
Náttúruhamfarir

Þúsundir á flótta vegna eldsumbrota í Austur-Kongó
Stríður hraunstraumur rann inn í þorp skammt frá Nyiragongo-eldfjallinu í Austur-Kongó í nótt. Minnst fimmtán eru látin vegna hamfaranna og yfir fimm hundruð heimili eru brunnin.

Tuttugu maraþonhlauparar fórust í stormi
Tuttugu og einn maraþonhlaupari fórst eftir að hafa lent í stormi í norðvesturhluta Kína. Hlaupararnir voru að hlaupa hundrað kílómetra últramaraþon í Gulársteinaskóginum í Gansu-héraðinu í gær.

Veðurhamfarir hrekja flesta á flótta innan eigin lands
Átök og náttúruhamfarir leiddu til þess að einhver neyddist til að flýja innan eigin lands á hverri sekúndu á síðasta ári.

Tauktae gengur á land í miðjum kórónuveirufaraldri
Íbúar í Gujarat héraði á Indlandi búa sig nú undir fellibylinn Tauktae en sérfræðingar telja að um sé að ræða mesta óveður sem gengið hefur yfir svæðið síðan 1998.

Hyggjast losa kælivatnið úr Fukushima Daiichi í sjóinn eftir tvö ár
Stjórnvöld í Japan hyggjast hefja losun meðhöndlaðs geislamengaðs vatns úr Fukushima Daiichi-kjarnorkuverinu í sjóinn eftir tvö ár. Losuninni hefur verið frestað ítrekað, meðal annars vegna mótmæla veiðimanna á svæðinu og nágrannaríkja.

Fjallaskíðakappi lenti í snjóflóði í Skálafelli
Betur fór en á horfðist á öðrum tímanum í dag þegar fjallagönguskíðamaður lenti í snjóflóði í Skálafelli. Sjúkrabíll, lögregla og björgunarsveitir voru send strax á staðinn.

Mikið manntjón vegna fellibylsins Seroja
Að minnsta kosti 157 eru látin og tuga er enn saknað eftir að fellibylurinn Seroja gekk yfir Indónesíu og nágrannaríkið Tímor-Leste á sunnudag.

Fimm látnir eftir að skýstrókar gengu yfir í Alabama
Að minnsta kosti fimm eru látnir og fjöldi slasaðist eftir að skýstrókar gengu yfir svæði í Alabama í Bandaríkjunum í gær.

Mikil flóð í Nýja Suður-Wales
Um átján þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Ástralíu vegna mikilla flóða í Nýja Suður-Wales en gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu síðustu daga.

Tryggingar gegn náttúruhamförum
Náttúruöflin hafa svo sannarlega minnt á sig að undanförnum misserum. Nýliðið ár hófst með snjóflóðum á Flateyri og lauk með aurskriðum á Seyðisfirði. Undanfarnar vikur hafa einkennst af stöðugum jarðskjálftum á Reykjanesskaga sem búa okkur undir frekari jarðhræringar og jafnvel eldgos.

Á tíu ára afmæli flóðbylgjunnar; lærdómur sögunnar gildir í dag
Á þessum degi fyrir tíu árum stóð japönsk kona á áttræðisaldri, Nobuku Kono, frammi fyrir erfiðu vali. Hún bjó í Rikuzen-takata, 24 þúsund manna bæ sem var byggður sitt hvoru megin við árfarveg við sjávarströndina norðarlega í Japan. Það hafði orðið harður jarðskjálfti og hún þurfti að ákveða hvort hún gerði eins og stjórnvöld ráðlögðu og leitaði skjóls í fjöldahjálparstöð í skólabyggingu innar í dalnum.

Lýsir yfir neyðarástandi á Hawaii vegna flóða
Gríðarlegt úrhelli síðustu daga og flóð hafa valdið talsverðri eyðileggingu á eyjum Hawaii og hefur ríkisstjórinn David Ige nú lýst yfir neyðarástandi. Búist er við að úrhellinu sloti ekki fyrr en á föstudag.

Ekki sjálfgefið að innbúið sé tryggt fyrir tjóni sem verður í náttúruhamförum
Lauslega áætlað er talið að allt að þrjátíu prósent innbúa og lausafjár heimila og fyrirtækja hér á landi séu ekki tryggð fyrir tjóni sem getur orðið vegna náttúruhamfara.

Hættustigi aflýst á Seyðisfirði og óvissustigi á Austfjörðum
Hættustigi hefur verið aflýst á Seyðisfirði og einnig óvissustigi vegna ofanflóða á Austfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóran um á Austurlandi.

Gríðarleg eyðilegging og yfir hundrað slasast vegna skjálftans
Á annað hundrað eru slösuð eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,3 reið yfir Japan. Skjálftinn átti upptök sín skammt undan austurströnd landsins og reið yfir klukkan 23 að staðartíma í gær eða um klukkan 14 síðdegis í gær.

