Mistök við greiningu hjá Krabbameinsfélaginu

Rúmlega tuttugu til viðbótar með frumubreytingar
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur nú yfirfarið 2.200 sýni af þeim sex þúsund sem endurskoða þurfti eftir að í ljós kom að mistök höfðu verið gerð við greiningu hluta þeirra.

Fá erlendan sérfræðing til að taka út skoðun leghálssýna
Embætti landlæknis vinnur að því að fá aðila erlendis frá til að taka út skoðun leghálssýna hjá Krabbameinsfélaginu. Markmiðið er að ganga úr skugga um að endurskoðun og skoðun sýna sé fullnægjandi að gæðum.

Krabbameinsfélagið segir óvissunni eytt
María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, kveðst ekki hafa séð nein gögn sem bendi til þess að fullyrðing Tryggva Björns Stefánssonar í Kastljósi síðastliðinn fimmtudag um að gæðakerfi leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins standist ekki viðmið Evróputilskipana. Krabbameinsfélagið segir að með þessu hafi óvissu sem ummælin ollu verið eytt.

Segir sárast að Krabbameinsfélagið bendi bara á sig
Fyrrverandi starfsmaður Krabbameinsfélagsins segist vera í andlegu áfalli vegna mistaka sem hún gerði í starfi við frumugreiningar hjá félaginu.

„Ég spyr mig, hvar er auðmýktin í þessu máli?“
Sævar Þór Jónsson, lögmaður konu sem hyggur á málsókn gegn Krabbameinsfélaginu vegna mistaka við greiningu, furðar sig á útspili Krabbameinsfélagsins. Í fyrstu hafi málflutningur félagsins einkennst af ákveðnu jafnvægi en það eigi ekki við um viðbrögð félagsins síðustu daga.

Fengu svör frá Sjúkratryggingum en engin gögn
Á vefsvæði Krabbameinsfélagsins kemur fram að félaginu hafi rétt fyrir hádegi í dag borist svar frá Sjúkratryggingum við erindi félagsins um afhendingu gagna. Engin gögn hafi þó borist með svarinu sem hafi getað stutt við ummælin sem voru látin falla í Kastljósviðtali af hálfu fulltrúa Sjúkratrygginga þess efnis að gæðakerfi Leitarstöðvarinnar uppfyllti ekki viðmið Evróputilskipana.

Munu svara Krabbameinsfélaginu en Landlæknir nú í forgangi
Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) segir að nú sé í forgangi að svara óskum Landlæknis um gögn í máli Krabbameinsfélagsins.

Umhugsunarefni að félagasamtök sinni heilbrigðisþjónustu
Heilbrigðiseftirlitið harmar þau mistök sem hafa átt sér stað hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Embætti landlæknis muni á næstunni skila tillögum til úrbóta.

Starfsfólk félagsins afar slegið yfir hinu „afdrifaríka atviki“
Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að starfsfólk félagsins sé afar slegið yfir því „afdrifaríka atviki“ sem varð á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins árið 2018.

Starfsfólk Leitarstöðvarinnar telur sig ekki geta unnið fyrr en gögnin berast
Krabbameinsfélagið hefur birt erindi þar sem félagið ítrekar ósk sína um gögn sem renna stoðum undir fullyrðingar fulltrúa SÍ.

„Þátttakan er númer eitt, tvö og þrjú“
Kvensjúkdómalæknir mælir með að ungar stúlkur séu bólusettar við HPV-veirunni, því bólusetningin geti veitt þeim nánast fullkomna vörn. Það sé hins vegar lykilatriði að konur mæti í skimun fyrir leghálskrabbameini þegar þær fá boðun í hana.

Tilgangur með „neyðarfundi“ óljós og beiðninni því hafnað
Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) segir að tilgangur með fundi sem Krabbameinsfélag Íslands óskaði eftir í dag hafi verið óljós. Því hafi SÍ ekki talið rétt að funda með félaginu á þessu stigi málsins.

Segja SÍ hafa hafnað beiðni um neyðarfund í dag
Þá telur félagið „grafalvarlegt“ef heilbrigðisyfirvöld hafi búið yfir mikilvægum upplýsingum um starfsemi Leitarstöðvarinnar án þess að láta félagið vita.

Segir varnarorð sín vegna Krabbameinsfélagsins rætast
Fyrrverandi yfirlæknir hjá Krabbameinsfélaginu segir varnaðarorð sín til fjölda ára rætast í mistökum við skimanir hjá félaginu. Reksturinn sé háður sérhagsmunum og fjármagn flæði milli sviða sem bitni sárlega á lífi og heilsu kvenna.

