Ítalski boltinn
184 185 186 187 188 189 190 191 192 … 198 ›
Gangið í lið með mér eða látið lífið Claudio Ranieri byrjaði ekki glæsilega í þjálfarastarfi sínu hjá ítalska liðinu Parma, því í dag var hann látinn biðjast afsökunar á harkalegum yfirlýsingum sínum á blaðamannafundinum þegar hann tók við liðinu. Fótbolti 14.2.2007 16:10
Catania fær þunga refsingu Ítalska liðið Catana þarf að spila síðustu heimaleiki sína í ár fyrir luktum dyrum á hlutlausum velli og þá hefur félagið verið sektað um rúmlega 33 þúsund evrur. Þetta var niðurstaða ítalska knattspyrnusambandsins í dag eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum fyrir utan Massimo-völlinn í byrjun mánaðarins. Fótbolti 14.2.2007 15:51
Ranieri tekinn við Parma Claudio Ranieri var í dag skipaður þjálfari ítalska A-deildarliðsins Parma, en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Valencia fyrir tveimur árum. Ranieri stýrði áður liði Chelsea en tekur nú við starfi Stefano Pioli sem var rekinn frá Parma á dögunum. Liðið er í bullandi fallbaráttu og er í næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins 3 sigra í 22 leikjum. Fótbolti 13.2.2007 15:01
Eins og að horfa á U2 tónleika með 10 áhorfendum Blaðamaður Sports Illustrated sem fylgdist með leik Chievo og Inter Milan í ítölsku A-deildinni í gær segir að það hafi verið mjög sérstök upplifun að horfa á margar af skærustu knattspyrnustjörnum heimsins spila leik fyrir luktum dyrum. Fótbolti 12.2.2007 18:14
Mancini vill flauta tímabilið af Roberto Mancini vill að keppni í ítölsku A-deildinni verði flautuð af og látin hefjast á ný næsta haust á meðan unnið verður að því að koma öryggismálum í lag á Ítalíu. Lið hans Inter er eitt þeirra sem þarf að spila fyrir luktum dyrum um þessar mundir og því vill Mancini að liðið sem er í efsta sæti i dag verið sæmt meistaratitlinum og mótið flautað af. Fótbolti 12.2.2007 01:16
Ancelotti ánægður með Ronaldo Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, var mjög ánægður með frammistöðu brasilíska framherjans Ronaldo sem lék sinn fyrsta leik fyrir sitt nýja lið í dag eftir að hafa komið frá Real Madrid í síðasta mánuði. Ronaldo þótti frískur þann tæpa hálftíma sem hann spilaði og gladdi auga þjálfara síns. Fótbolti 11.2.2007 20:48
Ekkert lát á sigurgöngu Inter Mörk frá Adriano og Hernan Crespo tryggðu Inter Milan auðveldan sigur á Chievo í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag en um var að ræða 15. sigur liðsins í deildinni í röð. Engir áhorfendur voru á leiknum, frekar en í þremur öðrum leikjum á Ítalíu í dag. Ronaldo lék sinn fyrsta leik fyrir AC Milan. Fótbolti 11.2.2007 18:11
Getum ekki verið án stuðningsmannanna verið Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan í ítalska boltanum, er ekki sammála yfirvöldum þar í landi sem fyrr í vikunni ákváðu að ákveðnir leikvangar fengju ekki að taka á móti áhorfendum í leikjum helgarinnar. Gattuso segir að leikmenn og stuðningsmenn geti ekki þrifist án hvors annars. Fótbolti 9.2.2007 15:59
Sex leikvangar opnir fyrir áhorfendur um helgina Nú stefnir í að aðeins sex af þeim tíu viðureignum sem fyrirhugaðar eru í ítölsku A-deildinni um helgina verði fyrir framan áhorfendur, en í dag var birtur listi yfir heimavelli sem standast nýjar og hertar öryggiskröfur. Þetta eru leikvangar í Róm, Genoa, Siena, Cagliari, Tórínó og Palermo á Sikiley. Fótbolti 8.2.2007 16:57
Mikil ólga á Ítalíu í kjölfar lokunar leikvanga Eins og fram hefur komið í fréttum í dag verður mikill fjöldi leikja í ítalska boltanum á næstunni spilaður fyrir luktum dyrum eftir að öryggisreglur voru hertar gríðarlega á Ítalíu í dag. Kostnaðurinn við hvern dag sem leikjum er frestað er talinn vera um 15 milljónir evra. Fótbolti 7.2.2007 20:30
