Viðskipti

Girnast erlend flugfélög
Flugleiðir fyrirhuga að fjárfesta í flug- og ferðaþjónustu annars staðar á Norðurlöndum og hafa augastað á flugfélögunum Maersk og Sterling, ef þeim tekst að vinna sig út úr miklum rekstrarerfiðleikum. Þetta segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, í viðtali við danska viðskiptablaðið <em>Börsen</em>.

0,85% lækkun staðgreiðsluhlutfalls
Lækkun á staðgreiðsluhlutfalli milli ára verður 0,85% eftir að tillit hefur verið tekið til meðal útsvarshækkunar milli ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fjármálaráðuneytið sendi síðdegis.

Fleiri kvarta vegna Bandaríkjabíla
Kvörtunum hefur heldur farið fjölgandi að undanförnu í kjölfar bílakaupa einstaklinga beint frá Bandaríkjunum, að sögn Stefáns Ásgrímssonar hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Þangað berast nú einhverjar kvartanir í viku hverri.</font />

Enn at í fasteignasölu
Velta vegna fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri en í fyrstu viku desember. Formaður Félags fasteignasala segir góða sölu á stærri eignum og sérbýli. Með nýjum lánamöguleikum séum við að hoppa inn í nútímann.

Noregur er heimamarkaður
Noregur er skilgreindur sem heimamarkaður Íslandsbanka ásamt Íslandi. Skráning í norsku kauphöllina þykir áhugaverð og verður skoðuð gaumgæfilega þegar fram líða stundir.

Kaupa 160 pöbba í London
KB banki fjármagnar ásamt Bank of Scotland kaup bresk-íranska milljarðamæringsins Robert Tchenguiz á 160 krám í verslunarhverfum í Bretlandi. Auk þess að vera einn höfuðlánardrottinn viðskiptanna eignast bankinn hlut í fyrirtæki.

Kauphöllinni boðið í OMX
Mikill áhugi er á því hjá sameinaðri kauphöll Danmerkur, Finnlands, Svíþjóðar og Eystrasaltslandanna, sem standa að OMX samstarfinu, að fá Ísland og Noreg inn í samstarfið. Enn á eftir að taka afstöðu til þess í stjórn Kauphallarinnar hvernig brugðist verði við þessum áhuga.
Fróði skiptir um nafn
Nýtt félag hefur verið stofnað um útgáfu á vegum Fróða og heitir það Tímaritaútgáfan Fróði ehf.
Danske bank keypti tvo írska banka
Danske Bank keypti í morgun ráðandi hlut í tveimur írskum bönkum. Kaupin eru fyrstu kaup dansks banka utan Skandinavíu. Það er til marks um stemninguna á Bretlandi að þegar fréttist af því að norrænn banki sýndi bönkunum áhuga, beindist grunurinn strax að íslenskum fjárfestum.

Fimm milljónir gesta í Kringlunni
Fimm milljónasti gestur Kringlunnar á árinu gekk inn um aðalinnganginn klukkan fjórtán mínútur í þrjú í gær.

Skuldir Landsvirkjunar lækka
Styrking krónunnar og lækkun bandaríkjadals lækkar skuldir Landsvirkjunar um þrjá og hálfan milljarð króna og leiðir til verulegs gengishagnaðar. Orkusölutekjur fyrirtækisins af stóriðju eru hins vegar í dollurum og því veldur veik staða hans áhyggjum.

Bílar keyptir á uppboði á ebay
Fjöldi einstaklinga velur nú að kaupa sér bíla á Netinu í stað þess að kaupa þá af bílasölum eða umboðum hérlendis. Fólk leitar helst til Bandaríkjanna þar sem dollarinn er mjög hagstæður innkaup þar.

Gengi dollarans lækkar á ný
Gengi dollarans lækkaði enn á ný gangvart helstu gjaldmiðlum í morgun eftir að hafa staðið í stað eða hækkað lítillega seinnipart síðustu viku. Á morgun koma upplýsingar um þróun í viðskiptum í Bandaríkjunum sem hafa áhrif á ákvarðanir bandaríska seðlabankans um vaxtastigið.

50% verðmunur á hjartalyfjum
Allt að 50 prósenta verðmunur reyndist vera á tilteknum hjartalyfjum í apótekum í könnun sem Velferð, málgagn Hjartaheilla, gerði á dögunum.

Búast má við bensínlækkun
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti lækkaði um 16 prósent í nóvembermánuði og fram í byrjun desember, að viðbættu sigi dollars.

Mikill hagvöxtur
Hagvöxturinn á milli þriðja ársfjórðungs í ár og í fyrra var 7,4 prósent og hefur ekki mælst hærri síðan á fyrsta ársfjórðungi árið 2001.

