
Jón Ingi Hákonarson

Hraðari málsmeðferð og einfaldara regluverk á byggingamarkaði er lykilatriði
Stóra verkefni íslensks efnahagslífs og stjórnmála næstu ár verður að koma húsnæðismarkaðnum í jafnvægi. Byggingastarfsemi er stór hluti efnahagslífsins og nam um 9% vergrar landsframleiðslu fyrir Covid og um 8% vinnuafls. Í tímans rás hefur húsnæðismarkaðurinn sveiflast mikið, mun meira en í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Ákall til alþingismanna
Staðreynd: Rekstur leikskóla er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. En það ætti að vera það. Það er undir Alþingi að lögfesta slíkt og tryggja fjármögnun fyrsta skólastigsins.

Húsnæðisvandinn eins og hann birtist bæjarfulltrúa í Hafnarfirði
Ég settist í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sumarið 2018 og fyrsta eina og hálfa árið stóðum við andspænis þeim veruleika að stórum hluta lóða sem bæjarráð úthlutaði til einstaklinga var skilað til baka að skömmum tíma liðnum.

Borgar borgarlínan sig?
Heilbrigð þétting byggðar getur ekki orðið að veruleika án Borgarlínunnar í Hafnarfirði. Slík þétting er forsenda fyrir lifandi og áhugaverðum bæ sem getur laðað að sér fyrirtæki og fólk.

Viðreisn vill faglega ráðinn bæjarstjóra næsta kjörtímabil
Stærsta áskorun næsta kjörtímabils verður að koma rekstri Hafnarfjarðarbæjar í jafnvægi. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar skilar af sér þröngu búi þar sem reglulegar tekjur eru langt frá því að standa undir reglulegum útgjöldum.

Hafnarfjörður getur orðið ríkasta sveitarfélag landsins
Tækifærin eru oft nær en okkur grunar. Hafnarfjörður hefur tækifæri til þess að koma sér í öfundsverða stöðu á tveimur áratugum. Óslípaði demantur okkar Hafnfirðinga eru Óttastaðir handan Álversins í Straumsvík.

Er Hafnarfjörður að breytast úr fallegu sjávarþorpi í úthverfi Reykjavíkur?
Er hagkvæmt að þenja út byggðina? Stutta svarið er nei. Langa svarið er að það er hagkvæmt fyrir verktakana en fyrir sveitarfélagið Hafnarfjörð og íbúa þess er það mjög dýrt. Það er rándýrt að vera með lengra gatnakerfi sem þarf að moka og halda við.

Meiri samvinnu, meiri hagræðingu, meiri Viðreisn
Sveitarfélögin á höfðuborgarsvæðinu eiga að vinna miklu meira saman. Það eru gríðarlega mikil tækifæri til hagræðingar á nánast öllum sviðum. Það er mikil sóun falin í því að hvert einasta sveitarfélag sé að vinna frá grunni stefnu í einstaka málaflokkum.

Ábyrg fjármálastjórn? Kanntu annan betri?
Sjálfstæðisflokkarnir tveir, sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, hreykja sér mjög nú í aðdraganda kosninga af ábyrgri fjármálastjórn og láta í veðri vaka að engum öðrum sé treystandi fyrir skattpeningum Hafnfirðinga. Þessari hendingu fylgir aldrei skilgreining á ábyrgri fjármálstjórn né heldur góðum raundæmum um slíka fjármálastjórn.

Það keppir enginn í maraþonhlaupi með sementspoka á bakinu
Eitt aðaleinkenni íslensks atvinnulífs og Íslendinga almennt er dugnaður og útsjónarsemi. Í aldanna rás hafa Íslendingar unnið baki brotnu og tekist að byggja upp gott samfélag þar sem fólk hefur það almennt nokkuð gott þó auðvitað séu hér hópar sem hafa verið skildir eftir.

Rússibani stöðugleikans
Það er auðvelt að fela óstöðugleikann með verðtryggingunni.

Af skeinipappír og öryggiskennd
Ég, eins og margir Íslendingar, keyri beinustu leið í Costco og kaupi mér skeinipappír í hvert sinn sem áföll dynja á, hvort heldur eldfjöll gjósi eða landamæri lokist vegna heimsfaraldurs. Ekki það að mig skorti skeinipappír, þessi ósjálfráðu viðbrögð veita mér öryggiskennd. Hún er ómetanleg.

Ísland, land fákeppninnar
Það sem skiptir felst heimili landsins miklu máli er aukinn kaupmáttur og auknar ráðstöfunartekjur. Stærstu útgjaldaliðir heimila eru skattar, fasteignalán eða leiga, vextir, dagvara og tryggingar.

