ísrael og Palestínu
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 42 ›
Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Alls eru 492 nú látin í loftárásum Ísraela á Beirút í Líbanon. Þar af eru 35 börn og 58 konur. Frá þessu er greint í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu í Líbanon. Þá hafa 1654 særst í árásunum. Ísraelski herinn segist hafa skotið á 1.300 skotmörk síðasta sólarhringinn sem tengjast Hezbollah samtökunum. Erlent 23.9.2024 21:01
Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Hundrað eru sagðir fallnir og hundruð særðir í hörðum árásum Ísraelshers á Líbanon. Ísraelsher hefur sagt íbúum í Suður-Líbanon að forða sér búi þeir nærri athafnasvæðum Hezbollah-samtakanna. Fólksflótti er skollinn á frá höfuðborginni Beirút. Erlent 23.9.2024 11:42
Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Ísraelsher hefur hvatt íbúa í þorpum í suðurhluta Líbanon, sem kunna að búa nærri byggingum eða svæðum þar sem Hezbollah er með hernaðarinnviði, til að forða sér. Erlent 23.9.2024 07:12
Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir meðlimi ríkisstjórnar sinnar staðráðna að gera íbúum Norður-Ísrael kleift að snúa aftur til síns heima. Að leiðtogar Hezbollah muni fljótt átta sig á stöðunni, eftir árásir sem þeir hefðu ekki getað ímyndað sér fyrir nokkrum dögum. Erlent 22.9.2024 15:02
Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. Erlent 22.9.2024 07:37
Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Ísraelsher rannsakar nú hóp hermanna sem náðust á myndbandi kasta líkum Palestínumanna fram af húsþaki eftir rassíu á Vesturbakkanum. Meðferðin á líkunum stríðir gegn alþjóðalögum. Erlent 20.9.2024 21:08
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52
Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Ísraelar gerðu í dag loftárás á fjölbýlishús í úthverfi Beirút en árásin er sögð beinast gegn háttsettum leiðtoga Hezbollah-samtakanna. Nokkrar sprengjur eru sagðar hafa lent á húsinu, sem varð fyrir miklum skemmdum. Erlent 20.9.2024 13:49
Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael Eftir heilt ár af linnulausum og grimmilegum hernaði Ísraels gagnvart Palestínumönnum getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá lengur. Brýnt er að ríki heims taki sig saman um aðgerðir sem setja raunverulegan þrýsting á ísraelsk stjórnvöld. Skoðun 20.9.2024 09:03
Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Herþotur Ísraelshers gerðu árásir á fjölda skotmarka í suðurhluta Líbanon í gærkvöldi, aðeins klukkustundum eftir að Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, hét hefndum fyrir sprengingar símboða og talstöðva liðsmanna samtakanna. Erlent 20.9.2024 06:37
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03
20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Að minnsta kosti 20 létust og 450 særðust þegar talstöðvar liðsmanna Hezbollah sprungu í borgum Líbanon í gær, degi eftir að tólf létust og 2.800 særðust þegar sama gerðist með símboða. Erlent 19.9.2024 06:34
Talstöðvar springa einnig í Beirút Degi eftir að fjölmargir símboðar í notkun meðal meðlima Hezbollah-samtakanna í Líbanon og Sýrlandi sprungu, gerðist það sama með talstöðvar þeirra. Sprengingar hafa átt sér stað víðsvegar um Beirút og annarsstaðar í Líbanon. Erlent 18.9.2024 14:37
Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Samstöðukór fyrir frjálsri Palestínu kom saman og söng fyrir utan Heilbrigðisráðuneytið í morgun. Kórinn vakti athygli á stöðu heilbrigðismála í Palestínu í yfirlýsingu sinni og tileinkaði sönginn Yazan Tamimi, ellefu ára langveika drengnum sem enn stendur til að vísa úr landi. Heilbrigðisráðherra hlýddi ekki á sönginn. Innlent 18.9.2024 13:37
Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna. Erlent 18.9.2024 11:22
