Íþróttir
134 135 136 137 138 139 140 141 142 … 334 ›
Martröðin heldur áfram hjá Delaney Meiðslakálfurinn Mark Delaney hjá Aston Villa þarf enn að bíða eftir því að geta unnið sér sæti í liðinu eftir að í ljós kom að hann þarf að fara í annan hnéuppskurðinn á skömmum tíma. Delaney gat lítið sem ekkert spilað með Villa á síðustu leiktíð, en spilaði landsleik fyrir Wales í síðasta mánuði. Það vildi ekki betur til en að nú þarf kappinn í uppskurð á ný. Enski boltinn 26.9.2006 17:33
Á von á stórleik frá Rooney og Ronaldo Alex Ferguson á von á stórleik frá þeim Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney í meistaradeildinni í kvöld þegar Manchester United sækir Benfica heim, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30. Fótbolti 26.9.2006 17:18
Ég verð að dreifa álaginu Rafa Benitez hefur nú enn á ný þurft að bera hendur fyrir höfuð sér vegna sífelldra breytinga sem hann gerir á byrjunarliði Liverpool, en ljóst þykir að hann muni stokka upp í hópnum fyrir leikinn gegn Galatasaray annað kvöld og verður það 93. leikurinn í röð þar sem Liverpool teflir fram breyttu byrjunarliði. Fótbolti 26.9.2006 16:46
Landsliðsferlillinn virðist vera búinn Ruud Van Nistelrooy segir það skrítna tilfinningu að tala um feril sinn sem landsliðsmaður í þátíð, en hann á alls ekki von á því að fá að spila annan landsleik undir stjórn núverandi landsliðsþjálfara, Marco Van Basten. Sport 26.9.2006 16:35
Benfica - Man Utd í beinni á Sýn í kvöld Það verður mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld eins og venjulega þegar spilað er í meistaradeild Evrópu. Aðalleikur kvöldsins verður viðureign Benfica og Manchester United sem sýndur er á Sýn, en auk þess verða leikir Arsenal - Porto og Real Madrid og Dynamo Kiev sýndir beint á aukarásum Sýnar klukkan 18:30. Fótbolti 26.9.2006 16:19
Spike Lee leikstýrir auglýsingu fyrir Dwyane Wade Kvikmyndaleikstjórinn og körfuboltaáhugamaðurinn Spike Lee hefur nú lokið tökum á nýjustu auglýsingaherferð fyrir nýja Converse-skó sem Dwyane Wade hjá Miami Heat mun nota á næsta tímabili. Wade var kjörinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA í sumar þegar lið Miami vann meistaratitilinn. Körfubolti 26.9.2006 16:08
Björgólfur bestur í síðustu umferðunum Framherjinn Björgólfur Takefusa hjá KR var í dag útnefndur besti leikmaður 13.-18 umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Teitur Þórðarson hjá KR var kjörinn besti þjálfarinn og Garðar Örn Hinriksson var kjörinn besti dómarinn. Þá þóttu stuðningsmenn Víkings þeir bestu í síðustu umferðunum og Skagamenn áttu flesta leikmenn í úrvali umferðanna. Íslenski boltinn 26.9.2006 15:52
Renault segir pressuna mikla á Schumacher Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault, segir að Fernando Alonso standist pressu betur en Michael Schumacher og telur meistaralið Renault eiga betri möguleika til að ná góðum árangir um næstu helgi þegar keppt verður í Kína. Formúla 1 26.9.2006 15:29
Umboðsmaður Cole settur í bann og sektaður Jonathan Barnett, umboðsmaður Ashley Cole hjá Chelsea, hefur verið settur í 18 mánaða bann, þar af 9 skilorðsbundna, fyrir þátt sinn í því þegar Chelsea ræddi ólöglega við leikmanninn þegar hann var samningsbundinn Arsenal á sínum tíma. Cole og Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hafa þegar tekið út refsingu sína vegna þessa. Barnett var auk þessa gert að greiða 100 þúsund punda sekt. Enski boltinn 26.9.2006 15:24
Newcastle að landa Waterreus Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle er nú við það að landa til sín fyrrum landsliðsmarkverði Hollendinga, Ronald Waterreus, sem áður lék m.a. með Celtic og Manchester City. Waterreus er 36 ára gamall og verður ætlað að vera varamarkvörður Steve Harper sem fyllir skarð Shay Given eftir að sá þurfti í uppskurð á dögunum. Enski boltinn 26.9.2006 14:50
