

Kærasta Daniels Radcliffe, Rosie Coker, hefur gefið Harry Potter-leikaranum tvö ár til að bæta umgengni sína. Hann sé nefnilega ótrúlegur sóði heima fyrir. Radcliffe viðurkennir þennan ókost sinn í viðtali nýlega. „Ég held að þetta þýði að ég verði að geta eldað sjálfur og að ég geti ekki leyft mér að skilja við húsið okkar eins og ég geri þessa dagana. Hún hefur gefið mér þennan frest þannig að ég geti fúnkerað heima fyrir,“ bætir Radcliffe við.
Gary Barlow, söngvari í strákabandinu Take That, segist hafa leitað sér huggunar í mat eftir að sólóferill hans fór illa af stað árið 1998. „Það er eitt að fyrirlíta sjálfan sig í huganum. En þegar þú horfir í spegilinn og fyrirlítur líkamann þinn líka, hvað gerirðu þá?“ sagði Barlow, sem var orðinn 105 kíló á þessum tíma.
Hlutverkum hefur verið víxlað í tískuheiminum þar sem ritstjórar tískutímarita eru farnir að prýða forsíður og ganga niður tískupallana.
Ricky Gervais er ákaflega þjáður eftir að hafa tognað í baki þegar hann var í ræktinni. Gervais segir frá þessu á bloggi sínu. Leikarinn, sem er hvað þekktastur fyrir gamanþættina Office og Extras, var að lyfta þegar bakið gaf sig og grínistinn segist vera ákaflega þjáður.
Nicole Scherzinger og Lewis Hamilton hafa ákveðið að hittast á nokkrum leynilegum stefnumótum til að athuga hvort þau geti blásið lífi í fjögurra ára samband sitt. Parið hætti saman í október en þar sem Formúlu 1-tímabilinu fer senn að ljúka hjá Hamilton gera þau sér nú vonir um að geta eytt góðum tíma saman.
Adele hefur staðfest að hún muni syngja á Emmy-verðlaunahátíðinni í Bandaríkjunum. Breska söngkonan er tilnefnd til sex verðlauna og mun væntanlega ekki hafa mikinn tíma til að undirbúa sig þar sem hún er enn að jafna sig eftir aðgerð á hálsi. Adele er enn í Bandaríkjunum og bíður eftir því að læknar gefi henni grænt ljós. „Takk fyrir allar þær jákvæðu hugsanir sem þið hafið sent mér. Allt gengur vel og ég er mjög jákvæð,“ skrifaði Adele á heimasíðu sinni.
Brad Pitt hughreysti aðdáanda sinn sem hafði íhugað sjálfsvíg áður en hann sá nýjustu mynd leikarans, Moneyball. Pitt var viðstaddur sýningu á myndinni þar sem hægt var að spyrja hann út í söguþráðinn að henni lokinni.
Haukur Ingvarsson hefur vakið athygli fyrir sína fyrstu skáldsögu, Nóvember 1976, sem segir frá svaðilför Þórodds Ríkharðssonar þegar hann reynir að verða foreldrum sínum úti um litasjónvarp.
Eitt það skemmtilegasta sem prakkarar á Twitter stunda er að lýsa yfir dauða einhvers frægs leikara eða poppstjörnu. Charlie Sheen er nýjasta fórnarlamb slíks hrekks, en hann átti að hafa slasast alvarlega á snjóbretti í skíðaferðlagi með fjölskyldu sinni í Sviss. Fréttin fór fyrst af stað á vefsíðunni Mediafetcher, en þar kom fram að Sheen hefði klesst á tré á miklum hraða. Vefsíðan birti einnig ógreinilega mynd af sjúkraliðum að hjúkra sjúklingi en seinna kom í ljós að Sheen hefði ekki einu sinni verið í Sviss á þessum tíma.
