Fjármál heimilisins

Fréttamynd

Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi

Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. 

Neytendur
Fréttamynd

Bensínlítrinn hefur hækkað á ný

Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 

Neytendur
Fréttamynd

Segir Katrínu sparka í konuna sína

Eiginmanni framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar blöskrar að Katrín Jakobsdóttir skuli stilla sér kyrfilega upp með peningavaldinu og sparka í konuna hans í leiðinni. Katrín ávarpaði samkomu Áfram Ísland á Austurvelli í gær og sagðist myndu kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju eru allir að eyða svona miklu?

32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vaxta­hækkun sé röng og illa tíma­sett

Forseti Alþýðusambands Íslands segir vaxtahækkun við núverandi aðstæður vera ranga, illa tímasetta og leggja aukna byrði á skuldsett heimili landsins. Allt bendi til þess að forsendur kjarasamninga frá árinu 2024 bresti.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Þetta er sagt af mikilli virðingu“

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hve­nær á ég að greiða inn á lánið?

54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Líkir Trygginga­stofnun við hand­rukkara

Ingi Björn Sigurðsson hagfræðingur missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpum tveimur árum en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins; kröfur sem tvöfaldast án útskýringa.

Innlent
Fréttamynd

Að­eins 50 hafa nýtt sér með­eignarúrræðið: „Þetta eru fimm­tíu sem hafa komist í eigið hús­næði“

Fram til þessa hefur 44 kaupsamningum verið þinglýst þar sem notað er svokallað sameignarfyrirkomulag. Fyrirkomulagið hafur nú verið til staðar í tíu mánuði en HMS segir að útbreiðsla þess sé enn takmörkuð. Sjóðir sem buðu upp á slíkt sameignarfyrirkomulag spruttu upp eins og gorkúlur síðasta haust og báru heiti eins og SAFÍR20, REIR20, Kauplykill og ÞG Sjóður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Þetta kemur okkur mjög á ó­vart“

Formaður Félags eldri borgara segir lögregluna hafa brugðist manni á áttræðisaldri sem leitaði ítrekað hjálpar vegna fjárkúgunar. Hann kallar eftir því að verkferlar verði endurskoðaðir. 

Innlent
Fréttamynd

Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára

Almennt gjald fyrir útgáfu nýrra vegabréfa hækkaði úr 14 þúsund krónum í 19 þúsund krónur á milli ára. Gjald fyrir hraðafgreiðslu hækkaði um 11.200 krónur og er nú 39.200. Verðskráin hækkaði talsvert umfram verðlag til að endurspegla betur tíma og kostnað ríkisins að sögn ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Hin hag­sýna hús­móðir ársins 2026

Þegar hart er í ári leggjast heimilin á eitt við að herða sultarólina og halda fastar utan um heimilisreksturinn. Þá fyllast samfélagsmiðlar af góðum ráðum frá fólki sem hefur náð tökum á listinni að láta hverja krónu endast aðeins lengur.

Skoðun
Fréttamynd

Eru greiðsludreifingar virki­lega jafn hentugar og allir segja?

27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aftur­kalla breytinguna gegn gjaldi

Borgarráð samþykkti tillögu borgarstjóra um að afturkalla styttingu á opnunartíma frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva sem taka átti gildi í lok ágúst. Þrátt fyrir yfirlýsingu um að velta kostnaðinum ekki yfir á foreldra eru einnig lagðar til breytingar á gjaldskrá.

Innlent
Fréttamynd

„Þessu verður ekki breytt af Seðla­bankanum einum“

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt að það náist sátt á vinnumarkaði um launasvigrúm og launaskrið. Hann sé bjartsýnn fyrir haustinu þó svo að útlit sé fyrir að verðbólga verði hærri en forsenduákvæði kjarasamninga geri ráð fyrir og þeir geti því losnað. Hann segir það áhyggjuefni að það taki  ekki allir stöðunni með sömu alvöru. 

Viðskipti innlent