Ítalski boltinn

Fréttamynd

Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola

Pep Guardiola virðist ætla að neita tilboði ítalska knattspyrnusambandsins um að gerast þjálfari ítalska landsliðsins. Peningakröfur Guardiola hafa verið of miklar fyrir ítalska sambandið.

Fótbolti
Fréttamynd

Segir að ítalski fót­boltinn þurfi að horfa til Spánar

Á meðan Ítalir hafa ekki tekið þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins undanfarin tólf ár þá eru nágrannar þeirra frá Spáni nýkrýndir heimsmeistarar og handhafar allra stóru titla karlafótboltans. Forseti eins af stóru ítölsku félögunum vill að ítalski fótboltinn horfi til Spánar þegar menn endurskipuleggja sig eftir vonbrigði síðustu ára.

Fótbolti
Fréttamynd

Guardiola í við­ræðum við ítalska lands­liðið

Pep Guardiola hefur verið í viðræðum við ítalska knattspyrnusambandið þar sem verið er að reyna að fá hann til að taka við ítalska landsliðinu. Liðið hefur ekki komist á heimsmeistaramótið í fótbolta þrisvar í röð sem eru gríðarleg vonbrigði fyrir landið.

Fótbolti
Fréttamynd

Amorim kynntur til leiks hjá AC Milan

Rúben Amorim hefur tekið við störfum sem aðalþjálfari AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fimm mánuðir eru liðnir frá því að hann var rekinn frá Manchester United.

Fótbolti
Fréttamynd

Amorim tekur við AC Milan

Rúben Amorim, fyrrverandi aðalþjálfari Manchester United, hefur samþykkt að verða næsti þjálfari ítalska stórveldisins AC Milan og mun formlega skrifa undir samning þess efnis í þessari viku.

Fótbolti
Fréttamynd

For­seti FIFA móðgaði Ítali

Gianni Infantino, forseti FIFA, vakti mikið uppnám á Ítalíu eftir að hann gerði grín að lélegum árangri Ítalíu á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Það er óhætt að segja að honum hafi tekist að móðga Ítala.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ég verð að spila“

Federico Chiesa íhugar að yfirgefa Liverpool til að spila meiri fótbolta. Hann mun taka stöðuna með nýjum stjóra þegar undirbúningstímabilið fer af stað.

Enski boltinn
Fréttamynd

HM-hetja mun stýra Alberti

Allt útlit er fyrir að Fabio Grosso verði næsti þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Fiorentina og þar með þjálfari landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar.

Fótbolti
Fréttamynd

Allegri lík­legastur til að taka við af Conte

Þjálfarahringekjan í ítalska boltanum þetta sumarið er formlega hafin. Massimiliano Allegri, sem var rekinn frá AC Milan í gær, þykir líklegastur til að taka við starfi Antonio Conte, sem hætti hjá Napoli um helgina.

Fótbolti
Fréttamynd

Allegri og allir stjórn­endur AC Milan reknir

Eigendur AC Milan eru allt annað en sáttir eftir að félaginu mistókst að komast í Meistaradeild Evrópu með því að hafna í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar eftir lokaumferð gærdagsins. Allir æðstu prestar klúbbsins hafa verið reknir.

Fótbolti