
Skoðanir

Nýr kúrs á Mogga, kvenkyns leiðtogar, bensínstöð í Vatnsmýri, grísk ferja
Margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu forsíðu Morgunblaðsins í morgun. Þar var mynd af sakborningum í Baugsmálinu og fyrir neðan fyrirsögn með stríðsletri: Öll sýknuð. Var maður að ruglast – var þetta kannski Baugsmiðillinn Fréttablaðið?

Félagaskelfar, bænarskrá til útlendra banka, áhangendur handboltaliðsins
Er það rétt sem Mogginn segir að væntanleg séu tvö framboð aldraðra og öryrkja? Og hóparnir þegar byrjaðir að kýta sín á milli. Liðsmaður úr öðrum hópnum segir að sér hafi verið neitað að sitja fund hjá hinum, en eftir forsvarsmanni annars framboðsins er haft: "Eftir því sem gremjan er meiri verða framboðin fleiri."

Fuglalíf á Tjörninni, framboð aldraðra, handbolti
Nú erum við Kári búnir að ná einu helsta baráttumáli okkar í gegn. Við fögnum því náttúrlega. Við höfum um árabil tuðað yfir því að ekkert ungviði komist á legg á Reykjavíkurtjörn – þannig hefur það verið ár eftir ár. Eitt árið töldum við að átta andarungar hefðu lifað...

Lilló leggur út af Lobba
Viðtal mitt við Guðmund Ólafsson hagfræðing í síðasta Silfri hefur vakið mikla athygli – en kannski ekki nóga. Ég er eiginlega þeirrar skoðunar að heill stjórnmálaflokkur gæti byggt kosningabaráttu sína á málflutningi hans...

Fylgi vinstri flokka, martröð í Magdeburg, vanmáttur stjórnarandstöðu
Nú er það samt svo að samanlagt fylgi Vinstri grænna og Samfylkingar í skoðanakönnuninni er lítið miðað við oft áður á kjörtímabilinu, um 40 prósent. Í þjóðarpúlsi Gallups hefur þetta verið á bilinu 43 og alveg upp í 47 prósent....

Ríkisútvarpið, basl á fjölmiðlamarkaði, málþóf í þinginu
Ríkisútvarpið ekki jafn merkilegt eins og stjórnarandstaðan lætur vera. Það er ekki fjöregg íslenskrar menningarinnar. Ef ekki væri til ríkisútvarp dytti engum í hug að stofna það. Það dettur líka afar fáum í hug að leggja það niður...

Gjafmildi, Elton John, handbolti, Evrovision, þjóðarkarakter
Ólafur í Samskip slær öll met í því að gefa peninga til góðgerðarmála og menningar. Það er samt skrítið að tilkynna þetta sama dag og hann lætur fljúga með Elton John hingað í einkaþotu til að spila í partíi. Frá þessu var sagt í fréttum Stöðvar 2. Þeir náðu meira að segja myndum af Elton...

Alræði, þorrablót, málþóf
Tilgangurinn var að fjölga Rúmenum. Afleiðingin var geysileg óhamingja, fleiri svangir munnar að metta mitt í fátæktinni, ótrúlegur fjöldi barna sem enginn kærði sig um – lokapunkturinn voru svo hin skelfilegu munaðarleysingjahæli sem voru uppgötvuð eftir fall Ceausecuhjónanna...

Byrgið, kvenskörungar, Skuggahverfi, stjórnarskrá
Það er dálítið erfitt að vera í bendileik með Byrgið – að finna einhvern sérstakan sökudólg í kerfinu. Menn hafa staðnæmst við Birki Jónsson, en ég held að hann muni sleppa með skrekkinn. Ég man ekki betur en að flestir pólitíkusar og mestöll kjaftastéttin hafi tekið andköf af hneykslun...

Mýrargatan, bleik blöð, Kaupthing
Svæðið í kringum Mýrargötuna er eitt hið ljótasta í Reykjavík – raunar er mestöll norðurströnd borgarinnar til skammar. Afsprengi endalausra skipulagsslysa. Ég verð líka að játa að ég hef aldrei séð neinn sjarma við Slippinn – og er þó alinn upp vestur í bæ...

Við borgum ekki!
Frægt leikrit eftir Nóbelsverðlaunahafann Dario Fo heitir Við borgum ekki. Ég velti fyrir mig hvort sé komið að þeim punkti að við Íslendingar eigum að hætta að borga. Við búum við langhæsta matarverð í heiminum...

Beckham til Ameríku, ný viðreisn, hart í búi hjá smáfuglunum
Nútíminn er trunta með tóman grautarhaus. Hæstlaunaði fótboltamaður í heimi er ekki einu sinni meðal hundrað bestu leikmannanna, hefur líklega aldrei verið það. Þess vegna er ekki hægt að líkja för Beckhams til Ameríku við það þegar Pele fór til New York Cosmos...

Barbabrella í Háskólanum
Markmiðið að koma Háskóla Íslands í hóp hundrað bestu háskóla í heimi er auðvitað brandari. Svona eins og fíkniefnalaust Ísland árið tvö þúsund. Að halda svona fram er svo sjálfhælið að maður fer hjá sér. Þetta er dvergháskóli, frekar snauður af fé, hæfileikum, hefð og bókakosti...

Bush grætur, hvalkjöt, skrítinn dómsdagur, könguló
Hvaða kenndir vekja myndir af Bush grátandi? Samúð? Varla? Ekki þegar maður hugsar um afleiðingarnar af gerðum hans, ónýtt land þar sem áður ríkti einræði en þó einhvers konar stöðugleiki, fjölda látinna þar, heilan heimshluta sem er í uppnámi...