Kvótakerfið og veiðigjaldið er sitt hvor hliðin á sama peningi
Kvótakerfið og veiðigjaldið er sitt hvor hliðin á sama peningi. Kvótakerfið er heimild útgerða til að veiða ákveðinn hluta leyfilegs afla og veiðigjaldið er árgjaldið sem greitt er, enda eðlilegt að greitt sé fyrir aðgang að takmarkaðri náttúruauðlind.

Hvað eiga veiðigjöldin að vera há?
Upphæð veiðigjalds hefur um langt skeið verið þrætuepli manna á meðal. Er það of lágt eða er það of hátt? Það er erfitt að segja án þess að hafa mælistiku sem hægt er að sammælast um.

Áskorun til fyrirtækja landsins
Það eru þúsundir landsmanna að sækja um auglýst störf um þessar mundir. Því miður örlar á því að fyrirtæki hafi ekki fyrir því að svara fólki. Það að fá engin viðbrögð við áhuga sínum á starfi er niðurbrjótandi og dregur kraftinn úr atvinnuleitendum.

Ég óska engum þess að vera uppi á áhugaverðum tímum
„Ég óska engum þess að vera uppi á áhugaverðum tímum“ sagði vitur maður hér einu sinni og við lifum svo sannarlega á áhugaverðum tímum. Við stöndum í anddyri þriðju byltingar mannkynsins, tæknibyltingarinnar, heimurinn verður ekki áhugaverðari en það.

Sagan af krumpaða miðanum
Lífið er dásamlegt ferðalag og merkilegt að upplifa það þegar gamall krumpaður minnismiði geti, áratugi eftir að hafa legið ofan í kassa í kjallara, lifnað við og orðið partur af hreyfiafli samfélagslegra álitaefna og samtals.

Borgarlínan – Bein leið
Borgarlínan er eitt viðamesta verkefnið sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið að í sameiningu. Frumdrög fyrsta kafla hafa nú litið dagsins ljós og því mikilvægt að sveitarfélögin styðji vel við verkefnið og og bregðist hratt við breytttum aðstæðum hverju sinni.

Kjörin leið til að viðhalda krónunni er að selja ríkisbankana
Ég, eins og svo margir, er með varann á mér þegar bankasölur ber á góma því sporin hræða. Bankakerfi síðustu aldar var pólitískt valdatæki þar sem útvaldir fengu lán og fyrirgreiðslu. Á tímum óðaverðbólgu var lán ígildi gjafar.

Flytjum störf en ekki stofnanir út á land
Það er of algengt að ráðherrar taki það upp hjá sjálfum sér að flytja heilu stofnanirnar í kjördæmin sín með öllu því raski sem því fylgir á starfseminni. Niðurstaðan er oft sú að mikilvæg þekking, reynsla og mannauður tapast með þeim afleiðingum að mörg ár getur tekið að gera brottfluttar stofnanir öflugar og skilvirkar á ný.

Þversögnin
Þversögn krónunnar er sú að það er auðvelt að ávaxta hana hratt og örugglega til skamms tíma. Hún er verðtryggð á háum vöxtum í efnahagskerfi sem sveiflast meira en önnur kerfi.

Ég myndi hlæja ef þetta væri ekki svona sorglegt
Nýlega birtust fréttir af áhuga Samherja á fiskeldi í Helguvík, verkefni sem mun auka gríðarlega framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Rafvæðing hafna og skipaflotans er einnig risaverkefni sem mun auka framtíðartekjumöguleika HS Veitna.

Fátæktargildran: Hin blóðuga sóun
Fyrir þó nokkru heyrði ég mætan mann segja að þjóð þyrfti að telja að minnsta kosti fimm milljónir manna til þess að hún áttaði sig á því að hún væri smáþjóð.

Fátæktargildran
Ég tel að leikreglurnar séu ósanngjarnar og margt í okkar ágæta kerfi vinni gegn venjulegu, harðduglegu launafólki. Birtingarmynd stærsta vandans er sú staðreynd að ævilaun allt of margra Íslendinga duga ekki fyrir skuldlausri fasteign við starfslok.

Við viljum bjóða þrjátíuþúsundasta íbúa Hafnarfjarðar velkominn…………..aftur
Undanfarin ár hafa verið mikill vaxtartími á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúum á SV horninu hefur fjölgað mikið. Íbúum Hafnarfjarðar hefur hreinlega fækkað um 0,7% á árinu 2020.