„Það er mjög ódýrt að ætla að taka starfsmann fyrir í þessu máli“
Sævar Þór Jónsson, lögmaður konu sem hyggur á skaðabótamál gegn Krabbameinsfélaginu vegna mistaka við sýnatöku, segir að umbjóðanda sínum þyki viðbrögð stjórnenda Krabbameinsfélagsins gagnrýnisverð. Það sé ekki sanngjarnt að varpa sökinni í heild á einn tiltekinn starfsmann í ljósi þess að ýmislegt bendi til þess að eftirliti hafi verið ábótavant.

Harmar alvarleg og afdrifarík mistök Krabbameinsfélagsins
„Ég harma þau og hugur minn er hjá þeim sem málið snertir á einhvern hátt og eiga um sárt að binda vegna þess,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Málin sem lögmaðurinn hyggst skoða nánar orðin þrjú
Lögmaður konu sem ætlar í skaðabótamál við Krabbameinsfélag Íslands vegna mistaka við sýnatöku hyggst kanna grundvöll til málsóknar í þremur sambærilegum málum.

Öskureið yfir „siðleysi“ og „aumingjadómi“ Krabbameinsfélagsins
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir forsvarsmenn Krabbameinsfélags Íslands sýna af sér siðleysi í framgöngu þeirra vegna mistaka við greiningu á leghálssýnum árið 2018.

Höfðu áhyggjur af andlega veikum starfsmanni sem gerði mistök
Starfsmaður Krabbameinsfélagsins sem sinnti því að greina sýni við leghálsskoðun var andlega veikur og hætti störfum af þeim sökum á þessu ári. Viðkomandi starfsmaður gerði mistök við greiningu á frumubreytingum sem nú er orðið að ólæknandi krabbameini.

Hafa kallað inn fleiri konur vegna sýna sem sami starfsmaður skoðaði
Starfsmaðurinn sem skoðaði sýni konunnar sem greindist með ólæknandi leghálskrabbamein í ár lét af störfum hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins í febrúar á þessu ári.

Tryggjum gæði skimana!
Allar konur á aldursbilinu 23 ára til 65 ára eru boðaðar í leghálskrabbameinsleit af Leitarstöð Krabbameinsfélagsins á þriggja ára fresti. Á hverju ári eru það um 27.000 konur og frumurannsóknarstofa Leitarstöðvarinnar skoðar árlega 25.000 til 30.000 leghálssýni.

Fyrirspurnum rignir inn frá áhyggjufullum konum og aðstandendum
Lögmaður konu sem ætlar í skaðabótamál við Krabbameinsfélagið vegna mistaka við sýnatöku segist hafa fengið fjölda fyrirspurna frá öðrum konum eða aðstandendum þeirra sem vilja athuga rétt sinn vegna mögulegra mistaka.

Þurfti að greinast með krabbamein í vinstra brjósti til að fá greiningu á meininu í því hægra
Kona sem greindist með krabbamein í báðum brjóstum í vor segir að ýmislegt megi betur fara í greiningarferli Krabbameinsféags Íslands og Brjóstamiðstöðvar Landspítala.

Tjá sig ekki um hvort rekja megi öll mistökin til sama starfsmanns
Starfsmaður leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins sem gerði mistök við greiningu á leghálssýni fimmtugrar konu greindi að minnsta kosti nokkur af sýnum þeirra þrjátíu kvenna sem hafa verið kallaðar aftur í skoðun vegna rangrar niðurstöðu um frumubreytingar.

Krefjast skýrari svara eftir andlát Reynheiðar
Móðir og eiginmaður 35 ára konu sem lést úr leghálskrabbameini um miðjan ágúst vilja sjá breytta verkferla hjá Krabbameinsfélaginu.

Minnst þrjátíu konur fengið ranga niðurstöðu hjá Krabbameinsfélaginu
Að minnsta kosti 30 konur fengu ranga niðurstöðu um frumubreytingar í leghálsskoðun hjá Krabbameinsfélagi Íslands árið 2018. Félagið vinnur nú að því að endurskoða um 6000 leghálssýni.

Með ólæknandi krabbamein eftir mistök hjá Krabbameinsfélaginu
Kona um fimmtugt sem fékk rangar niðurstöður í leghálsskoðun er nú með ólæknandi krabbamein, sem líklega hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Krabbameinsfélagið harmar mistökin.