Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Dýr­mætur sigur HK-inga

HK kom sér upp fyrir Víking og Stjörnuna með því að leggja Stjörnuna að velli í Kórnum í kvöld, 35-31, í Olís-deild karla í handbolta.

Handbolti
Fréttamynd

„Bar­áttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“

Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með vinnuframlag leikmanna sinna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Ólafur Jónas segir aftur á móti verk að vinna að fínpússa ákveðna hluti á báðum endum vallarins. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Töpuðum á réttan hátt”

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var sár eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika en mjög ánægður með frammistöðu sinna leikmanna. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri

FH vann dramatískan 1-0 sigur á Stjörnunni á Kaplakrikavelli í Bestu deild kvenna í kvöld. Lengst af leit út fyrir að FH þyrfti að sætta sig við markalaust jafntefli en Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir tryggði heimakonum öll þrjú stigin með sigurmarki á 90. mínútu. FH er því komið með 40 stig, jafnt Breiðabliki á toppi deildarinnar, en Blikar eru efstir á betri markatölu. Stjarnan er áfram í fjórða sæti með 26 stig.

Íslenski boltinn