Ástin á götunni
211 212 213 214 215 216 217 218 219 … 334 ›
Íslenska landsliðið er enn efst á lista Arons Framherjinn Aron Jóhannsson vakti á dögunum mikla athygli þegar hann skoraði sex mörk í aðeins tveimur leikjum með AGF í dönsku úrvalsdeildinni. Í fyrri leiknum skoraði hann þrennu á tæpum fjórum mínútum sem er met. Afrek hans vöktu víða athygli, ekki síst í Bandaríkjunum þar sem Aron er fæddur. Fótbolti 12.9.2012 20:08
Utan vallar: Upp með hausinn og áfram gakk! Íslenskir knattspyrnuáhugamenn eru búnir að fara allan tilfinningaskalann síðustu daga. Fyrst vannst frábær sigur á Norðmönnum, sem hleypti mestu bjartsýnismönnum á mikið flug, en í kjölfarið fylgdi skellur á Kýpur sem kom öllum niður á jörðina. Þó svo tapið gegn Kýpur hafi verið sárt og leikurinn hreinasta hörmung hjá íslenska liðinu þá eru knattspyrnuáhugamenn almennt jákvæðir fyrir íslenska liðinu. Það er líka full ástæða til. Íslenski boltinn 12.9.2012 20:08
Sjöunda tapið í röð hjá 21 árs landsliðinu - töpuðu 0-5 í Belgíu Íslenska 21 árs landsliðið lék sinn síðasta leik í undankeppni EM í kvöld þegar strákarnir hans Eyjólfs Sverrissonar töpuðu 5-0 á móti Belgíu í Freethiel. Íslenska liðið vann Belga í fyrsta leiknum sínum í riðlinum en tapaði síðan sjö síðustu leikjunum sínum með markatölunni 2-20. Íslenski boltinn 10.9.2012 19:59
Miðverðir í bakvarðarstöðunum á móti Belgum í kvöld Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari hjá 21 árs liði karla í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt fyrir leikinn á móti Belgíu í kvöld en þetta er lokaleikur íslenska liðsins í undankeppni EM. Íslenski boltinn 10.9.2012 16:44
Völsungur hársbreidd frá sæti í 1. deildinni Völsungur þarf aðeins eitt stig til viðbótar til að tryggja sæti sitt í 1. deild karla að ári. Liðið vann 1-0 sigur á Fjarðabyggð í dag. Fótbolti 9.9.2012 15:58
Víkingur Ó færist nær Pepsi-deildinni | ÍR fallið Víkingur frá Ólafsvík er kominn með annan fótinn í Pepsi-deild karla eftir 1-0 sigur á ÍR í dag. ÍR-ingar eru fyrir vikið fallnir úr 1. deildinni. Fótbolti 8.9.2012 16:09
Lagerbäck: Enginn njósnari á æfingu Norðmanna Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, gaf lítið fyrir spurningar norskra blaðamanna í morgun sem vildu vita hvort að hann ætlaði reyna að afla sér upplýsinga um æfingar norska liðsins. Fótbolti 6.9.2012 13:01
Kolbeinn verður ekki með á móti Noregi og missir líka af Kýpurleiknum Kolbeinn Sigþórsson, framherji Ajax og íslenska landsliðsins, verður ekki með landsliðinu í fyrstu leikjum liðsins í undankeppni HM 2014. Þetta staðfesti landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck á blaðamannafundi í dag. Íslenski boltinn 6.9.2012 12:02
Sparkaði ekki í bolta í rúma tvo mánuði en það dugði ekki til Margrét Lára Viðarsdóttir, aðalmarkaskorari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður ekki með í lokaleikjum íslenska liðsins í undankeppni EM 2013. Þetta eru leikir á móti Norður-Írlandi og Noregi og þar geta íslensku stelpurnar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð á næsta ári. Það er mikið áfall fyrir landsliðið að vera án markadrottningarinnar í þessum mikilvægu leikjum. Íslenski boltinn 5.9.2012 17:42
Kolbeinn enn í Hollandi | Fer í læknisskoðun á morgun Kolbeinn Sigþórsson er enn í Hollandi og mun á morgun hitta sérfræðing til að meta meiðsli hans. Ísland leikur gegn Noregi á föstudagskvöldið. Íslenski boltinn 4.9.2012 12:11
