Vladimír Pútín
1 2 3 4 5 6 … 12 ›
Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ekki hægt að ræða öryggistryggingar handa Úkraínumönnum án aðkomu Rússa, sem eru ástæða þess að Úkraínumenn segjast þurfa öryggistryggingar. Það muni aldrei bera árangur og segir hann að Rússar muni ganga hart fram til að tryggja eigin hagsmuni. Erlent 20.8.2025 17:21
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20.8.2025 13:01
Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Kjarnorkuknúna beitiskipið Nakhimov aðmíráll var sjósett fyrr í vikunni, eftir að hafa verið í slipp í rúm tuttugu og fimm ár. Skipið, sem er 251 metra langt, verður líklega nýja flaggskip norðurflota Rússlands en fyrst þarf það og áhöfn þess að gangast ýmsar prófanir og æfingar. Erlent 20.8.2025 09:47
Bauð Selenskí til Moskvu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, bauðst til þess að taka á móti Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í Moskvu. Þetta mun rúsneski forsetinn hafa sagt við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar þeir töluðu saman í síma í gær. Erlent 19.8.2025 15:45
Segir ásakanir Evrópu barnalegar Ekki er hægt að koma á langvarandi friði milli Rússlands og Úkraínu án tillits til áhyggja Rússa hvað varðar öryggi og virðingu fyrir rússneskumælandi fólki í Úkraínu. Þetta segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, en hann segir einnig að leysa þurfi „grunnástæður“ átakanna og þvertók fyrir að innrás Rússa í Úkraínu snerist um landvinninga. Erlent 19.8.2025 14:03
Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Blaðamaður Vísis sem fylgst hefur með stríðinu í Úkraínu frá upphafi fór yfir helstu vendingarnar og væntingarnar af yfirstandandi fundi Trump Bandaríkjaforseta með Selenskí Úkraínuforseta og einvalaliðs evrópskra leiðtoga. Erlent 18.8.2025 20:43
Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sækir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, heim í dag auk fjölmargra þjóðarleiðtoga frá Evrópu sem standa við bakið á Úkraínumönnum vegna innrásar Rússa. Erlent 18.8.2025 14:10
„Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að hann og aðrir leiðtogar Evrópu deili vilja til að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið er. Friðurinn þurfi að vera varanlegur. Hann segir það í höndum Rússa að binda enda á stríðið sem þeir hófu. Erlent 18.8.2025 09:47
„Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Geir Ólafsson söngvari lýsir því í viðtali hjá Sölva Tryggvasyni að hann hafi glímt við kvíðaröskun allt frá því hann var lítið barn og sé jafnframt félagsfælinn. Hann rifjar upp þegar hann söng fyrir Vladimír Pútín Rússlandsforseta sem hafi verið stórmerkileg lífsreynsla. Lífið 18.8.2025 08:43
„Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Fyrrverandi utanríkisráðherra segir nauðsynlegt að Evrópuþjóðir fari að taka raunverulegar ákvarðanir um hvernig binda megi enda á átökin í Úkraínu. Málið snúist ekki eingöngu um hvar landamæri liggja heldur að úkraínska þjóðin fái að taka ákvarðanir sem fullvalda þjóð, til dæmis um að ganga í Evrópusambandið og NATO. Innlent 17.8.2025 14:01
Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Forsætisráðherra Íslands mun ekki sækja fund Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta í Hvíta húsinu í persónu en fjöldi þjóðarleiðtoga í Evrópu úr röðum „bandalags hinna viljugu“ er á leið til sækja fundinn á morgun eftir að hafa fengið boð frá Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 17.8.2025 13:46
Trump sagður hlynntur afsali lands Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hlynntur tillögu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta að binda enda á innrásarstríð Rússa með því að láta þeim eftir að innlima austurhéröð Úkraínu. Þetta kom í ljós þegar upplýsingum úr símafundi hans með leiðtogum Evrópu var lekið. Erlent 17.8.2025 00:06
Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Evrópskir leiðtogar hafa fengið boð á fund Bandaríkjaforseta og forseta Úkraínu í Washington-borg á mánudag. Bandaríkjaforseti lagði til á fundi með forseta Rússlands að Úkraína fengi svokallaða öryggistryggingu, svipaða og kveðið er á um í NATO-samningnum, án þess að ganga inn í bandalagið. Erlent 16.8.2025 20:26
„Það hefði auðvitað verið betra“ Það hefði verið betra, að mati utanríkisráðherra, hefði Trump haldið í kröfu Evrópuleiðtoga um að semja fyrst um vopnahlé milli Úkraínu og Rússlands og síðan frið, frekar en að halda friðarviðræður „undir sprengjuregni og drápsvél Rússa.“ Hún gerir enga athugasemd við rauða dregilinn sem tók á móti Pútín á leiðtogafundinum í Alaska í gær, svo lengi sem gjörningurinn skili „réttlátum og langvarandi friði í Evrópu.“ Innlent 16.8.2025 16:28
Selenskí mun funda með Trump Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti mun eiga fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington-borg á mánudag. Sá fundur mun koma í kjölfar fundar Trump með Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem fór fram í gærkvöldi. Erlent 16.8.2025 09:24
Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Fundi forseta Rússlands og forseta Bandaríkjanna er lokið. Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir þá hafa komist að ákveðnum skilningi um málefni Úkraínu en engar nánari upplýsingar fengust um hvað fælist í þeim skilning. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla upplýsa evrópska leiðtoga, þar á meðal Úkraínuforseta, um hvað fór fram á fundinum. Erlent 15.8.2025 23:24
Forsetarnir tveir funda Bandaríkjaforseti og Rússlandsforseti eru báðir mættir til Alaskafylkis í Bandaríkjunum til að funda. Erlent 15.8.2025 19:51
Pólitískur refur og samningamaður mætast Mikil eftirvænting ríkir fyrir leiðtogafund Bandaríkjanna og Rússlands sem hefst klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. Krafa Rússa á fundinum lýtur í raun að því að Úkraína verði leppríki Rússlands, segir prófessor í sagnfræði. Óljóst sé hvort Úkraínumenn neyðist til að fallast á slíka niðurstöðu. Innlent 15.8.2025 13:08
Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Augu umheimsins beinast nú að borginni Anchorage í Alaska þar sem fundur Trump og Pútín fer fram á morgun í Elmendorf-Richardson-herstöðinni . Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu og íbúa stolta af þeirri athygli sem borgin nýtur nú í heimspressunni. Erlent 14.8.2025 12:15
Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Yfirvöld í Noregi hafa komist að þeirri niðurstöðu að rússneskir tölvuþrjótar beri ábyrgð á árás á stíflu þar í landi í apríl. Yfirmaður norsku leyniþjónustunnar segir Rússland helstu ógnina sem steðji að Noregi en talsmaður utanríkisráðuneytis Rússlands gagnrýndi Norðmenn harðlega í dag fyrir meinta hervæðingu Svalbarða. Erlent 13.8.2025 18:33
„Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti í dag fundinum sem hann mun eiga með Vladimír Pútín, kollega sínum í Rússlandi, sem „þreifingafundi“. Þeir muni ræða „skipti á landsvæði“ milli Úkraínumanna og Rússa og lýsti hann einnig yfir vonbrigðum með Pútín í tengslum við friðarviðræður. Erlent 11.8.2025 22:31
Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna segir fund Selenskí Úkraínuforseta og Pútíns Rússlandsforseta í bígerð. Það sé spurning um hvenær en ekki hvort. Erlent 10.8.2025 21:04
Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi furðar sig á aðdraganda fyrirhugaðs leiðtogafundar forseta ríkjanna tveggja. Hann vonar að fundurinn reynist óþarfur, þar sem hann kunni að gera málstað Úkraínu ógagn frekar en nokkuð annað. Erlent 10.8.2025 15:25
Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Utanríkisráðherra segir vont til þess að hugsa að Rússar fái landsvæði í Úkraínu gegn vopnahléi. Hún treystir Bandaríkjaforseta til að koma á vopnahléi, en það sé mikilvægt að tryggður verði langvarandi friður á svæðinu. Erlent 9.8.2025 20:02
Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti munu funda í Alaska föstudaginn 15. ágúst. Fyrr í kvöld sagði Trump að friðarsamkomulag fæli í sér skiptingu á landsvæðum. Erlent 8.8.2025 22:26
Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Rússar eru taldir líklegir til að gera á næstu dögum tilraun með nýja tegund stýriflauga sem getur bæði borið kjarnorkuvopn og er knúin af kjarnorku. Eldflaugin ber heitið „Burevestnik“ en er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum og hafa fregnir borist af því að skjóta eigi henni á loft á norðurslóðum. Erlent 8.8.2025 13:46
Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Donald Trump Bandaríkjaforseti segist reiðbúinn að hitta Vladímír Pútín Rússlandsforseta þrátt fyrir að sá siðarnefndi neiti að funda með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Sú saga gekk að fundur leiðtoga stríðandi fylkinganna væri skilyrði fundar Trump og Pútín en svo virðist ekki vera. Erlent 7.8.2025 23:58
Neitar að hitta Pútín án Selenskís Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður þeirrar skoðunar að hann muni ekki funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands, án þess að Pútín hitti einnig Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Pútín sjálfur sagði í dag að það kæmi ekki til greina en nokkur óvissa ríkir um mögulegan fund Pútíns og Trumps. Erlent 7.8.2025 16:29
Fúlsaði við þriggja forseta fundi Ráðamenn í Rússlandi hafa staðfest að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætli að funda með Donald Trump, kollega hans í Bandaríkjunum. Fundurinn gæti farið fram strax í næstu viku. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Trumps sem hitti Pútín í gær, lagði til að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sæti einnig fundinn en Pútín hafnaði því. Erlent 7.8.2025 10:11
Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hækkaði í dag tolla á vörur frá Indlandi um 25 prósent. Ku það vera vegna kaupa Indverja á olíu frá Rússlandi og en þegar tollarnir taka gildi verða tollar á Indland orðnir fimmtíu prósent. Erlent 6.8.2025 16:12