Pamuk, skáld Borgarinnar
Kannski er Pamuk merkilegasti rithöfundur í heimi um þessar mundir, ekki bara vegna þess að hann sé svona góður, heldur líka vegna þess að hann situr þvert á aðalátakalínu heimsins, milli austurs og vesturs. Viðfangsefni hans eru stór og skipta máli...

Sumarfrí Blairs, landið kvatt, ónýtar byggingar, Hugo Chavez
Tony Blair liggur undir ámæli fyrir að vilja ekki fórna fríum sínum sem hann tekur oft fjarri heimabyggð. Þetta þýðir að Blair þarf að fljúga langvegu, til staða eins og Bahamas eða Miami, með tilheyrandi útblæstri koltvísýrings...

Nýriki Nonni og stórfyrirtækin
Maður getur ekki annað en dáðst að útsjónarsemi nýju millanna – sem eru auðvitað miklu ríkari en hinir gömlu. Þeir eru afar duglegir í fjárfestingum í útlöndum. En á sama tíma virðist þeim vera sama þótt þeir blóðmjólki íslenskan almenning í gegnum fyrirtæki sín, verslanir, banka og flugfélög...

Hvað gerir Samfylkingin?
Hér er spurt hvort Samfylkingin muni brátt einhenda sér í að berja á Vinstri grænum í staðinn fyrir að láta Steingrím taka af sér fylgið möglunarlaust, en síðan er rætt um grein eftir einn helsta leiðtoga Samfylkingar þar sem er boðuð sameining við Framsóknarflokkinn...

Vofa Víkverja gengur ljósum logum
Þetta hljómar auðvitað eins og víkverjatuð hjá mér, en það er einmitt lóðið. Þessi svokallaði bloggheimur er að verða eins og einn gígantískur víkverjapistill. Ég verð að viðurkenna að eftir sjö ár á netinu er mér skapi næst að hætta þessu...

Ekki meiri Cleese, plís!
Okurvextirnir hérna eru þjóðarböl. Það er ekki hægt að láta eins og bankarnir beri ekki þar sök á, að þeir séu bara að starfa innan ramma þess sem er leyfilegt og löglegt. Eitt sinn var talað um það sem er löglegt en siðlaust – þannig er einmitt farið um starfsemi bankanna á Íslandi...

Ekki blogg – gleðilegt ár
Nú þegar árið er að renna sitt skeið langar mig að taka fram að ég hef aldrei skrifað blogg. Sögu mína á internetinu má rekja til 1. febrúar árið 2000, sem er sirka fimm árum áður en bloggið var fundið upp...

Saddam hengdur, dapurt líf pólitíkusa, góður tími, Kryddsíld
Hér er fjallað um heimskuna sem virðist allsráðandi í stríðinu í Írak, beiska og fátæka stjórnmálamenn, tímann milli jóla og nýárs sem er alveg furðulega þægilegur, en loks er minnt á Kryddsíldina á morgun og áramótagrein í Ísafold...

Stækkun álversins, ræða útvarpsstjóra, aftaka Saddams
Hér er fjallað um kosningar vegna stækkunar álversins í Straumsvík og líkurnar á að þær komi Vinstri grænum til góða, áramótaávarp útvarpsstjóra sem Páll Magnússon hefur lagt af og aftöku Saddams sem verður kannski í fyrramálið...

Davíð í pólitík, okurvextir, Dómínós
Hér er fjallað um afskipti Davíðs Oddssonar af pólitíkinni sem virðast fremur færast í vöxt, hið hryllilega vaxtaokur sem virðist þykja sjálfsagt á Íslandi og þrífst í skjóli fákeppni og viðskiptahindrana, en að lokum er vikið að Dómínós pítsum og hinu ógurlega sms-máli...

Nýr lögreglustjóri, Gerald Ford, skattar
Hér er fjallað um nýjan lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, Gerald Ford Bandaríkjaforseta sem sagt var að gæti ekki tuggið og gengið á sama tíma og það fyrirkomulag að þeir sem hafa millitekjur og þar undir skuli borga skatta en ríkt fólk sé undanþegið...

Gleðileg jól
Ég óska lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla. Myndin sem fylgir með er ekki af gestum í Silfri Egils heldur jólasveinum og er teiknuð af Kára fjögurra ára. Hafið það gott yfir hátíðarnar.

Útrásarvíkingar, Manuela, Dunkleosteus
Hér er enn fjallað um þá ákvörðun Straums-Burðaráss að skipta yfir í evrur, afskipti Davíðs af efnahagsstjórninni og viðbrögð KB-banka, en einnig er fjallað um flautuleikarann góða Manuelu Wiesler og hræðilegt skrímsli sem eitt sinn synti um höfin...

Dauðaþoka, síðasti geirfuglinn, evrupælingar
Hér er fjallað um gömlu Lundúnaþokuna, náttúrugripasafn sem hefur verið á hrakhólum síðan á þarsíðustu öld, og loks er vikið að síðustu vaxtahækkun Seðlabankans og ummælum Davíðs um evruna og íslensk fyrirtæki...

30. mars
Hér er fjallað um atburðina á Austurvelli 30. mars 1949, ofbeldið sem þar var beitt, varaliðssveitir sem áttu að berjast gegn kommúnistum, símhleranir, Fylkinguna og KSML og bækur eftir Ásgeir Pétursson og Guðna Th. Jóhannesson...

Fjalakötturinn endurvakinn
Ég á þá ósk fyrir hönd svona klúbbs að hann leggi rækt við að sýna klassískar myndir, kafi ofan í kvikmyndasöguna, setji upp vandaðar dagskrár með myndum eftir stórmeistara og brautryðjendur greinarinnar...