Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Íbúi við Miklubraut hefur miklar áhyggjur af því að bifreið, sem stendur óhreyfð við heimili hans og er full af bensínbrúsum, muni springa í loft upp. Hann biðlar til yfirvalda að fjarlægja ökutækið. Innlent 12.5.2025 19:30
Síðasti dropinn á sögulegri stöð Búið er að loka dælunum á bensínstöð N1 við Ægisíðu fyrir fullt og allt. Síðasta dropanum var dælt á stöðinni um síðustu mánaðamót. Viðskipti innlent 12.5.2025 18:50
Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Meðlimir Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) vilja láta endurskoða nýtt fyrirkomulag Reykjavíkurborgar um rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs með bílastæðum borgarinnar. Þeir óska einnig eftir betri sorphirðu og að rútumál miðborgarinnar verði tekin til skoðunar. Innlent 9.5.2025 18:17
Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres „Þetta er einstakur kostur fyrir íslenska ökumenn. Við þekkjum íslenskar aðstæður og vegakerfi vel. Með þessari tryggingu viljum við veita fólki aukið öryggi og ró á veginum,“ segir Anton Smári, framkvæmdastjóri MAX1 en Hakka Trygging® fylgir öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres. Samstarf 14. apríl 2025 08:43
Fyrsta 100% rafútgáfan af Porsche Macan Í fimmta þætti skoðar James Einar Becker Porsche Macan 4S. Er þetta í fyrsta skipti sem Porsche framleiðir Macan sem 100% rafmagnsbíl. Hann hefur þetta að segja um bílinn. Lífið samstarf 11. apríl 2025 08:51
Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Hætta er á að hægist á orkuskiptum í samgöngum ef stjórnvöld reyna að beina styrkjum til rafbílakaupa í auknum mæli til tekjulægra og yngra fólks, að mati framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Yngra og tekjulægra fólk kaupi mun síður nýja bíla en þeir sem eru eldri og tekjuhærri. Innlent 11. apríl 2025 07:02
Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Stærstur hluti ríkisstyrkja og ívilnana til rafbílakaupa hefur farið til tekjuhæsta hóps samfélagsins undanfarin ár. Dreifingin breyttist ekki eftir að beinir styrkir voru teknir upp í stað ívilnana í fyrra. Unnið er að endurskoðun á styrkjunum til þess að gera orkuskipti í samgöngum réttlátari. Innlent 9. apríl 2025 07:01
Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Umferðarteppa myndaðist á Vesturlandsvegi eftir að Hvalfjarðargöngum var lokað vegna bilaðs bíls. Göngin hafa nú verið opnuð aftur. Innlent 7. apríl 2025 15:05
Jaguar Land Rover stöðvar sendingar vegna tollahækkana Jaguar Land Rover ætlar að gera hlé á bílasendingum til Bandaríkjanna í apríl eftir 25 prósenta tollahækkun Bandaríkjastjórnar á innflutning allra erlendra bíla. Almenn tíu prósent tollahækkun á innflutning breskra vara til Bandaríkjanna tók gildi í dag. Viðskipti erlent 5. apríl 2025 16:41
Stoppaður af vegfaranda sem spurði: „Hvað er þetta?“ Bílastæðasjóður hefur tekið í notkun bíl útbúinn myndavélum sem skanna bílnúmer og þannig veita upplýsingar um hvort fólk hafi greitt í stæði eða ekki. Útgefnum sektum hefur ekki fjölgað þrátt fyrir þessi nýjung. Stöðuvörður segir starfið vera orðið mun fjölbreyttara. Innlent 3. apríl 2025 20:33
Polestar tekur þátt í HönnunarMars 2025 Á HönnunarMars sameinast ólíkar greinar hönnunar og arkitektúrs í kraftmikilli og áhugaverðri hátíð sem snertir á fjölbreytilegum hliðum samfélags og atvinnulífs, allt frá fatahönnun til vöruhönnunar, arkitektúrs, grafískrar hönnunar, textílhönnunar, leirlistar, þjónustuhönnunar og stafrænnar hönnunar svo dæmi séu nefnd. Polestar tekur þátt í HönnunarMars á ýmsa vegu. Lífið samstarf 3. apríl 2025 15:01
