Átök Kúrda og Tyrkja

Ætla nú að senda fleiri hermenn og jafnvel skriðdreka til Sýrlands
Bandaríkin ætla að skilja fleiri hermenn en áður hefur komið fram eftir í Sýrlandi með því markmiði að velja ríkar olíulindir gegn vígamönnum Íslamska ríkisins.

Ætlar að mylja Kúrda yfirgefi þeir ekki öryggissvæðið
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir að herafli sinn muni gera út af við meðlimi Sýrlenska lýðræðishersins, SDF, yfirgefi þeir ekki "öryggissvæðið“ svokallaða í norðausturhluta Sýrlands.

Rússneskir hermenn komnir á vígstöðvarnar
Rússneskir hermenn eru nú komnir til Norðaustur-Sýrlands eftir að Tyrkir og Rússar komust að samkomulagi í gær. Bandaríkin hafa tilkynnt um afléttingu viðskiptaþvingana sinna á Tyrki og sagði Bandaríkjaforseti að Tyrklandsstjórn hefði tjáð sér að vopnahlé á svæðinu væri orðið varanlegt.

Hermennirnir hafa mánuð til að fara frá Írak
Yfirvöld Írak segja að bandarísku hermennirnir sem eru komnir til Írak frá Sýrlandi verði að yfirgefa landið innan fjögurra mánaða.

Ætla ekki að herja á Kúrda í bili
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, og Vladimir Pútín, forseti Rússlands, komust í gær að samkomulagi sem þeir kalla sögulegt.

Bandaríkin afnema viðskiptaþvinganir á Tyrkland
Bandaríkin hafa afnumið viðskiptaþvinganir sem settar voru á Tyrkland fyrir níu dögum vegna innrásar Tyrkja inn í Sýrland. Bandaríkjaforseti segir yfirvöld í Tyrklandi hafa fullvissað sig um að þau muni virða nýlegt vopnahlé.

Bandarískir hermenn verða áfram í Sýrlandi
Bandaríkjaforseti hefur staðfest að nokkur hópur bandarískra hermanna verði áfram í Sýrlandi þrátt fyrir brottflutning þeirra frá norðausturhéruðum landsins á dögunum.

Bandarísku sveitirnar grýttar við brottförina frá Sýrlandi
Bandarískar hersveitir voru grýttar þegar þær yfirgáfu yfirráðasvæði Kúrda í norðurhluta Sýrlands í gær. Bandarísk stjórnvöld íhuga nú að staðsetja hluta herliðsins nálægt olíulindum á svæðinu til að aðstoða sveitir Kúrda.

Fyrrverandi yfirmenn CIA gagnrýna Trump vegna Sýrlands
Tveir fyrrverandi yfirmenn Leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, gagnrýndu Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, harðlega í dag fyrir ákvörðun hans að draga hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi. Auk þess voru fleiri núverandi og fyrrverandi embættismenn og hermenn sem gagnrýndu forsetann í fréttaþáttum dagsins.

Tyrkir vilja aðstoð Rússa gegn Kúrdum
Sýrlenski lýðræðisherinn (SDF), her Kúrda, tilkynnti á sunnudag að allir hermenn hans hafi hörfað frá landamærabænum Ras al-Ayn. Þetta gerðu þeir til að standa við vopnahléssamning sem Bandaríkin tryggðu á milli Kúrda og Tyrkja.

Bandarískar hersveitir fara frá Sýrlandi til vesturhluta Írak
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Mark Esper, segir að hersveitir Bandaríkjanna sem eru að yfirgefa Sýrland muni fara til vesturhluta Írak þar sem Bandaríkjaher mun halda áfram að berjast gegn hryðjuverkahópnum sem kennir sig við íslamskt ríki í von um að hópurinn muni ekki ná uppgöngu að nýju.

„Þetta er ekki vopnahlé“
Íslenskur Kúrdi segir hérlend stjórnvöld geta gert miklu betur í að vekja athygli á bágri stöðu Kúrda í Sýrlandi eftir innrás Tyrkja.

Trump segir Bandaríkin stjórna olíunni í Mið-Austurlöndum
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sagði á föstudag að ákvörðun hans um að draga bandarískar hersveitir frá landamærum Sýrlands og Tyrklands hafi hvorki hnekkt á trúverðugleika Bandaríkjanna, né svikið kúrdíska bandamenn og þar með aukið líkur á endurkomu hryðjuverkasamtaka sem kenna sig við íslamskt ríki á svæðinu.

Óvissa um vopnahléið sem Tyrkir kalla pásu
Bardagar geisuðu áfram í Sýrlandi í dag, samkvæmt sýrlenskum Kúrdum og eftirlitsaðilum, þrátt fyrir að Tyrkir og Bandaríkjamenn hafi lýst yfir umdeildu vopnahléi í gær.

