
Skoðanakannanir

Landsmenn ósammála um ákvörðun Svandísar
Landsmenn skiptast nokkuð jafnt í fylkingar þegar kemur að skoðun þeirra á ákvörðun matvælaráðherra um tímabundið bann á hvalveiðum. Samkvæmt Þjóðarpúls Gallup eru tæp fjörutíu og tvö prósent ánægð með ákvörðunina en rúmlega þrjátíu og níu prósent eru óánægð.

Samfylkingin stærst og stuðningur við ríkisstjórnina á niðurleið
Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka samkvæmt niðurstöðum í þjóðarpúlsi Gallup. Aðeins þrjátíu og fimm prósent sögðust styðja ríkisstjórnina. Samfylkingin er stærsti flokkurinn með rúmlega tuttugu og átta prósent fylgi.

Aldrei færri í hópi stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar
Einungis átján prósent svarenda segjast ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Hlutfallið hefur aldrei verið lægra.

Samfylkingin langstærsti flokkurinn og ríkisstjórnin fellur enn
Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningum og er nú 34,2 prósent. Könnunin fór fram 1. til 22. júní.

Yngra og tekjuminna fólk hlynntara borgaralaunum
Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að tveir af hverjum fimm eru hlynntir hugmyndinni um úthlutun borgaralauna á Íslandi. Þá sé meirihluti þeirra sem eru fylgjandi borgaralaunum undir þrítugu.

Skynsamlegt fyrir stuðningsmenn hvalveiða að sýna meiri auðmýkt
Almannatengill telur að hvalveiðar séu að verða pólitískara mál en áður og segir að fyrir nokkrum áratugum hefði þótt óhugsandi að meirihluti þjóðarinnar væri andvígur hvalveiðum. Ný könnun Maskínu bendir þó einmitt til þess að sú sé raunin. Hann telur að þeir sem stundi og styðji veiðarnar ættu að sýna andstæðingum veiðanna meiri auðmýkt.

Fylgi Samfylkingar nærri þrefaldast frá kosningum
Enn eykst fylgi Samfylkingar sem mælist nú tuttugu og sjö prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgið hefur nærri þrefaldast frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 9,9 prósent atkvæða.

63 prósent landsmanna andvíg því að lækka kosningaaldur í 16 ár
63 prósent landsmanna eru andvíg því að lækka kosningaaldur úr 18 árum í 16 ár en 18 prósent eru hlynnt breytingunni. 19 prósent segjast hvorki hlynnt né andvíg.

Hartnær áttatíu prósent leigjenda ná ekki endum saman
Sjötíu prósent íslenskumælandi leigjenda og áttatíu prósent enskumælandi eiga erfitt með að ná endum saman. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum við spurningum glænýrrar könnunar sem Samtök leigjenda standa að. Niðurstöðurnar sýna kolsvarta stöðu leigjenda á Íslandi.

Nærri helmingur landsmanna hefur áhyggjur af skotvopnaeign
Nærri helmingur landsmanna hefur áhyggjur af skotvopnaeign á Íslandi, eða 46 prósent. Svipað margir hafa áhyggjur í ár og í fyrra en töluvert færri höfðu áhyggjur fyrir tveimur árum. Þá höfðu einungis 32,6 prósent landsmanna áhyggjur af byssueign. Rúmlega 20 prósent landsmanna segjast hafa aðgang að skotvopnum.

Íslendingar svartsýnir á gengi Íslands í Eurovision
Meirihluti Íslendinga er svartsýnn á gengi landsins í Eurovision söngvakeppninni í ár. Fáir eru vongóðir um að Diljá Pétursdóttir beri sigur úr býtum fyrir hönd Íslands. Fjöldinn er svipaður og í fyrra þegar Systur kepptu. Mun meiri bjartsýni var hjá landanum þegar Hatari keppti árið 2019 og árin tvö á eftir þegar Daði og Gagnamagnið voru í eldlínunni.

Borgarbúar óánægðir með meirihlutann en Samfylkingin sækir á
Ríflega helmingur borgarbúa telur meirihlutann í borgarstjórn hafa staðið sig illa en fleiri telja hann þó hafa staðið sig betur en flokkarnir í minnihlutanum. Samfylkingin nýtur mests fylgis allra flokka í borginni og Framsókn hefur tapað miklu fylgi frá kosningum samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofuna.

Líklegt að við sjáum nýja ríkisstjórnarflokka á næsta kjörtímabili
Prófessor í stjórnmálafræði segir nokkuð ljóst að breytingar verði á ríkisstjórnarflokkum eftir næstu alþingiskosningar miðað við nýjustu skoðanakönnun Maskínu. Hún telur þó að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið.