Tekur yfir rekstur Dollar og Thrifty Bílaleigan Hertz hefur tekið yfir rekstur bílaleigumerkjanna Dollar Rent A Car og Thrifty Car Rental á Íslandi. Viðskipti innlent 3. apríl 2025 11:41
Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Ákvörðun um sekt vegna stöðvunarbrotagjalda í Reykjavík verður framvegis í höndum starfsfólks á skrifstofu. Eftirlit verður fyrst og fremst rafrænt þótt eftirlit gangandi stöðumælavarða hverfi ekki alveg. Innlent 2. apríl 2025 12:21
Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Sveinn Waage framkvæmdastjóri hefur sett Tesluna sína á sölu. Hann segist langþreyttur á því áreiti sem fylgi því að eiga slíkan bíl. Hann vill losna við fararskjótann sem fyrst og slær því vel af verðinu. Hann sér frið og ró sem því fylgi í hillingum. Innlent 1. apríl 2025 07:02
Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Nýr Mitsubishi Outlander PHEV verður frumsýndur dagana 31. mars til 5. apríl í höfuðstöðvum Heklu við Laugaveg í Reykjavík. Samstarf 31. mars 2025 09:00
Ólögmæt gjaldtaka gæti kostað ríkið milljarða Lögmaður telur ríkið hafa bakað sér milljarða skaðabótakröfu þar sem lög um olíugjald brjóti í bága við stjórnarskrá. Hann vinnur nú að lögsókn vegna gjaldtöku síðustu fjögurra ára. Innlent 30. mars 2025 12:23
Hyggst leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í gær að stjórnvöld vestanhafs hygðust leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd af Evrópusambandinu og Kanada. Erlent 27. mars 2025 06:42
„Átt ekki að falla af því að þú skilur ekki spurninguna“ „Við erum að búa til einstaklinga sem eru að fara öðlast ökuréttindi og búa þá undir umferðina svo þeir séu sem öruggastir fyrir okkur öll og þá sjálfa,“ segir Þuríður B. Ægisdóttir, formaður Ökukennarafélags Íslands, en Sindri Sindrason ræddi við hana í Íslandi í dag á Stöð 2 í vikunni. Lífið 26. mars 2025 14:30
Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Salóme Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ísorku. Hún tekur við starfinu af Sigurði Ástgeirssyni stofnanda fyrirtækisins. Viðskipti innlent 26. mars 2025 10:51
Tesluvandinn Nú hefur það breyst á síðustu mánuðum og árum að Tesla er ekki lengur bara eitthvað bílafyrirtæki. Stærsti eigandi þess og helsti talsmaður, Elon Musk, hefur stigið inn á svið stjórnmála og mannréttindamála með svo afgerandi hætti að það er ekki lengur hægt að líta á fyrirtækin sem hann byggir sín auðæfi á sem bara venjuleg fyrirtæki á markaði. Skoðun 25. mars 2025 12:32
Svefnvana Gnarr varð var við grunsamlegan skemmdarvarg Þingmaðurinn Jón Gnarr varð var við grunsamlegan mann í götunni sinni um fjögurleytið í nótt. Hann hafi ætlað að hringja á lögregluna þegar maðurinn hvarf á braut. Reyndist viðkomandi hafa unnið skemmdarverk á Teslu. Innlent 24. mars 2025 11:08
Tork gaur driftar á ísilögðu stöðuvatni í Jokkmokk Tork gaur heldur áfram með þáttaröð sína á Vísi. Í fjórða þætti heldur James Einar Becker til Lapplands eða nánar tiltekið Jokkmokk í norður Svíðþjóð. Þangað var honum boðið á frosið stöðuvatn af Polestar til að reynsluaka Polestar 2, 3 og 4. Lífið samstarf 24. mars 2025 08:58
Um 400 manns tóku þátt í vetrarhátíð Ferðaklúbbsins 4x4 Vetrarhátíð Ferðaklúbbsins 4x4 var haldin laugardaginn 15. mars síðastliðinn í brakandi blíðu og logni við Þursaborg á Langjökli. Um 400 manns skráðu sig í ferðina, flestir frá höfuðborgarsvæðinu en stórir hópar frá Norður- og Suðurlandi og víðar að líka. Innlent 22. mars 2025 19:03
Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Ég hallaði sætinu aftur, setti mjóbaksnuddið í gang og lokaði augunum. Þrjátíu mínútna hleðslustopp þarf ekki að vera svo slæmt. Ég sat í Ford Capri, fornfrægum sportbíl sem geystist á ný inn á markaðinn síðasta sumar, endurfæddur sem rafbíll. Samstarf 21. mars 2025 12:35