Fjölmargir mættu í útgáfufögnuð Flickmylife-bókarinnar sem útgáfufélögin Ókeibæ(!)kur og Forlagið héldu á skemmtistaðnum Faktorý á fimmtudagskvöldið. Bókin inniheldur rjómann af gríninu sem aðstandendur síðunnar hafa birt undanfarin þrjú ár, en tugþúsundir Íslendinga heimsækja hana á hverjum degi. Glatt var á hjalla þegar Hugleikur Dagsson, Dóri DNA og fleiri grínistar sýndu og spjölluðu um uppáhaldsmyndir sínar úr bókinni.
„Ísland er draumaland áhugaljósmyndarans og vonandi fæ ég tækifæri til að taka nokkrar myndir. Ég er því miður mjög tímabundinn en vonandi næ ég einhverjum myndum,“ segir óperusöngvarinn Paul Potts en hann þykir nokkuð liðtækur áhugaljósmyndari.
Tveir áhugamenn um rafbækur og íslenska lestrarhefð hafa opnað nýja rafbókarveitu. Síðan heitir Emma.is og gefur öllum landsmönnum tækifæri til að gefa út sín eigin verk á rafrænu formi.
Scarlett Johansson hefur viðurkennt í viðtali við Cosmopolitan að vinnuálagið hafi eyðilagt samband hennar og Ryans Reynolds. Þar að auki hafi hún ekki verið reiðubúin til að færa þær fórnir sem hjónaband krefjist.
Bókin Mannvist – sýnisbók íslenskra fornleifa eftir Birnu Lárusdóttur fornleifafræðing er komin út hjá Opnu.
Ný plata frá hinni sálugu Amy Winehouse, Lioness: Hidden Treasures, kemur út á mánudaginn. Talið er að hún fari beint í efsta sæti vinsældalista úti um allan heim. Platan hefur að geyma tólf lög með Winhouse sem hún hafði sum lokið við áður en hún lést. Það voru vinir hennar, upptökustjórarnir Mark Ronson og Salaam Remi, sem völdu lögin.
Tónleikaferðalag Frostrósa hefur farið vel af stað. Níu jólatónleikum af 34 talsins er nú lokið og voru þeir síðustu í Reykjanesbæ í gærkvöldi.
Norski kórinn Bærum Bachkor heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn klukkan 20. Ásamt kórnum kemur hljóðfærahópurinn "Norwegian Cornett & Sackbuts“ sem leika á blásturshljóðfæri frá endurreisnartímanum, meðal annars zink og básúnur. Á efnisskránni eru verk eftir Michael Prätorius, Heinrich Schütz, Giovanni Gabrieli og fleiri.
„Já, við eigum í raun þessa þriðju helgi í október sem hátíðin hefur alltaf verið haldin á, en við erum að þessu til að spara smá peninga,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir, einn skipuleggjenda Iceland Airwaves-hátíðarinnar.
„Æfingar byrja í lok janúar. Þetta er virkilega spennandi,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari. Hann hefur hreppt hlutverk Ókunnuga mannsins í uppfærslu Rose-leikhússins í Kingston-hverfinu í London á verki Henrik Ibsen, Konan við hafið.
„Þetta er í farvatninu en ekki búið að negla endanlega niður,“ segir Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður. Andri sló rækilega í gegn með sjónvarpsþáttunum sínum Andri á flandri sem sýndir voru á RÚV og nú er gert ráð fyrir tveimur þáttaröðum á næsta ári.
Leikkonan Eva Longoria er byrjuð með litla bróður vinkonu sinnar Penelope Cruz, Eduardo Cruz. Longoria staðfestir þetta í viðtali við spænska Vanity Fair þar sem hún talar einnig opinskátt um skilnað sinn við körfuboltakappann Tony Parker í fyrra. Hún leggur áherslu á að hún sé ekki reið Parker þó að framhjáhald hans hafi verið ein af orsökunum skilnaðarins.
Ali Lohan, litla systir Lindsay Lohan, segist vera heppin að eiga Lindsay sem stóru systur, en Ali er að gera það gott sem fyrirsæta þessa stundina. Hún viðurkennir að henni hafi verið boðið eiturlyf en vegna fortíðar stóru systur sinnar hafi hún afþakkað boðið. „Ég heppin að eiga systur sem ég get lært af.