Hægði á hækkun eignaverðs
Heldur hægði á hækkun eignaverðs í október samkvæmt hálffimmfréttum KB banka. Tólf mánaða hækkun eignaverðsvísitölu bankans fer úr 25,5% niður í 20,5%. Ástæða þess liggur í að eignaverðsvísitalan lækkaði um 2,2% að raunvirði í október að sögn bankans.

KB banki hækkar vexti
KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. desember.

Frekari samruni norrænna kauphalla
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, sagði í viðtali við alþjóðlegu CNBC- fréttastofuna í dag að hann væri hlynntur frekari samruna norrænu kauphallanna. Hann lagði þó áherslu á að sameining íslensku kauphallarinnar við aðra verðbréfamarkaði á Norðurlöndunum væri ekki á dagskrá og ekki lægi enn fyrir hvaða kosti slíkt kynni að hafa í för með sér.
Kaupauka skotið undan skatti
Mörg dæmi eru um að forsvarsmenn fyrirtækja sem gera kaupréttarsamninga komi sér undan greiðslu tekjuskatts af bréfunum. Þetta kemur fram í skýrslu skattsvikanefndar sem skilaði niðurstöðu til Alþingis fyrir helgi.

Vill breytt markmið
Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að breyta eigi lögum um Seðabanka Íslands. Samkvæmt þeim hefur Seðlabankinn það hlutverk að stuðla að verðstöðugleika.
Sala ákveðin
Baugur hefur komist að samkomulagi um að selja Woodwards-matvælabúðirnar til keppinautarins 3663, eftir því sem fram kom í breska blaðinu Sunday Telegraph í gær.

Fráleitt að bankar stundi lögbrot
Það er alvarlegt mál að ýja að því að fjármálafyrirtæki hér á landi komi nálægt ráðgjöf um hvernig svíkja eigi undan skatti, segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Hann segir fráleitt að þau stundi slíka starfsemi.

Útlendingar skoða meðferð sauðfjár
Allar líkur eru á því að íslenska lambakjötið fái á næsta ári sérstaka vottun frá verslunarkeðjunni Whole Foods Markets um góða meðferð sauðfjár að sögn Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra Áforms. Baldvin segir þetta afar mikilvægt þar sem verslunarkeðjan sé með mjög kröfuharða gæðastýringu sem njóti mikillar virðingar á markaðnum.

Stóraukinn útflutningur lambakjöts
Alls verða flutt út um 230 brúttó tonn af fersku íslensku lambakjöti til Bandaríkjanna á þessu ári og er það 30 prósenta aukning miðað við árið 2003. Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Áforms sem hefur unnið að markaðssetningu lambakjöts í Bandaríkjunum, segist búast við enn meiri aukningu á næsta ári.

Mogginn flytur
Morgunblaðið flytur úr Kringlunni og upp í Hádegismóa við Rauðavatn þar sem ný prentsmiðja blaðsins er. Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur selt fasteign sína við Kringluna fyrir 2,1 milljarð króna.
OPEC dregur úr framleiðslu
OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, munu draga úr olíuframleiðslu strax í byrjun næsta árs til þess að koma í veg fyrir að heimsverð á olíu lækki meira en það hefur gert. Ahmad Fahad Al-Ahmad, olíumálaráðherra Kúvæt, kynnti þetta í gær en í dag funda olíumálaráðherrar ríkjanna í OPEC.

Eigendur 67% hlutafjár samþykkja
Eigendur að meira en 67% hlutafjár í BNbank, að meðtöldum eignarhlut Íslandsbanka, hafa samþykkt yfirtökutilboð Íslandsbanka í norska bankanum. Tilboðstímabilið hófst 1. <span class="GramE">desember</span> og því lýkur 17. <span class="GramE">desember.</span>

Bakkavör í viðræðum við Geest
Bakkavör tilkynnti í morgun að félagið ætti í viðræðum um yfirtöku á helsta matvælaframleiðslufyrirtæki Bretlands, Geest. Vegna þessa voru viðskipti stöðvuð með hlutabréf Bakkavarar í Kauphöll Íslands. Í tilkynningu Bakkavarar segir að félagið sé á byrjunarstigi viðræðna við Geest sem geti leitt til þess að tilboð verði gert í allt hlutafé félagsins.

Kaupæði því dollarinn svo lágur
Fjölmargir Íslendingar fara nú til Bandaríkjanna til að versla og kunna sér ekki hóf þegar gengi dollarans er jafn lágt og nú. Farþegarnir hafa greitt hundruð eða milljónir króna í aðflutningsgjöld og sektir.