Aðeins fimm heimavellir í A-deildinni standast kröfur Aðeins fimm leikvangar í A deildinni á Ítalíu eru sagðir standast hertar öryggiskröfur sem tilkynntar verða þar í landi í dag í kjölfar harmleiksins á leik Catania og Palermo á dögunum. Þetta eru Ólympíuleikvangurinn í Róm, heimavöllur Roma og Lazio, Ólympíuleikvangurinn í Tórínó, heimavöllur Juventus og Torino, Renzo Berbera (Palermo), Luigi Ferraris (Sampdoria) og San Filippo (Messina). Fótbolti 7.2.2007 16:08
Celtic mætir Milan á tómum San Siro Ítalska knattspyrnusambandið mun í dag tilkynna úrskurð sinn í öryggismálum eftir óeirðirnar þar í landi sem kostuðu enn eitt mannslífið um daginn, en þegar hefur verið tilkynnt að 11 heimavellir í A-deildinni standist ekk nýja og stranga öryggisstaðla. fyrir luktum dyrum. Fótbolti 7.2.2007 16:03
Ítalski boltinn gæti byrjað á ný á sunnudaginn Keppni í ítalska boltanum gæti hafist á ný á sunnudag að sögn Luca Pancalli, formanns ítalska knattspyrnusambandsins. Forráðamenn félaga í A og B deildunum þar í landi hafa fundað stíft síðustu daga vegna öryggismála á knattspyrnuvöllum þar í landi í kjölfar þess að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á dögunum og ákvörðunar er að vænta á morgun. Fótbolti 6.2.2007 14:36
Ákvörðunar að vænta á morgun Ítölsk íþróttamálayfirvöld munu ákveða á morgun hvort leika eigi knattspyrnu þar í landi fyrir luktum dyrum. Útför lögreglumannsins sem lést við skyldustörf á leik Catania og Palermo á föstudag var haldin í gær. Fótbolti 5.2.2007 21:38
Lögreglumaður lét lífið í óeirðum á Sikiley Öllum leikjum í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á leik grannliðanna Catania og Palermo á Stadio Massimino. Þá hefur vináttuleik Ítala og Rúmena á miðvikudaginn einnig verið frestað. Fótbolti 3.2.2007 14:07
Gattuso framlengir við Milan Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hefur framlengt samning sinn við ítalska stórliðið AC Milan til ársins 2011 og fetaði þar með í fótspor Clarence Seedorf félaga síns, en þeir koma til með að klára ferilinn hjá félaginu. Tveir lykilmanna AC Milan fóru hinsvegar á meiðslalistann í dag. Fótbolti 1.2.2007 21:11
Ronaldo loksins farinn til Milan AC Milan náði nú rétt í þessu samkomulagi við Real Madrid um kaup á brasilíska framherjanum Ronaldo og mun landi hans Ricardo Olivera fara til Spánar í staðinn. Talið er að Ronaldo hafi kostað ítalska félagið um 8 milljónir evra, en Olivera fer sem lánsmaður á Bernabeu út leiktíðina. Félögin hafa þráttað um kaupin síðan í síðustu viku. Fótbolti 30.1.2007 15:57
Carlo Ancelotti: Ronaldo er ekki feitur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan á Ítalíu, segir að nýjasti liðsmaður félagsins, brasilíski framherjinn Ronaldo, sé alls ekki feitur heldur aðeins vel í holdum. Ancelotti segir Ronaldo einungis skorta leikæfingu og að hann þurfi ekki að grennast. Fótbolti 29.1.2007 12:46
Hvað er málið með Materazzi? Marco Materazzi, ítalski varnarmaðurinn hjá Inter Milan, hefur enn einu komið sér í sviðsljósið en í gærkvöldi varð hann þess valdur að Gennaro Delvecchio, leikmaður Sampdoria, fékk að líta rauða spjaldið í viðureign liðanna. Atvikið þykir minna óþarflega mikið á uppákomu hans og Zinedine Zidane á HM síðastliðið sumar. Fótbolti 29.1.2007 12:23
Inter vann 14. leikinn í röð Inter Milan er áfram með 11 stiga forystu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu eftir að hafa unnið sinn 14. sigur í röð í gærkvöldi. Liðið vann þá Sampdoria, 2-0, en helstu keppinautarnir í Roma gera það sem þeir geta til að halda í við Inter og unnu 1-0 sigur á Siena um helgina. Fótbolti 29.1.2007 12:08