Fjórtán látnir eftir flóðbylgjuna á Indlandi
Björgunarmenn á vegum indverska hersins leita nú að fólki sem talið er að hafi lent í flóðbylgju sem framkallaðist þegar hluti af jökli brotnaði í Himalya-fjöllunum.

Upplifir sorg en á sama tíma létti að missa heimilið
Íbúi á Seyðisfirði segist finna bæði fyrir létti og sorg yfir því að mega ekki lengur búa í húsi sínu vegna skriðuhættu. Erfitt muni reynast að finna annað húsnæði í bænum sem er að stórum hluta á hættusvæði.

Óttast skriður úr hlíðum sem áður töldust öruggar vegna hlýnunar
Vísindamenn óttast að skriðuföll úr hlíðum hér á landi sem áður töldust öruggar vegna hlýnandi veðurfars. Stórauka þurfi rannsóknir á sífrerum til fjalla og verði fólk vart við breytingar í hlíðum í sínu umhverfi ætti að láta umsvifalaust vita.

Hafa opnað veginn yfir Jökulsá á Fjöllum
Vegurinn yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið opnaður á ný en með takmörkunum. Veginum var lokað í gær vegna vísbendinga um að hreyfing væri komin á klakastífluna sunnan við brúna yfir ána.

Aukin fjárframlög skipti sköpum við að hraða uppbyggingu varnarvirkja
Framlög í Ofanflóðasjóð hafa verið aukin um 1,6 milljarða á ári næstu fjögur árin. Starfsmaður sjóðsins segir það skipta sköpum við að hraða uppbyggingu varnarvirkja.

Ekki hægt að útiloka að aðrar stíflur séu að myndast
Vatnshæð við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur lækkað frá því síðdegis í gær og gæti bent til þess að áin sé hægt og rólega að losa um krapann á yfirborðinu. Farið verður í eftirlitsflug nú síðdegis til að kanna betur aðstæður í ánni. Ekki sé hægt að útiloka að aðrar stíflur séu að myndast í ánni.

Vísbendingar um að hreyfing sé komin á klakastífluna
Þjóðvegi 1 frá Námaskarði að gatnamótum Vopnafjarðarafleggjara hefur verið lokað þar sem vísbendingar eru um að hreyfing sé komin á klakastífluna sunnan við brúna sem fer yfir Jökulsá á Fjöllum.

„Ég fékk sömu tilfinningu, að við myndum aldrei lifa þetta af"
Rýma átti hús mun fyrr á Seyðisfirði að mati hjóna í ljósi þess að aldrei hafði mælst meiri rigning á Íslandi dagana fyrir aurskriðurnar. Þegar hættumat var kynnt var tekið fram að mikil hætta yrði ekki yfirvofandi nema í hamfararigningu.

Ógnin í fjallinu
Ofanflóð á Flateyri og Seyðisfirði í fyrra hafa minnt Íslendinga rækilega á að baráttunni við að verja byggðir landsins er hvergi nærri lokið. Þrátt fyrir aukið eftirlit og uppbyggingu varnarvirkja mátti litlu muna að manntjón yrði.

Sérfræðingar farnir norður og geta metið stöðuna á morgun
Vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum er enn yfir þröskuldi Veðurstofu Íslands. Vatnshæðin náði hámarki um klukkan tíu í gærmorgun og var þá 530 sentímetrar, eða tíu sentimetrum yfir þröskuldinum. Veðurstofan hefur sent sérfræðinga norður en áætlað er að þeir geti metið stöðuna í ánni á morgun.

Vatn í Jökulsá fór yfir vatnshæðarþröskuldinn
Í kringum miðnætti í nótt fór vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum yfir vatnshæðarþröskuldinn, 520 sentimetra. Vatnshæðin hefur hækkað hægt og rólega síðan um klukkan þrjú síðdegis í gær.

Lýsa yfir óvissustigi vegna krapastíflu og flóðahættu
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna krapastíflu og flóðahættu í Jökulsá á Fjöllum, á milli Mývatnssveitar og Egilsstaða.

Syllan brytjuð niður með vinnuvélum
Unnið hefur verið að því síðdegis og í kvöld að brjóta niður stærðarinnar snjósyllu fyrir ofan Vesturfarasetrið á Hofsósi. Lögreglan á Norðurlandi vestra lokaði hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna stærðarinnar sprungu í snjólögum sem uppgötvaðist fyrir ofan setrið í gærkvöldi, fyrir árvekni ungs pilts.

Bara krapi svo langt sem augað eygir
Á morgun verður hafist handa við að ýta út krapa sem hefur safnast við veginn við Jökulsá á Fjöllum. Í gær þurfti að loka þjóðvegi eitt milli Mývatns og Egilsstaða vegna krapastífllu sem flæddi yfir veginn.

Óttast að krapastífla sé á fleiri stöðum í Jökulsá
Verkstjóri á Húsavík sem staddur er við Krapastífluna við Jökulsá á Fjöllum óttast að fleiri krapastíflur séu í ánni. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á leiðinni með dróna til að ná betri yfirsýn.