Hernaður
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 54 ›
Felldu tugi hermanna með HIMARS Úkraínumenn eru sagðir hafa fellt tugi rússneskra hermanna með HIMARS árás á þjálfunarstað í austurhluta Úkraínu. Myndefni af vettvangi sýnir fjölda líka á víð og dreif. Erlent 21.2.2024 16:00
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. Erlent 21.2.2024 13:33
Saka Rússa um að myrða særða stríðsfanga í Avdívka Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að taka særða úkraínska hermenn af lífi í borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Mennirnir voru skildir eftir þegar úkraínski herinn yfirgaf borgina en forsvarsmenn hersins segja að samið hafi verið við Rússa um að hlúa að mönnunum, þar sem ekki var hægt að flytja þá á brott vegna meiðsla þeirra. Erlent 20.2.2024 17:02
Rússneskur „svikari“ myrtur á Spáni Rússneskur flugmaður sem lenti herþyrlu sinni í Úkraínu og gafst upp fyrir úkraínskum hermönnum, var myrtur á Spáni í síðustu viku. Maxim Kusmínóv var skotinn að minnsta kosti sex sinnum og síðan var ekið yfir hann. Erlent 20.2.2024 12:34
Hvíta húsið reiðubúið til að sjá Úkraínu fyrir langdrægum vopnum Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður reiðubúinn til að senda Úkraínumönnum langdrægar eldflaugar ef þingið samþykkir aukna fjárhagsaðstoð til handa Úkraínu. Erlent 20.2.2024 07:16
Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. Erlent 19.2.2024 18:50
Hóta innrás í Rafah fyrir Ramadan ef gíslarnir verða ekki látnir lausir Benny Gantz, sem er fyrrverandi yfirmaður hjá hernum og situr nú í herráði Ísrael, segir Ísraelsmenn munu láta til skarar skríða í Rafah fyrir Ramadan ef Hamas láta ekki þá gísla sem enn eru í haldi samtakanna lausa. Erlent 19.2.2024 06:48
Rússar náðu yfirráðum í lofti yfir Avdívka Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Erlent 18.2.2024 17:05
Ætlar ekki að hætta við innrás í Rafah Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Rúm milljón Palestínumanna hefur flúið þangað undan átökum Ísraela og Hamas-liða sem hafa valdið gífurlegum skaða á svæðinu lokaða. Erlent 18.2.2024 11:19
Avdívka alfarið í höndum Rússa Oleksandr Sirskí, nýr yfirmaður herafla Úkraínu, tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði skipað úkraínskum hermönnum að hörfa alfarið frá borginni Avdívka og koma ætti upp nýjum og betri varnarlínum vestur af borginni. Erlent 17.2.2024 16:00
Úkraínumenn að hörfa frá Avdívka Úkraínskir hermenn virðast vera að hörfa frá borginni Avdívka eða hluta hennar, í austurhluta Úkraínu, eftir umfangsmiklar árásir Rússa á borgina frá því í október. Skotfæraleysi hefur leikið úkraínska hermenn grátt á undanförnum vikum en Úkraínumenn eru sömuleiðis sagðir glíma við skort á hermönnum. Erlent 16.2.2024 14:19
„Ef þið borgið ekki, ætla ég ekki að verja ykkur“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, ítrekaði í gær að ef hann sneri aftur í Hvíta húsið, myndi hann ekki koma ríki í Atlantshafsbandalaginu til varnar í tilfelli árásar, nema þetta tiltekna ríki „borgaði“. Erlent 15.2.2024 15:46
Yfirmaður Svartahafsflotans rekinn Viktor Sókolóv, yfirmaður Svartahafsflota Rússlands, er sagður hafa verið rekinn úr embætti. Er það í kjölfar þess að Úkraínumenn sökktu rússnesku herskipi með drónum undan ströndum Krímskaga. Erlent 15.2.2024 15:01
Rússar þrói kjarnavopn í geimnum Bandarísk yfirvöld óttast að Rússar muni vilja koma kjarnavopnum umhverfis sporbaug. Ætlunin yrði að beita þeim gegn gervihnöttum en tæknin er nú í þróun í Rússlandi. Erlent 14.2.2024 23:39
Setja á herskyldu til að snúa vörn í sókn Herforingjastjórn Mjanmar stefnir að því að koma á herskyldu í landinu. Hernum hefur gengið illa gegn uppreisnarhópum sem hafa sótt fram víða um landið á undanförnum mánuðum. Erlent 14.2.2024 15:51
Sökktu enn einu herskipinu með drónum Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af sjálfsprengidrónaárás á rússneska herskipið Sesar Kúnikov. Skipið virðist hafa sokkið eftir árásina en þetta er fjórða skipið af þessari gerð sem Úkraínumenn hafa sökkt eða grandað. Erlent 14.2.2024 09:56