Meistaradeildin er óklárað verkefni Arsene Wenger segir hungur í velgengni í meistaradeildinni svo mikið að það yrði ekki nóg fyrir sig að vinna keppnina þrjú ár í röð. Arsenal krækti í silfurverðlaun á síðustu leiktíð, en það er fjarri því að nægja Wenger. Arsenal mætir Porto í keppninni í kvöld og verður leikurinn í beinni á Sýn Extra klukkan 18:30. Fótbolti 26.9.2006 14:40
Mannabreytingar hjá ÍA Ný rekstrarstjórn hefur tekið við ÍA en fráfarandi stjórn hefur óskað eftir því að vera leyst undan störfum. Félagið sendi frá sér fréttatilkynningu þessa efnis nú fyrir skömmu. Íslenski boltinn 26.9.2006 13:15
Dani genginn í raðir félagsins Valsmenn eru ekkert að bíða með að bæta við sig mannskap fyrir næsta sumar í Landsbankadeild karla því að í gær gekk félagið frá tveggja ára samningi við danska leikmanninn Rene Carlsen. Sport 25.9.2006 20:46
Manchester United vill hefna ófara síðasta árs Árið 1966 skoraði átján ára unglingur að nafni George Best þrennu fyrir Manchester United gegn portúgalska liðinu Benfica í Evrópukeppni meistaraliða. Þá þaggaði hann í áhorfendum á leikvangi ljóssins í Portúgal sem fyrir rest stóðu upp og hylltu afrek hans. Tveimur árum síðar skoraði hann aftur gegn liðinu, þá í úrslitaleik keppninnar og tryggði ensku liði í fyrsta sinn Evrópumeistaratitil. Sport 25.9.2006 20:46
Gladbach og Aachen sektuð Þýsku úrvalsdeildarfélögin Aachen og Borussia Mönchengladbach hafa verið sektuð af þýska knattspyrnusambandinu eftir að stuðningsmenn liðanna viðhöfðu niðrandi ummæli sem fólu í sér kynþáttafordóma um leikmennina í leik liðanna. Aachen var sektað um 6,75 milljónir króna og Gladbach um 2,25 milljónir. FH var í sumar sektað um 30 þúsund krónur fyrir samskonar atvik í leik liðsins gegn ÍBV. Sport 25.9.2006 20:46
50 grunsamleg félagaskipti Fyrr á árinu réð enska knattspyrnusambandið fyrrum yfirmann Lundúnalögreglunnar, Stevens lávarð, til að rannsaka ásakanir um mútugreiðslur í tengslum við félagaskipti leikmanna. Greint var frá því um helgina að rannsókn Stevens hefði leitt í ljós 50 grunsamleg félagaskipti sem skoða þyrfti nánar. Alls voru 362 félagaskipti skoðuð. Niðurstöðu rannsóknarinnar er að vænta á mánudag. Sport 25.9.2006 20:46
Í dái og berst fyrir lífi sínu Dario Silva, fyrrum leikmaður Portsmouth og úrúgvæska landsliðsins, lenti nýverið í bílslysi í heimalandi sínu og er illa haldinn. Hann hefur þegar gengist undir aðgerð og er haldið sofandi en læknir á spítalanum þar sem Silva dvelst sagði hann berjast fyrir lífi sínu þessa stundina. Fyrrverandi landsliðsfélagar Silva, Elbio Pappa og Dardo Pereira, voru einnig í bílnum en sluppu með minni háttar meiðsli. Silva keppti á HM 2002 með landsliði sínu en yfirgaf Portsmouth í febrúar síðastliðnum og er ekki bundinn neinu félagi eins og er. Sport 25.9.2006 20:46
Pabbinn nýbakaði var hvíldur Svíinn Zlatan Ibrahimovic var hvíldur um helgina er Inter vann Chievo, 4-3, í ítölsku úrvalsdeildinni í fyrradag. Á föstudag fæddist honum sonur sem var nefndur Maximilian og ákvað Roberto Mancini, þjálfari Inter, að hvíla hann í leiknum. Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan, sagði að það hefði engum tilgangi þjónað. "Hann er ekki þreyttur enda var það ekki hann sem fæddi barnið," sagði Raiola. Sport 25.9.2006 20:46
Björgólfur og Ólafur bestir Íþróttafréttamenn Fréttablaðsins og Sýnar völdu í gærkvöld í sérstökum Landsbankadeildarþætti á Sýn bestu einstaklingana í síðari hluta Íslandsmótsins. Sport 25.9.2006 20:46
Vill til Noregs eða Danmerkur Dusan Djuric, leikmaður Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni, telur ferli sínum best borgið ef hann fer til félags utan eigin heimalands. Hann hefur verið orðaður við AIK, efsta félagið í deildinni, en þangað vill hann ekki fara. "Ég vil frekar fara til eitt af betri félögunum í Noregi eða Danmörku. Til dæmis FC Kaupmannahöfn, það væri gott skref fyrir mig," sagði Djuric sem er 22 ára gamall og hefur leikið einn leik með sænska A-landsliðinu. Sport 25.9.2006 20:46
