
Stafrænt ofbeldi

Kærasti Elísabetar tjáir sig: „Ætli það henti þeim ekki að ég sé vondi kallinn?“
Sindri Þór Kárason, kærasti söngkonunnar Elísabetar Ormslev segist undanfarið hafa orðið fyrir ásökunum frá nánasta fólki Péturs Arnars Guðmundssonar. Ásakanirnar kveða á um að hann sé „nettröll“ og er hann sakaður um að senda skilaboð til Péturs sem meðal annars óski þess að hann „rotni í helvíti.“

Svona er algóritminn á samfélagsmiðlum að skemma mannleg samskipti
Hver græðir á því að við séum vond við hvert annað inn á samfélagsmiðlum?Stutta svarið er: eigendur þeirra. En hvernig má það vera?

Mótmæltu brottvísunum hælisleitenda á málþingi um ofbeldi
Fámennur hópur fólks mætti á Landssamráðsfund um ofbeldi sem stendur yfir á Grand hóteli. Hópurinn mótmælti brottvísunum hælisleitenda og kallaði „Refugees are welcome here“ og „brottvísanir eru ofbeldi“.

Foreldrar verði að setja börnum sínum skýrari ramma
Arnar Ævarsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, segir að þegar grunur vakni um einelti í barnahópi sé það lykilatriði grípa strax inn í til að passa að málin fái ekki að grasserast og þróast til verri vegar þar til þau verði hálf óviðráðanleg.

Segir fjölda ungmenna hafa beðist afsökunar
Sædís Hrönn Samúelsdóttir, móðir Ísabellu Vonar, segir að líf þeirra mæðgna hafi verið tilfinningaleg rússíbanareið síðan þær stigu fram og greindu frá raunum Ísabellu. Síðan þá hafi fjöldi ungmenna beðið Ísabellu afsökunar.

Telur eineltismál ekki vanrækt af kerfinu
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir sér hafa verið brugðið þegar tólf ára stúlka steig fram og lýsti hrottalegu einelti í gær. Hann telur þrátt fyrir þetta ekki að eineltismál séu vanrækt af kerfinu. Söfnun er hafin til að koma stúlkunni og móður hennar í frí til Flórída.

Komu Ísabellu Von á óvart með ferð til Flórída
Landsmenn hafa sýnt samhug í verki og tekið þátt í sérstakri fjáröflun til að Ísabella Von og móðir hennar geti farið í ferðalag til Flórída eftir allt sem á undan hefur gengið.

Lygasögurnar það allra versta
Móðir tólf ára stúlku sem reyndi að svipta sig lífi vegna hrottalegs eineltis segir það skelfilegra en orð fá lýst að horfa upp á samnemendur kvelja dóttur hennar svo mánuðum skiptir. Þær mæðgur telja á fjórða tug krakka í gerendahópnum. Stúlkan segir lygasögurnar það versta við eineltið.

Vísbendingar um að einelti hafi aukist eftir Covid
Móðir tólf ára stúlku, sem reyndi að svipta sig lífi vegna hrottalegs eineltis, lýsir nær algjöru vonleysi í máli dóttur sinnar. Myndbönd af árásum jafnaldra á stúlkunna hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Verkefnastjóri hjá Barnaheillum segir málið ólýsanlega sorglegt og að vísbendingar séu um að einelti hafi jafnvel aukist hér á landi eftir Covid.

Tólf ára reyndi að svipta sig lífi eftir langvarandi einelti í Hafnarfirði
Tólf ára stúlka í Hafnarfirði hefur orðið fyrir miklu einelti og ofbeldi af hendi hóps barna á sama aldri. Stúlkan hefur ekki mætt í skólann í marga daga og dvelur nú á spítala eftir að hafa reynt að svipta sig lífi.

„Vont að þessi nýja ógn sé til staðar“
Aldrei hafa fleiri leitað til Stígamóta í fyrsta sinn en á síðasta ári og hátt í þriðjungur þeirra hafði orðið fyrir stafrænu kynferðisofbeldi. Óvenju hátt hlutfall gerenda var aðeins 14 til 17 ára þegar brotin voru framin.

Hataðasti maðurinn á netinu: „Ég skulda engum neitt“
Netflix gaf nýlega út heimildarþættina „Most Hated Man on the Internet“ eða „Hataðasti Maðurinn á Veraldarvefnum“ þar sem farið er yfir sögu Hunter Moore sem varð frægur á sínum tíma fyrir að stofna vefsíðuna IsAnyoneUp.com sem birti hefndarklám en nú hefur hann tjáð sig um málið.

Sendi barnsmóður sinni ógnandi skilaboð
Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn blygðunarsemi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, hótanir og brot í nánu sambandi með því að hafa sent henni móðgandi smáskilaboð.

Óskaði eftir kynferðislegum myndum og sendi typpamynd til barns á Snapchat
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi og greiðslu 400 þúsund króna í bætur fyrir brot gegn barnaverndarlögum og brot gegn blygðunarsemi eftir að hafa beðið tvo einstaklinga um kynferðislegar myndir og sent þeim typpamyndir á Snapchat.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda kynferðislegt efni af fyrrverandi
Karlmaður var á dögunum dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar sem frestað verður til tveggja ára, haldi hann almennt skilorð. Hann var einnig ákærður fyrir margvísleg meint brot gegn fyrrverandi unnustu sinni, þar á meðal nauðgun, en sýknaður af þeim öllum.