Mugison stal senunni á Degi íslenskrar tónlistar í gær þegar hann bauð öllum Íslendingum á tónleika sína í Eldborgarsal Hörpu 22. desember næstkomandi. Hátíðlegt andrúmsloft var á blaðamannafundi í Hljómskálanum þegar tónlistarmaðurinn sagðist vera svo mikil þökk í hjarta fyrir hlýjar viðtökur landsmanna við nýjustu plötu hans, Hagléli, að hann langaði að þakka fyrir sig í verki, með því að gera það sem hann gerir best – spila tónlist. Hann leigði því að eigin sögn glæsilegasta tónleikasal landsins, Eldborg, til að sem flestir kæmust að.
Tónlistarmaðurinn George Michael er á hægum batavegi í baráttu sinni við lungnabólgu. Hann hefur verið fluttur af gjörgæsludeild í Austurríki, þar sem hann var lagður inn fyrir viku. Söngvarinn, sem er 48 ára, hafði verið í einangrun en fjölskylda hans hefur staðið þétt við bakið á honum í veikindunum. Talið er að á meðal þeirra sé Fadi Fawas, sem orðrómur er uppi um að sé nýr kærasti Michaels. Faðir söngvarans, hinn 75 ára gamli Kyriacos Panayiotou, er einnig á sjúkrahúsinu ásamt eldri systrum Michaels, Melanie og Yioda. Heyrst hefur að fyrrverandi kærasti söngvarans, Kenny Goss, sé einnig á leiðinni á sjúkrahúsið.
Christian Bale hefur ákveðið að hafna aðalhlutverkinu í stórmyndinni Nóa sem Darren Aronofsky hefur í hyggju að taka að hluta til upp hér á landi, eins og Fréttablaðið hefur greint frá.
Hinn nýfráskildi Ashton Kutcher var með fjölskyldu sinni í Iowa City á þakkargjörðarhátíðinni. Blaðið US Weekly greinir frá því að Kutcher hafi farið út á lífið ásamt stórum hópi vina sinna og vakið mikla lukku í heimabæ sínum. „Kutcher drakk bjór og stúlkurnar flykktust að honum,“ er haft eftir heimildarmanni í blaðinu. Kutcher skildi nýverið við leikkonuna Demi Moore en hún sást sömu helgi á veitingastað í Los Angeles með vinum sínum.
Það er ekki nema eitt ár síðan Hulda B. Waage byrjaði að æfa kraftlyftingar en hún varð bikarmeistari kvenna í greininni á Bikarmeistaramóti KRAFT 2011 sem haldið var um síðustu helgi á Akureyri. Þá sló hún fjögur Íslandsmet á mótinu. Hulda keppti fyrir Breiðablik sem var stigahæsta liðið á mótinu.
„Þetta er það frábært framtak að það kallar á stuðning,“ segir Jakob Einar Jakobsson, rekstrarstjóri og eigandi veitingastaðarins Munnhörpunnar, sem er á fyrstu hæð Hörpu. Jakob er ættaður að vestan eins og Mugison og segist strax hafa fundist þau verða að taka á einhvern hátt þátt í viðburðinum frá því að hann frétti af ókeypis tónleikum tónlistarmannsins, sem haldnir verða í Hörpu hinn 22. desember.
Rapparinn Erpur Eyvindarson, eða Blaz Roca, fékk afhenta gullplötu fyrir að selja 5.000 eintök af plötu sinni, Kópacabana. Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, afhenti Erpi gullplötuna í Hamraborginni í gær. Á myndinni sjást Guðrún, Erpur, Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar, og Sigurður Valgeirsson, sem situr fyrir á umslagi plötunnar.
Breska söngkonan Adele getur ekki mikið notað rödd sína um þessar mundir en hún er ennþá að jafna sig eftir aðgerð á raddböndum. Söngkonan styðst því við forrit í símanum sem hjálpar henni að tjá sig til dæmis á kaffihúsum og við leigubílstjóra. Adele skrifar það sem hún vill segja inn í símann, sem talar svo fyrir hana.