Blóðmerahald

Fréttamynd

And­stæðingar dýrahalds og hagnaðardrifið dýraverndarstarf

Grundvallarbreyting hefur orðið á umræðum um velferð dýra hér á landi, sérstaklega á nokkrum síðustu árum og kemur það aðallega til af tvennu. Annað er að andstæðingar dýrahalds hafa sig stöðugt frammi sem hina einu sönnu dýravini en láta á sama tíma minna á hinum bera að endanlegt markmið baráttu þerra er að dýrunum verði eytt en það innifelur auðvitað óhjáhvæmilega að sjálf dýrin hverfi við að leggja niður dýrahaldið.

Skoðun
Fréttamynd

Blóð­taka er ekki land­búnaður

Blóðtaka úr fylfullum hryssum og framleiðsla á PMSG hormóninu var haustið 2023 felld undir reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni, 460/2017.

Skoðun
Fréttamynd

Enginn grunnur fyrir nýju starfs­leyfi Ísteka

Í kjölfar samskipta milli eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og matvælaráðuneytisins árið 2023 var reglugerð sem gilti um blóðmerahald frá árinu 2022 felld úr gildi og starfsemin felld undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni, sem innleiðir tilskipun 2010/63/EB sem felld var inn í EES samninginn árið 2014.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lenska stóðhryssan og Evrópa

Upplýsingaóreiðu hefur verið beitt gegn íslensku stóðhryssunni og hefur eðlilegum hluta, sem er að benda á tilvik illrar meðferðar, verið hrært saman við ósannindi og áróður. Tilgangurinn er ekki að bæta velferð við stóðhald heldur að afleggja þessi gömlu stóð okkar Íslendinga.

Skoðun
Fréttamynd

Stormurinn gegn stóðhryssunni

Í vor hef ég leitað til hrossabænda, kynnt mig og óskað leyfis að fá að taka til varnar fyrir íslensku stóðhryssuna. Það geri ég til að þjóna tilvist hryssnanna enda þykir mér vænt um þær og vil standa með þeim. Ég er enn að vinna að því að fá leyfi bændanna og vil helst fara af stað í sumar.

Skoðun
Fréttamynd

Hættum að bregðast ís­lensku hryssunni

Ítrekað hefur verið sýnt fram á kerfisbundið dýraníð í blóðmerahaldi á Íslandi. Nýtt myndefni, sem nú hefur verið birt, dregur fram hvernig dýralæknar sem starfa fyrir Ísteka bregðast hlutverki sínu sem er að tryggja velferð fylfullra hryssa við blóðtöku.

Skoðun
Fréttamynd

Sigrar og raunir ís­lenska hestsins

Íslenski hesturinn hefur frá örófi alda verið samofin sögu þjóðarinnar. Hesturinn hefur verið nýttur sem vinnudýr, fararskjóti og landinn át jafnvel sjálfdauð hross í laumi sökum hungurs eftir kristnitöku, sem á þeim tíma boðaði heljarvist þeim sem það gerðu.

Skoðun
Fréttamynd

30 silfur­peningar dýra­lækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýra­læknum, 2023

Flestir hafa heyrt af blóðmerahaldi eða séð myndir af þeirri hörmung, sem það er, í sjónvarpi. - Fæstir vita, að það eru eiðsvarðir dýralæknar, sem hafa heitið að verja, vernda og lækna dýrin, tryggja velferð þeirra í hvívetna, sem framkvæma blóðtökuna og bera þar með ábyrgð á þessari hörmulegu starfsemi, fyrir mér dýraníði, sem aðeins virðist vera leyfð á Íslandi í allri Evrópu.

Skoðun
Fréttamynd

Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóð­töku

Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir rannsókn stofnunarinnar á illri meðferð á hryssum í blóðmerahaldi lokið. Við skoðun stofnunarinnar hafi fundist alvarlegt frávik en að í flestum tilfellum hafi verið um einn sama einstaklinginn að ræða. Búið sé að koma í veg fyrir að þessi aðili komi að meðferð hrossa aftur.