Ronaldo: Real Madrid var helvíti Það er ekki hægt að segja að brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo kveðji herbúðir Real Madrid með söknuði, því í samtali við ítalska fjölmiðla hefur hann lýst spænska stórveldinu sem helvíti og þjálfaranum Fabio Capello sem martröð. Fastlega er búist við því að Ronaldo skrifi undir samning við AC Milan um helgina. Fótbolti 27.1.2007 13:02
Milan og Roma skildu jöfn AC Milan og Roma skildu jöfn 2-2 í fyrri leik sínum í undanúrslitum ítalska bikarsins á San Siro í kvöld. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum frá Olivera og Inzaghi, en gestirnir jöfnuðu með mikilli baráttu með mörkum frá Perotta og Pizarro. Fótbolti 25.1.2007 22:30
Ronaldo á enn eftir að standast læknisskoðun Ekki er enn búið að setja stimpilinn á kaup AC Milan á brasilíska framherjanum Ronaldo frá Real Madrid, þar sem leikmaðurinn á enn eftir að standast læknisskoðun. Forseti Milan segir að ekki komi til greina að ganga frá kaupunum nema Ronaldo sé í toppstandi, en sú hefur ekki alltaf verið raunin hjá Brassanum markheppna. Fótbolti 25.1.2007 20:02
Ronaldo farinn til Milan Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid er genginn í raðir AC Milan og er kaupverðið sagt um 6 milljónir evra. Ronaldo lék áður með Inter á Ítalíu og er því öllum hnútum kunnugur í Mílanó. Hann er þrítugur og hafði átt erfitt uppdráttar hjá Real síðan Fabio Capello tók þar við stjórnartaumum. Fótbolti 25.1.2007 13:03
Milan kaupir Massimo Oddo frá Lazio AC Milan gekk í dag frá kaupum á ítalska landsliðsmanninum Massimo Oddo frá Lazio, sem fær miðjumanninn Pasquale Foggia í staðinn og 7,75 milljónir evra. Oddo er þrítugur og er uppalinn í yngri flokkum Milan, en hefur unnið sér inn landsliðssæti síðan hann gekk í raðir Lazio árið 2002. Oddo er hægri bakvörður og mun keppa um sæti í liði Milan við gamla brýnið Cafu. Fótbolti 23.1.2007 13:40
Sigurganga Inter heldur áfram Ítalíumeistarar Inter Milan héldu áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í A-deildinni í dag þegar liðið lagði Fiorentina 3-1 eftir að hafa lent marki undir. Roma varð á í messunni og náði aðeins jafntefli við Livorno á útivelli þar sem Francesco Totti jafnaði leikinn 1-1 áður en hann var rekinn af velli í lokin. Fótbolti 21.1.2007 16:41
Emerson er til í að fara aftur til Juventus Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Real Madrid getur vel hugsað sér að snúa aftur í herbúðir ítalska liðsins Juventus ef marka má orð knattspyrnustjórans Didier Deschamps. Emerson var lykilmaður í sterku liði Juventus sem varð meistari tvö ár í röð, en gekk í raðir Real Madrid eftir að Juve var fellt niður um deild eftir Ítalíuskandalinn fræga. Fótbolti 18.1.2007 19:30
Salihamidzic fer til Juventus Bosníumaðurinn Hasan Salihamidzic hjá Bayern Munchen hefur gert samkomulag við ítalska liðið Juventus um að ganga í raðir þess næsta sumar. Salihamidzic er þrítugur og hefur verið hjá Bayern síðan árið 1998. Hann hefur samþykkt að skrifa undir fjögurra ára samning við ítalska félagið. Fótbolti 16.1.2007 14:52
Inter setti met á Ítalíu Inter Milan setti í gærkvöld met í ítölsku A-deildinni þegar liðið vann sinn 12. leik í röð. Í gær var það Torino sem lá í valnum, 3-1, en Adriano, Zlatan Ibrahimovich og Marco Materazzi skoruðu mörk Inter. Þjálfarinn Roberto Mancini vill ekki gera of mikið úr metinu. Fótbolti 14.1.2007 11:27
Fyrsta tap Juve á tímabilinu Juventus tapaði sínum fyrsta leik í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag gegn Mantova á útivelli, 1-0. Sjálfsmark frá Robert Kovac réði úrslitunum í leiknum en við tapið fellur Juventus niður í 6. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Napoli og einu stigi á eftir Mantova. Fótbolti 13.1.2007 20:03