Menning

Norskur kór í Langholtskirkju

Með norska kórnum Bærum Bachkor, sem heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn, spilar Norwegian Cornett & Sackbuts, sem hefur sérhæft sig í tónlist frá endurreisnar- og barokktímanum á upprunaleg blásturhljóðfæri.
Með norska kórnum Bærum Bachkor, sem heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn, spilar Norwegian Cornett & Sackbuts, sem hefur sérhæft sig í tónlist frá endurreisnar- og barokktímanum á upprunaleg blásturhljóðfæri.
Norski kórinn Bærum Bachkor heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn klukkan 20. Ásamt kórnum kemur hljóðfærahópurinn „Norwegian Cornett & Sackbuts" sem leika á blásturshljóðfæri frá endurreisnartímanum, meðal annars zink og básúnur. Á efnisskránni eru verk eftir Michael Prätorius, Heinrich Schütz, Giovanni Gabrieli og fleiri.

Bæjarfélagið Bærum er liðlega 100.000 manna bæjarfélag vestan við Ósló. Bærum Bachkor starfar við Hövik-kirkju og þar hefur Þröstur Eiríksson, stjórnandi kórsins, verið organisti í 21 ár. Kórinn, sem heldur upp á 25 ára afmæli sitt á þessu ári, flytur einkum kirkjutónlist og leggur vissa áherslu á tónlist eftir Bach.

Þröstur Eiríksson, sem er fæddur og uppalinn í Reykjavík, er menntaður kirkjutónlistarmaður við tónlistarháskólann í Ósló og lýkur um þessar mundir doktorsprófi við sömu stofnun. Hann starfaði sem organisti á Íslandi á árunum 1985 til 1990, fyrst við Laugarneskirkju og síðar við Garðakirkju. Frá árinu 1990 hefur hann verið organisti við Hövik-kirkju, vestan við Ósló. Þar stjórnar hann m.a. Bærum Bachkor og hefur flutt með kórnum mörg af stærri verkum tónbókmentanna.- hhs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.