Innlent
Fréttamynd

For­dæma „hvers­kyns of­beldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur

Ísteka segist fordæma „hverskyns ofbeldi,“ sér í lagi gagnvart hryssum sem fyrirtækið fær hráefni úr. Mál vinnumanns sem beitti hryssur ofbeldi í fyrra hafi verið afgreitt og bærinn fái að selja blóð að uppfylltum skilyrðum. Fyrirtækið segir bændur hugsi yfir njósnum og myndbandsupptökum af bændum úr launsátri.

Innlent
Fréttamynd

Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli

Dýraverndunarsamband Íslands, þýsk-svissnesku dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TSB) ætla að kæra til lögreglu brot á lögum um dýravelferð sem þau segja sjást á upptökum af blóðmerahaldi á Íslandi sem samtökin hafa safnað frá árinu 2019. 

Innlent
Fréttamynd

Stöðvum blóðmerahaldið á Ís­landi

Baráttan fyrir bættri velferð dýra hefur verið að styrkjast stöðugt á síðustu árum. Það finnum við hjá Dýraverndarsambandi Íslands, rótgrónum samtökum sem eiga ekki minna erindi í dag en þegar þau voru stofnuð fyrir 110 árum.

Skoðun
Fréttamynd

Við kjósum vel­ferð dýra

Fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar, nú þingmaður og frambjóðandi flokksins í þriðja sæti í Suðvesturkjördæmi, Þórunn Sveinbjarnardóttir, birti grein hér á Vísi mánudaginn 18. nóvember sl., undir heitinu „Kjósum velferð dýra“.

Skoðun
Fréttamynd

Kvarta til um­boðs­manns Al­þingis vegna blóðmerahalds

Umboðsmanni Alþingis hefur borist kvörtun frá lögmanni dýraverndunarsamtaka vegna stjórnsýslu í tengslum við blóðmerahald á Íslandi. Lögmaðurinn segir að hér ríki algjört úrræðaleysi þegar upp koma mál sem varða illa meðferð á dýrum.

Innlent
Fréttamynd

Blóðmeramálið að kosninga­máli

Ný myndbrot, frá York Ditfurth og samstarfskonu hans Sabrinu hjá AWF-TSB, samstarfsfólki mínu við gerð fyrstu heimildamyndarinnar um blóðmeraníðið sýnir endurtekið og grimmt dýraníð.

Skoðun
Fréttamynd

Rang­færslur fram­kvæmdar­stjóra Ís­teka

Það var áhugavert að horfa og hlusta á framkvæmdastjóra Ísteka í Kastljós þættinum þann 28. febrúar. Í marga mánuði hafði María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttakona RÚV reynt án árangurs að ná í yfirmenn Ísteka til að tjá sig um ýmis álitamál í blóðmerabúskapnum.

Skoðun
Fréttamynd

MAST segir á­hrif blóð­töku vera væg

Matvælastofnun barst ekki skýrsla um dauða fjögurra hryssa sem haldið hefur verið fram að rekja megi til reynsluleysis dýralækna við blóðtöku. Erfitt hafi verið fyrir stofnunina að fylgja málinu eftir vegna skorts á sönnunargögnum og vegna þess að umræddir dýralæknar heyrðu undir pólsk dýralæknayfirvöld en ekki íslensk.

Innlent
Fréttamynd

Blóð er ekki mjólk

Framkvæmdastjóri Ísteka sagði í Kastljósi í gær að blóðtaka úr fylfullum hryssum væri ekkert annað en hefðbundinn landbúnaður. Þetta er rangt. Það liggur fyrir í ítarlegri niðurstöðu ESA, heilar 32 blaðsíður af rökstuðningi þess efnis hvers vegna blóðtakan er ekki og getur aldrei talist til landbúnaðar.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf til ríkis­endur­skoðanda

Fyrst vil ég óska ykkur til hamingju með að vera kosin fyrirmyndarstofnun fimmta árið í röð. Þið vinnið ykkar vinnu sem er traustvekjandi fyrir okkur, hina almennu landsmenn og borgara.

Skoðun