Newcastle vill fá Hedman Aftonbladet greindi frá því í gær að Newcastle hefði sett sig í samband við fyrrum sænska landsliðsmarkvörðinn Magnus Hedman sem lagði skóna á hilluna fyrir fimmtán mánuðum. Hedman er 33 ára gamall og fyrirspurnin kom honum algerlega í opna skjöldu. ¿Ég átti ekki von á því að fólk myndi eftir mér þar sem ég hef ekki spilað lengi,¿ sagði Hedman. Shay Given lagðist nýverið undir hnífinn og verður frá í sex vikur. Sport 25.9.2006 20:46
Valsmönnum spáð sigri Valur og Stjarnan munu standa uppi sem sigurvegarar í DHL-deild karla og kvenna ef spár forráðamanna og fyrirliða liða í deildunum rætast. Átta lið mæta til leiks í 1. deild karla og þar er Aftureldingu og FH spáð í 1. og 2. sætið. Sport 25.9.2006 20:46
Það var erfiðast að eiga við Ronaldo og Rooney Ívar Ingimarsson fær 7 í einkunn hjá Sky Sports fréttastöðinni fyrir frammistöðu sína í jafnteflisleiknum gegn Manchester United á laugardaginn og Brynjar Björn Gunnarsson, sem kom inn á sem varamaður þegar um 20 mínútur voru eftir, fær 5 í einkunn. Enn fremur segir í umfjöllun að Ívar hafi verið mjög öflugur í vörninni ásamt félaga sínum Ibrahima Sonko en að Brynjar Björn hafi verið „allt í lagi“ eins og það segir orðrétt. Enski boltinn 24.9.2006 19:26
Væri ekki líft í Kópavogi hefði Breiðablik fallið Steinþór Freyr Þorsteinsson átti mjög góðan leik fyrir Breiðablik á laugardaginn þegar lokaumferð Landsbankadeildarinnar fór fram. Hann hefur verið valinn leikmaður umferðarinnar af Fréttablaðinu. Íslenski boltinn 24.9.2006 19:25
Skýrist í dag? "Við erum alveg rólegir yfir þessu, það virðist vera mikill áhugi á þessu starfi," sagði Brynjar Jóhannesson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Fram, aðspurður um þjálfaramál félagsins. Ákveðið var að framlengja ekki samninginn við Ásgeir Elíasson sem stýrði Fram til sigurs í 1. deildinni í sumar og er verið að leita að manni til að stýra liðinu í Landsbankadeildinni á næsta ári. Íslenski boltinn 24.9.2006 19:25
Ronaldo getur orðið sá besti Cristiano Ronaldo býr yfir það miklum hæfileikum að hann getur orðið besti leikmaður heims í nánustu framtíð. Þetta er mat Carlos Queiroz, aðstoðarþjálfara Manchester United. Queiroz lét orðin falla eftir jafnteflisleikinn gegn Reading á laugardag, en þá var það Ronaldo sem skoraði mark Man. Utd. Enski boltinn 24.9.2006 19:26
Orðsporið er varanlega skaðað Sam Allardyce, stjóri Bolton í ensku úrvalsdeildinni, telur að sú mynd sem birtist af honum í spillingarþættinum hafi komið varanlegum skaða á orðspor sitt. Allardyce var sterklega orðaður við enska landsliðið í vor og var almennt talinn einn af heitustu knattspyrnustjórunum í landinu. Enski boltinn 24.9.2006 19:26
Þetta hefur verið versti tími lífs míns Craig Allardyce, sonur Sam Allardyce hjá Bolton og umboðsmaðurinn sem var í aðalhlutverki í spillingarþætti BBC um ensku knattspyrnuna í síðustu viku, segist aldrei geta fyrirgefið sjálfum sér fyrir að bregðast föður sínum og allri fjölskyldu sinni með framkomu sinni í þættinum. Enski boltinn 24.9.2006 19:26
Létu mikið að sér kveða Íslenskir leikmenn settu mark sitt á norska boltann um helgina en Marel Baldvinsson og Veigar Páll Gunnarsson voru báðir á skotskónum. Marel opnaði markareikning sinn hjá Molde með því að skora fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á Lilleström. Sigurinn var afar dýrmætur því með honum kom Molde sér af mesta fallsvæðinu. Veigar Páll heldur áfram að spila eins og engill og í gær skoraði hann sigurmark Stabæk gegn Fredriksstad þar sem lokatölur urðu 3-2. Fótbolti 24.9.2006 21:01
Inter skaust á toppinn Ítalíumeistararnir í Inter unnu 4-3 sigur á Chievo í gær í ótrúlegum leik á heimavelli sínum. Með þessum sigri komst Inter á toppinn en það munaði litlu að liðið glopraði niður forskoti sínu eftir að hafa komist í 4-0. Á seinasta stundarfjórðungi leiksins skoraði Chievo þrjú mörk og fékk færi í viðbótartíma til að ná jafntefli. Fótbolti 24.9.2006 19:25