Eyjólfur: Viljum gefa yngri leikmönnum reynslu Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðs karla, segir að hann hafi kosið frekar að gefa yngri leikmönnum tækifæri í lokaleik Íslands í riðlinum en að velja bestu leikmennina sem völ er á. Íslenski boltinn 3.9.2012 12:11
Enn tapar ÍR | KA vann Þrótt ÍR-ingar töpuðu í kvöld sínum þrettánda leik á tímabilinu í 1. deild karla er liðið fékk Hauka í heimsókn. Hafnfirðingar unnu leikinn, 2-0. Íslenski boltinn 31.8.2012 20:20
Góður möguleiki í báðum leikjum Ísland á góðan möguleika á að leggja bæði Noreg og Kýpur að velli í fyrstu landsleikjum liðsins í undankeppni HM 2014 að mati þjálfarans Lars Lagerbäck. Óvissa ríkir um þátttöku Kolbeins Sigþórssonar. Íslenski boltinn 28.8.2012 16:22
Þórsarar með myndarlegt forskot á toppnum Þór frá Akureyri vann í kvöld öruggan 4-0 sigur á Tindastóli í 1. deild karla og er fyrir vikið í afar góðri stöðu á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 28.8.2012 20:23
Leiknismenn jöfnuðu í lokin og Víkingar komust ekki á toppinn Víkingar úr Ólafsvík voru aðeins þremur mínútum frá því að komast í toppsæti 1. deildar karla í kvöld þegar þeir heimsóttu Leiknismenn í Efra-Breiðholtið. Leiknismenn jöfnuðu í lokin og tryggðu sér 1-1 jafntefli og mikilvægt stig í fallbaráttunni. Þróttarar eru enn með í baráttunni um sæti í Pepsi-deild karla næsta sumar eftir 1-0 sigur á botnliði ÍR. Íslenski boltinn 24.8.2012 20:36
Garðar ekki með gegn ÍA í kvöld | Slasaði sig í handbolta Garðar Jóhannsson, framherjinn öflugi í liði Stjörnunnar, verður ekki með í leiknum gegn ÍA í Pepsideild karla í kvöld vegna afar sérstakra meiðsla. Íslenski boltinn 23.8.2012 12:57
Norðmenn búnir að færa Íslandsleikinn yfir á Ulleval Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mun berjast við Belgíu og Noreg um sæti í úrslitakeppni EM í Svíþjóð í haust og einn af mikilvægustu leikjunum er lokaleikur Noregs og Íslands 19. september næstkomandi. Norðmenn eru nú búnir að færa Íslandsleikinn yfir á Ulleval en það kemur fram í frétt inn á heimasíðu Knattspyrnusambandsins. Íslenski boltinn 22.8.2012 15:02
Þór og Víkingur Ó. færast nær Pepsí deildinni Topplið fyrstu deildar karla í fótbolta, Þór og Víkingur frá Ólafsvík unnu bæði leiki sína í kvöld þegar 17. umferð deildarinnar lauk með fimm leikjum. Þór sigraði ÍR á útivelli 2-1 og Víkingur Ó. sigraði Hauka á heimavelli sínum 2-0. Fjölnir sem er í þriðja sæti sigraði einnig sinn leik. Fótbolti 21.8.2012 20:27
BÍ/Bolungarvík slökkti í vonum Þróttar BÍ/Bolungarvík sigraði Þrótt á heimavelli sínum í kvöld 2-0 í 1. deild karla í fótbolta. Með sigrinum er sæti BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni svo gott sem tryggt en Þróttur á nú litla möguleika á að komast upp í Pepsí deildina. Fótbolti 21.8.2012 20:07
Andri Marteins rekinn frá ÍR | Nigel Quashie tekur við Andra Marteinssyni hefur verið vikið úr starfi sem þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR. Fótbolti.net greinir frá þessu. Íslenski boltinn 21.8.2012 15:12
Þróttarar á miklu skriði í 1. deildinni - sjáið mörkin í skellinum á toppliðinu Þróttarar ætla að vera með í baráttunni um sæti í Pepsi-deildinni næsta sumar þótt að liðið hafi aðeins náð að vinna tvo af fyrstu tólf deildarleikjum sínum í sumar. Íslenski boltinn 17.8.2012 13:44