Segir hamfarir myndu fylgja í kjölfar innrásar Ísraelsmanna Enn eykst þrýstingur á Ísraelsmenn um að falla frá áformum sínum um að ráðast inn í Rafah í suðurhluta Gasa en Martin Griffiths, yfirmaður mannúðarmála og neyðaraðstoðar hjá Sameinuðu þjóðunum, segir afleiðingarnar yrðu hamfarir. Erlent 14.2.2024 06:54
Gera aðra tilraun með hernaðaraðstoð Bandarískir öldungadeildarþingmenn samþykktu í dag frumvarp um 95,3 milljarða dala hernaðaraðstoð til Úkraínu, Ísraels og Taívan auk mannúðaraðstoðar til Palestínumanna. Frumvarpið var samþykkt eftir næturlangt málþóf nokkurra þingmanna Repúblikanaflokksins. Erlent 13.2.2024 13:34
„Komast hvert? Til tunglsins? Hvert á að flytja þetta fólk?“ Leiðtogar á Vesturlöndum virðast vera að missa þolinmæðina gagnvart Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, og aðgerðum Ísraelshers á Gasa. Erlent 13.2.2024 06:44
Sprengjuregn á Rafah og tveimur gíslum bjargað Ísraelar segjast hafa bjargað tveimur gíslum sem verið hafa í haldi Hamas samtakanna frá því í október. Erlent 12.2.2024 07:13
Skipar hernum að tæma Rafa fyrir innrás Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur skipað ísraelska hernum að gera áætlun um brottflutning allra íbúa frá Rafah. Það á að gera áður en gerð verður allsherjar innrás í borgina en þangað hafa fjölmargir íbúar Gasastrandarinnar flúið á undanförnum mánuðum. Erlent 9.2.2024 16:34
Tusk segir Repúblikönum að skammast sín Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Repúblikönum í öldungadeild Bandaríkjaþings að skammast sín. Er það í kjölfar að þingmennirnir felldu frumvarp sem þeir höfðu sjálfir beðið um og komið að því að semja. Það frumvarp sneri meðal annars að hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Erlent 8.2.2024 16:02
Felldu einn af leiðtogum Kataib Hezbollah í drónaárás Einn af æðstu leiðtogum vígahópsins Kataib Hezbollah var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna í Bagdad í Írak í gær. Hann er sagður hafa komið með beinum hætti að skipulagningu og framkvæmd árása á bandaríska hermenn í Írak, Sýrlandi og Jórdaníu. Erlent 8.2.2024 09:46
Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. Erlent 7.2.2024 06:52
Úkraínskir sérsveitarmenn sagðir berjast gegn Wagner í Súdan Úkraínskir sérsveitarmenn eru sagðir hafa um nokkuð skeið barist gegn málaliðum Wagner-Group. Nýtt myndband sem úkraínskur fjölmiðill hefur birt er sagt sýna rússneskan málaliða og meðlimi sveita sem kallast RSF í haldi úkraínskra sérsveitarmanna á vegum leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR). Erlent 6.2.2024 17:01
Um 130 sagðir hafa látist í árásum Ísraelshers á Rafah Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) segir að minnsta kosti 20 Palestínumenn hafa látist um helgina í loftárásum Ísraelshers á Rafah. Erlent 5.2.2024 06:57
Segja aðgerðum í Khan Younis að ljúka og beina sjónum að Rafah Ísraelsher er nú að ljúka aðgerðum sínum í Khan Younis, þar sem tekist hefur að uppræta Hamas, og mun næst beina sjónum sínum að Rafah. Erlent 2.2.2024 06:33
Vill losa herinn við úreltan hugsunarhátt Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir úkraínska herinn standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þó sé hægt að komast í gegnum þá með því að endurhugsa hernaðaraðgerðir og losa herinn við úreltan hugsunarhátt og herinn þarf að sníða stakkinn eftir vexti, vegna samdráttar í hernaðaraðstoð. Erlent 1.2.2024 22:01
Þurfa árið til að snúa vörn í sókn Ástandið á vígvöllum í austanverðri Úkraínu hefur færst Rússum í vil á undanförnum mánuðum. Rússar hafa mun meira af skotfærum fyrir stórskotalið, eiga fleiri skrið- og bryndreka og eiga auðveldar með að fylla upp í raðir sínar vegna mannfalls. Erlent 31.1.2024 22:30
Einn leiðtoga Hamas segir nýjar vopnahléstillögur til skoðunar Ismail Haniyeh, einn af leiðtogum Hamas, segir samtökin nú liggja yfir nýjum tillögum að vopnahléi á Gasa. Tillögurnar fela í sér lausn gísla og voru lagðar fram að milligönguaðilum eftir viðræður við Ísrael. Erlent 31.1.2024 07:31