Erdogan samþykkir að leggja niður vopnin tímabundið
Forseti Tyrklands féllst á bón varaforseta og utanríkisráðherra Bandaríkjanna um að gera hlé á innrás sinni í norðausturhluta Sýrlands í kvöld. Vopnahlé verður í 120 klukkustundir og er ætlast til þess að hersveitir Kúrda yfirgefi það svæði við landamæri ríkjanna sem Tyrkir hafa útnefnt öruggt.

Trump gaf samkomulagi Kúrda við Assad-liða blessun sína
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mótmælti því ekki að sýrlenskir Kúrdar leituðu á náðir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og bandamanna Rússa. Það gerðu Kúrdar eftir að Trump skipaði bandarískum hermönnum að yfirgefa Sýrland í aðdraganda innrásar Tyrkja, sem líta á sýrlenska Kúrda sem hryðjuverkamenn.

Sagan á bakvið myndina umdeildu
Fundur Demókrata og Donald Trump í Hvíta húsinu í gær heppnaðist ekki vel.

Sýrlandsher hélt inn í Kobane
Taka bæjarins gerir Tyrkjum erfiðara um vik við að koma upp sínu svokallaða öryggissvæði við landamærin að Tyrklandi eins og stefnt hefur verið að.

SÞ ítreka ákall um vopnahlé í Sýrlandi
Sameinuðu þjóðirnar ítrekuðu í dag ákall sitt um vopnahlé í Sýrlandi. Forseti Tyrklands vill ekki semja við Kúrda og krefst þess að þeir leggi niður vopn sín í kvöld.

Óttast að Tyrkir fái sínu framgengt líkt og Rússar á Krímskaga
Framganga Tyrkja í Norðurhluta Sýrlands var fyrirferðarmikið umfjöllunarefni á ársfundi Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í Lundúnum um helgina.

Erdogan skiptir um skoðun og ætlar að hitta Mike Pence
Hann segir að hann muni eingöngu ræða við Donald Trump, forseta, um mögulegt vopnahlé í norðausturhluta Sýrlands.

Erdogan hafnar kröfum Bandaríkjamanna
Donald Trump Bandaríkjaforseti krafðist þess af Tyrklandsforseta að hann hætti samstundis stríðsrekstri sínum í norðausturhluta Sýrlands.

Segir innrás Tyrkja beint gegn hryðjuverkamönnum Kúrda
Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, sendi Fréttablaðinu grein sem birt var á frettabladid.is í gær. Þar rekur hann ástæður Tyrklandsstjórnar fyrir innrásinni í Kúrdahéröð Sýrlands.

Hætta að selja Tyrkjum vopn
Atlantshafsbandalagsríki ætla að hætta að selja Tyrkjum vopn vegna innrásar þeirra á yfirráðasvæði Kúrda í Sýrlandi. Rússar segjast ekki ætla að leyfa bein átök Tyrkja og sýrlenska stjórnarhersins.

Hatur á Kúrdum, þjóðremba og þrá til að auðgast
Þeir menn sem fara fremst í fylkingu í innrás Tyrkja í norðaustururhluta Sýrlands eru að mestu Sýrlendingar sem eru þjálfaðir og fjármagnaðir af Tyrklandi.

Trump ræddi við Erdogan í síma
Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna greindi frá símtali Trumps og Erdogan og sagðist sjálfur ætla að heimsækja Sýrland á allra næstu dögum til að lægja ófriðaröldurnar.

Gjörðir hafa afleiðingar
Verstu afleiðingar ákvörðunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að draga bandarískt herlið frá norðurhluta Sýrlands virðast því miður ætla að raungerast.

Átökin í norðurhluta Sýrlands að flækjast
Sýrlandsher berst með Kúrdum á einum stað en gegn þeim á öðrum. Tyrkir og málaliðar þeirra segjast hafa náð tveimur borgum. Á meðan sleppa Kúrdar fjölskyldum ISIS og Bandaríkjamenn færa herafla frá Sýrlandi til Sádi-Arabíu.

Kúrdar snúa sér til Assads og Erdogan ósáttur við Evrópuríki
Sýrlenski stjórnarherinn hefur í dag þokast nær landamærunum við Tyrkland til að berjast við hlið Kúrda. Evrópusambandið takmarkar vopnasölu til Tyrklands.

Evrópuríki takmarka vopnasölu til Tyrklands
Evrópusambandið samþykkti ekki lagalega bindandi vopnasölubann þrátt fyrir að mörg aðildarríkin séu reið Tyrkjum vegna innrásarinnar í Norður-Sýrland.