Hvað hefur Ísland gert? WHO tilkynnti í vor að 9000 slasaðir eða alvarlega veikir einstaklingar í Gaza séu í bráðri þörf á læknisþjónustu. Evrópuráðið biðlaði til samstöðu Evrópuþjóða með því að taka á móti hluta af þeim sjúklingum. Skoðun 18.9.2024 10:31
169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Heilbrigðisráðuneyti Gasa hefur gefið út skjal þar sem borin eru kennsl á 34.344 einstaklinga sem hafa látist í árásum Ísraelsmanna. Um er að ræða 80 prósent þeirra sem sagðir eru hafa fallið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 18.9.2024 06:29
Settu sprengjur í símboðana Ísraelsmenn standa að baki árás á Hezbollah sem framin var í dag, þegar um 2.800 manns slöðuðust eftir að símboðar sprungu í Líbanon, Íran og Sýrlandi. Símboðarnir voru gerðir í Taívan en átt var við þá áður en þeir voru fluttir til Líbanon. Erlent 17.9.2024 23:26
Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag. Innlent 17.9.2024 20:25
Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Rúmlega 2.800 manns eru sagðir hafa særst og átta látið lífið, þegar fjölmargir símboðar sprungu samtímis í Líbanon og Sýrlandi. Margir hinna særðu eru meðlimir hinna líbönsku Hezbollah-samtaka en samtökin eiga að hafa verið að nota símaboðana. Símboðarnir eru sagðir hafa gefið frá sér hljóð og sprungið skömmu síðar. Erlent 17.9.2024 14:38
Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon. Erlent 16.9.2024 16:06
Lofar að svara árásum Húta af hörku Flugskeyti sem skotið var frá Jemen til Ísrael virkjuðu í morgun loftvarnaflautur á alþjóðlega flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael. Flugskeytunum var skotið í loft upp af Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen sem studdir eru af írönskum yfirvöldum. Forsætisráðherra Ísrael segir að árásunum verði svarað. Erlent 15.9.2024 12:18
Fjöldi fyrirtækja á skiltum mótmælenda Svokölluð sniðganga var gengin í Reykjavík og á Akureyri í dag. Um er að ræða viðburð á vegum félagsins Ísland-Palestína með þann tilgang að hvetja til sniðgöngu á vörum frá Ísrael til stuðnings Palestínu. Innlent 14.9.2024 22:06
Um 400 fyrirtæki séu hætt eða að hætta að nota Rapyd vegna sniðgöngu Hundruð fyrirtækja hafa síðustu mánuði hætt að nota greiðslumiðlun Rapyd vegna þrýstings frá Sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þá hefur innflutningur á ávöxtum og grænmeti frá Ísrael minnkað verulega á milli ára. Sniðgangan 2024 verður gengin á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri í dag. Gangan er farin til að vekja athygli á sniðgöngu fyrir Palestínu. Innlent 14.9.2024 10:01
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. Innlent 13.9.2024 19:22
Ísraelar gerðu áhlaup á leynilega vopnaverksmiðju í Sýrlandi Samhliða umfangsmiklum loftárásum Ísraela á fjölda skotmarka í Sýrlandi síðastliðinn sunnudag gerðu ísraelskir sérsveitarmenn áhlaup á eldflaugaverksmiðju Hezbollah. Verksmiðjan er sögð hafa verið reist af Írönum við landamæri Sýrlands og Líbanon. Erlent 13.9.2024 11:21
Að vinna með fræðafólki úr landránsnýlenduríki Háskóli Íslands fordæmdi afdráttarlaust innrás Rússlands í Úkraínu í mars 2022 og lýsti yfir samstöðu með nemendum og starfsfólki úkraínskra háskóla sem og öllum íbúum landsins. Allt samstarf við háskóla og stofnanir í Rússlandi var „sett á ís“ eins og segir í yfirlýsingu rektors. Skoðun 12.9.2024 10:33
Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers Átján eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á skóla í Gasa, þar af sex starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Erlent 12.9.2024 06:55
Krefjast þess að Ísraelsher bæti ráð sitt eftir dráp á Bandaríkjamanni Utanríkis- og varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna kröfðust þess að Ísraelsher breytti starfsháttum sínum á Vesturbakkanum eftir að hermenn skutu bandaríska konu til bana á mótmælum þar í síðustu viku. Ísraelsmenn segja að um óhapp hafi verið að ræða. Erlent 11.9.2024 08:45