Samfylkingin komin í 26 prósent
Fylgi Samfylkingarinnar hefur aukist um tæp sextán prósentustig frá Alþingiskosningum í september 2021. Fylgi flokksins mælist nú 25,7 prósent, tæpum sjö prósentustigum meira en fylgi Sjálfstæðisflokksins.

Mikill meirihluti telur kjör öryrkja vera slæm
Mikill meirihluti Íslendinga telur kjör öryrkja ýmis frekar eða mjög slæm og segir brýnt að bæta þau.

Samfylkingin fengi 19 þingmenn kjörna
Samfylkingin er stærri en Sjálfstæðisflokkurinn þriðja mánuðinn í röð í könnunum Maskínu fyrir fréttastofuna. Flokkurinn sækir fylgi tiltölulega jafnt til allra aldurshópa en Sjálfstæðisflokkurinn höfðar meira til eldri kynslóða en þeirra yngri.

Samfylkingin bætir enn við sig fylgi á kostnað stjórnarflokkanna
Samfylkingin heldur áfram að auka fylgi sitt samkvæmt könnun Maskínu og er nú lang stærsti flokkur landsins með 24 prósent atkvæða. Fylgið heldur áfram að hrynja af Vinstri grænum og meirihluti stjórnarflokkanna er fallinn samkvæmt könnununni.

Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei verið minni
Fylgi ríkisstjórnarinnar minnkar um fjögur prósentustig í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og stendur nú í 42 prósentum. Stuðningur við stjórnarflokkana þrjá mælist fjörutíu prósent og minnkar um tvö prósentustig.

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna ekki minna á kjörtímabilinu
Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja mælist nú rétt um 39 prósent og hefur ekki verið minna á kjörtímabilinu. Ekki er marktækur munur á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í nýrri skoðanakönnun Maskínu.

„Íbúar hér vilja þetta bara ekki“
Ný skoðanakönnun Gallup sem gerð var meðal þeirra sem búsettir eru í póstnúmerum 710 og 711 sýnir að mikill meirihluti eða þrír fjórðu þeirra eru andvíg sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Rúmur helmingur lýsir sig alfarið andvígan þeim fyrirætlunum.

Flestir vantreysta Eflingu samkvæmt nýrri könnun
Helmingur landsmanna telur fulltrúa Eflingar hafa staðið sig illa í yfirstandandi kjaradeilu. Þar munar mestu um kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks auk þeirra sem hæst laun hafa í landinu.

Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að dala í nýrri könnun
Fylgi Vinstri grænna, flokks Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, heldur áfram að dala og mælist nú 5,9 prósent í nýrri skoðanakönnun Prósents fyrir Fréttablaðsins sem birt var í morgun. Sjálfstæðisflokkur mælist með rúmlega 23 prósenta fylgi og Samfylkingin með rúmlega 22 prósent.

Meirihluti þeirra sem hefur skoðun vill í Evrópusambandið
Meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í nýrri könnun Maskínu vilja ganga í Evrópusambandið. 66% vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að taka upp aðildarviðræður að nýju.

Nýr leiðtogi og skarpari málflutningur Samfylkingunni til góðs
Samfylkingin mælist stærst allra flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir stöðuna ekki mikla forspá fyrir næstu kosningar en leiðtogabreytingar og endurskipulag málefna virðist reynast flokknum vel.

Samfylkingin stærsti flokkur landsins
Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og er með tæplega 24 prósenta fylgi.

Meirihluti landsmanna vill fleiri vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir
Sextíu og sex prósent Íslendinga eru á því að fleiri vatnafls- og jarðvarmavirkjanir þurfi að reisa hér á landi, ef marka má nýja könnun.

Þriðjungur vill sjá Kristrúnu sem fjármálaráðherra
Maskína spurði í nýlegri könnun um frammistöðu formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili og niðurstöðurnar voru um margt forvitnilegar. Þá var spurt hver eigi að vera forsætisráðherra og hver fjármálaráðherra.

Samfylkingin orðin stærsti flokkur landsins samkvæmt könnun
Samfylkingin er stærsti flokkur landsins, með örlítið forskot á Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu. Stjórnmálafræðingur segir þetta mikil tíðindi - og allt Kristrúnu Frostadóttur að þakka.

Currywurst ekki lengur uppáhaldsskyndibiti Þjóðverja
Ný skoðanakönnun bendir til að Þjóðverjar séu í auknum mæli að snúa baki við hefðbundnum þýskum pylsum þegar kemur að vali á skyndibita. Aldur svarenda virðist þó ráða miklu þegar kemur að valinu.

Fylgi Samfylkingar rúmlega tvöfaldast frá síðustu kosningum
Fylgi Samfylkingarinnar hefur rúmlega tvöfaldast frá þingkosningum á síðustu ári samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 21 prósent samanborið við 9,9 prósent í þingkosningunum í september 2021 og fengi flokkurinn samkvæmt könnuninni fimmtán þingmenn kjörna.