Staðfesti gæsluvarðhald vegna brota gegn sextán stúlkum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð um áframhaldandi gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot gegn sextán stúlkum. Sú yngsta er aðeins ellefu ára gömul.

Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat
Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum.

Ljóða-Valdi málaður upp sem barnapervert á Facebook
Valdimar Tómasson, sem betur er þekktur sem Ljóða-Valdi en hann er eitt þekktasta ljóðskáld landsins, var gripinn við þá iðju að taka mynd af stúlku í Nettó. Hann var umsvifalaust málaður upp sem barnapervert á Facebook sem Valdimar segir algerlega úr lausu lofti gripið.

Frosti kominn í leyfi frá störfum
Frosti Logason, dagskrárgerðarmaður og sjónvarpsmaður á Stöð 2, er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum sínum hjá Stöð 2. Þetta segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóra miðla Stöðvar 2, í samtali við fréttastofu.

Frosti gengst við ásökunum fyrrverandi kærustu
Frosti Logason, dagskrárgerðarmaður og sjónvarpsmaður á Stöð 2, segist gangast við ásökunum fyrrverandi kærustu sinnar um andlegt ofbeldi en viðtal við hana birtist í Stundinni í morgun. Hann er kominn í leyfi frá störfum hjá Stöð 2.

Þriggja mánaða fangelsi eftir tálbeituaðgerð: Taldi sig hafa verið að tala við fjórtán ára stúlku
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa verið í samskiptum við einstakling á vefsíðunni Einkamál, sem hann hélt að væri fjórtán ára stúlka. Maðurinn sendi meðal annars mynd af getnaðarlim sínum og fór á fund einstaklingsins, sem hann hélt að væri unga stúlkan.

Flestar beiðnir um nektarmyndir koma frá ókunnugum
Algengast er að börn og ungmenni séu beðin um það af ókunnugum að senda eða deila af sér nektarmyndum. Fjögur af hverjum tíu börnum í 8. til 10. bekk hafa verið beðin um að senda af sér nektarmynd og meira en helmingur ungmenna á framhaldsskólaaldri.

Gera þurfi gangskör í að uppræta stafrænt kynferðisofbeldi
Ungar stúlkur verða fyrir ofbeldi á netinu í sívaxandi mæli. Breskur sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi segir að ríki heims þurfi að gera gangskör að því að uppræta ofbeldi af þessu tagi enda hafi þau alla burði til þess.

Bein útsending: Óumbeðnar typpamyndir og kynlífsmyndbönd sem lekið er á netið
Rights and Equality Foundation (NORDREF) standa fyrir málþingi í dag klukkan 9. Á dagskrá er umræða um stafræn brot gegn kynferðislegri friðhelgi og áhrif þess á mannréttindavernd, lýðræðisþátttöku og menningu. Málþingið stendur til hádegis.

Í mál við TikTok vegna starfs við að horfa á og eyða ógeðslegum myndböndum
Bandarísk kona sem starfað hefur við umræðurýnir (e. moderator) hjá TikTok, samfélagsmiðlisins vinsæla, hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu. Hún sakar fyrirtækið um að hafa ekki varið hana gegn sálfræðilegum skaða sem hún hlaut af því að horfa á grimmileg myndbönd meðal annars af nauðgunum og morðum svo klukkutímum skipti á degi hverjum.

Kynferðisbrotalaust Ísland?
Aldamótamarkmiðin um Fíkniefnalaust Ísland og Frið árið 2000 náðust ekki. Þrátt fyrir að kynferðisofbeldi sé mikill skaðvaldur í íslensku samfélagi hefur ekki verið ráðist í herferðina um kynferðisbrotalaust Ísland.

Sakfelldur fyrir að hafa sent myndir af íbúa sambýlis handleika kynfæri sín
Starfsmaður sambýlis hefur verið sakfelldur fyrir að hafa gerst sekur um kynferðisbrot með því að hafa tekið upp Snapchat-myndband af vistmanni handleika ber kynfæri sín.

Ekki vera þessi gaur
Ofbeldi gegn konum og kynferðislegt ofbeldi er rótgróið. Fyrir tilstilli kvennahreyfingarinnar, þolenda og öflugra baráttukvenna hefur ljósi verið varpað á þennan alvarlega og kerfisbunda vanda.

Rannsaka hvort reynt hafi verið að keyra á börn í Garðabæ
Nokkrar kærur hafa borist lögreglu eftir að hópur krakka safnaðist saman fyrir utan heimili í Garðabæ á laugardagskvöld og hafði í hótunum við heimilisfólkið. Heimilisfaðirinn hefur einnig verið kærður en hluti krakkanna sakar hann um að hafa reynt að keyra á sig.

Hópuðust saman við heimili samnemanda og ætluðu að taka lögin í sínar hendur
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að heimili í Garðabæ í gærkvöldi en stór hópur krakka hafði safnast saman fyrir utan það og haft í hótunum við heimilisfólkið. Aðstoðaryfirlögregluþjónn gerir ráð fyrir að heimilisfólkið leggi inn kærur á morgun og að málið verði í framhaldi unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld, enda séu krakkarnir ósakhæfir.