Drillo óttast að mæta Íslendingum í fyrsta leik Egil "Drillo“ Olsen, þjálfari norska karlalandsliðsins í knattspyrnu, telur að liðið hafi ekki getað fengið erfiðari byrjunarleik í undankeppni HM 2014. Norðmenn mæta Íslendingum þann 7. september á Laugardalsvelli í fyrstu umferð. "Við hefðum ekki getað fengið erfiðari byrjun,“ segir "Drillo“ Olsen í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. Fótbolti 17.8.2012 10:02
Lars Lagerbäck: Gunnleifur og Hannes eru mjög jafnir Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins, hrósaði markvörðunum Gunnleifi Gunnleifssyni og Hannesi Þór Halldórssyni á blaðamannafundi eftir sigurinn á Færeyjum í gær. Hannes hefur byrjað leikina að undanförnu en Gunnleifur fékk tækifærið í gærkvöldi og hélt hreinu. Íslenski boltinn 15.8.2012 22:55
Lagerbäck þurfti ekki að skoða Alfreð í kvöld - þarf að koma sínu á hreint Alfreð Finnbogason fékk ekki tækifæri hjá Lars Lagerbäck í 2-0 sigrinum á Færeyjum í kvöld og vakti það nokkra athygli enda hefur Alfreð verið að raða inn mörkum í sænsku deildinni í sumar. Íslenski boltinn 15.8.2012 23:04
Byrjunarlið Íslands á móti Færeyjum KSÍ hefur tilkynnt byrjunarlið íslenska landsliðsins fyrir vináttulandsleikinn á móti Færeyjum á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.45 og er síðasti undirbúningsleikur Íslands fyrir undankeppni HM 2014. Íslenski boltinn 15.8.2012 18:39
Allir Íslandsvinirnir í byrjunarliði Færeyja - markvörður Man. City á bekknum Lars Olsen, þjálfari færeyska landsliðsins, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt á móti Íslandi á Laugardalsvelli í í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.45. Íslenski boltinn 15.8.2012 15:50
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Færeyjar 2-0 | Fyrsti sigur Lagerbäck í höfn Íslenska landsliðið í fótbolta vann sinn fyrsta leik undir stjórn Lars Lagerbäck þegar liðið lagði Færeyinga að velli, 2-0, á Laugardalsvellinum í kvöld. Eftir töp í fjórum fyrstu leikjunum á útivelli móti sterkum þjóðum tókst íslensku strákunum að landa sigri í frumraun Svíans í Laugardalnum. Sigurinn var fyrir öllu því frammistaðan var ekki alltof sannfærandi sérstaklega í seinni hálfleiknum. Íslenski boltinn 15.8.2012 14:37
Hver er þessi Chukwudi Chijindu sem er að slá í gegn hjá Þór? Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara í 2-1 sigri á Víkingum í toppslag 1. deildar karla í Ólafsvík í gær. Chijindu hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Þór og er þegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins í sumar. Íslenski boltinn 12.8.2012 14:01
Þórsarar upp í annað sætið - Chijindu með bæði mörkin Þórsarar eru komnir upp í annað sætið í 1. deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Víkingum í Ólafsvík í dag en Ólafvíkur-Víkingar eru engu að síður með tveggja stiga forskot á toppnum. Þórsarar eiga leik inni og eru í góðum málum í baráttu sinni fyrir að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deildinni. Íslenski boltinn 11.8.2012 17:58
Hallgrímur þriðji leikmaðurinn sem boðar forföll í Færeyjaleikinn Hallgrímur Jónasson varð í dag þriðji leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sem dregur sig út úr landsliðshóp Lars Lagerbäck fyrir vináttulandsleik á móti Færeyjum á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn kemur. Íslenski boltinn 11.8.2012 16:57