Sundlaugar og baðlón
1 2 3 4 5 6 7 … 16 ›
Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Fornleifastofnun Íslands hefur í sumar staðið að rannsókn á sundlaugarbyggingum á landsbyggðinni sem reistar voru á fyrri hluta tuttugustu aldar. Verkefnið er unnið í samvinnu við Hjörleif Stefánsson arkítekt og hófst árið 2020 með heimildakönnun og kortlagningu á laugum um land allt. Innlent 29.7.2024 11:23
Færa varðturninn í nýjustu sundlaug Reykjavíkur Nýr varðturn verður reistur í Dalslaug í Úlfarsárdal, nýjustu sundlaug Reykjavíkurborgar, sem opnaði í lok árs 2021. Staðsetning núverandi varðturns þykir óheppileg eftir að sundlaugarsvæðið var stækkað með byggingu rennibrauta. Innlent 25.7.2024 17:01
Nekt bönnuð í sánunni og sundlaugargestir ósáttir Fastagestir Breiðholtslaugar eru óánægðir með breytingar á reglum tengdum sánunni við laugina sem nýlega tóku gildi. Finnska sendiráðið útnefndi sánuna þá bestu í Reykjavík fyrir tveimur árum, en nú vilja einhverjir svipta sánuna þeim titli. Innlent 9.7.2024 11:24
Lauginni lokað eftir að lögn fór í sundur Vatnslögn fór í sundur á Álftanesi í Garðabæ í dag með þeim afleiðingum að kalt vatn fór af hverfinu um klukkan ellefu. Gert er ráð fyrir að ekkert kalt vatn renni þar fram eftir degi. Leikskólum og sundlaug hverfisins hefur verið lokað. Innlent 4.7.2024 11:28
Loka sundhöllinni vegna skorts á leiðbeinendum Sundhöll Seyðisfjarðar er lokuð tímabundið vegna þess að sumarstarfsmenn sem hafa hug á að starfa í sundlauginni þurfa að fara á námskeið fyrir laugarverði. Innlent 2.7.2024 14:53
Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Um helgina verður fyrstu gestunum hleypt ofan í nýjan baðstað í Kerlingarfjöllum. Í böðunum eru meðal annars heitar setlaugar, kaldur pottur og glæsileg sauna með útsýni yfir fjallgarðinn. Viðskipti innlent 29.6.2024 10:38
Gamla fólkið þarf að greiða fyrir sundferðina Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni. Stakt gjald fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkurborgar er 1.330 krónur. Breytingin tekur gildi frá og með 1. ágúst. Innlent 28.6.2024 14:31
Fastagestur á níræðisaldri káfaði á konu í sundi Karlmaður fæddur árið 1940 hefur verið sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að káfa á konu í sundlaug á Vestfjörðum. Ákvörðun refsingar mannsins, sem er fastagestur í lauginni, var frestað og hún fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Innlent 27.6.2024 13:30
Eldri borgarar mótmæla gjaldtöku Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir harðlega hugmyndum um að innheimta gjald af eldri borgurum í sundlaugum Reykjavíkurborgar. Ingibjörg Sverrisdóttir, stjórnarformaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir þetta bæði vera lýðheilsu- og prinsippmál. Innlent 23.6.2024 19:58
Ólga í Öxarfirði vegna lokunar sundlaugar Ólga er meðal íbúa í Öxarfirði og Kelduhverfi vegna þeirrar ákvörðunar byggðaráðs Norðurþings að loka sundlauginni í Lundi. Aðilar í ferðaþjónustu í héraðinu lýsa einnig megnri óánægju sinni. Sundlaugin er aðeins sjö kílómetra frá Ásbyrgi og hefur verið vinsæl meðal ferðafólks sem sækir heim náttúruperlur Jökulsárgljúfra. Innlent 19.6.2024 13:33
„Hver sofnaði á verðinum?“ Stúkan í Laugardalslaug er að hruni komin, samkvæmt nýrri skýrslu, og algjör óvissa ríkir um framtíð hennar. Íbúi í hverfinu til áratuga segir sárt að horfa upp á þetta merka kennileiti Laugardalsins grotna niður og vill draga stjórnvöld til ábyrgðar. Innlent 8.6.2024 14:01
Stúkan óviðgerðarhæf og jafnvel hættuleg Sérfræðingar sem fengnir voru til þess að meta ástand stúkunnar við Laugardalslaug telja ekki líkur á að hún muni hrynja að svo stöddu. Annar þeirra segir þó ljóst að aldrei verði gert við umfangsmiklar skemmdir á stúkunni og meta þurfi hvort takmarka þurfi aðgang að henni vegna hættu. Innlent 6.6.2024 13:01
Gætu saksótt sundlaugargest vegna andláts í Breiðholtslaug Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun um hvort sundlaugargestur verði sóttur til saka vegna mögulegar ábyrgðar hans á andláti manns sem lést í Breiðholtslaug í desember 2022. Innlent 5.6.2024 13:43
Opna í hádeginu vegna skorts á sumarstarfsfólki Ráðningar í sumarstörf í íþróttamiðstöðinni í Varmahlíð hafa ekki gengið sem skyldi og þarf að grípa til breytinga á opnunartíma þar sem ekki hefur tekist að manna allar stöður. Á virkum dögum verður sundlaugin ekki opnuð fyrr en klukkan tólf. Innlent 4.6.2024 16:24
Sundtískan Mér finnst tíska svo frábær. Fer alltaf í hringi. Gott og vont kemur alltaf aftur. Skoðun 22.5.2024 09:32
Opna Laugardalslaug á ný Laugardalslaug opnaði aftur í morgun eftir stutta lokun vegna viðgerða. Öryggisbilun hafði komið upp í laugarkeri í vikunni sem þýddi að tæma þurfti laugina. Innlent 10.5.2024 10:11
Sumargjafir Það er gamall og góður siður að gefa börnum sumargjöf þegar vora tekur og dagana lengir. Þó hallað hafi undan þeim sið á undanförnum árum eru þó margir Íslendingar sem minnast sumargjafanna með hlýjum hug. Það er nefnilega fallegt að gefa. Skoðun 8.5.2024 18:30
Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Árleg vorlokun Seltjarnarneslaugar verður lengri í ár en síðustu ár. Skipta þarf um stýrikerfi sem forstöðumaður laugarinnar segir að hafi „hangið á bláþræði“ í of langan tíma. Innlent 8.5.2024 14:10
Neyðast óvænt til að tæma laugina Unnið er að því að tæma laugarkar Laugardalslaugar í Reykjavík og verður hún lokuð fram á laugardag. Forstöðumaður Laugardalslaugar segir í samtali við fréttastofu að um helgina hafi komið í ljós bilun í ristum í laugarkarinu og ekki hafi verið annað í stöðunni en að tæma karið. Innlent 8.5.2024 10:00
Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Lögregla var kölluð til seinni partinn í gær þegar unglingsstrákar sem voru með leiðindi við sundlaugarvörð neituðu að fara upp úr. Þegar lögreglu bar að garði voru þeir fljótir að láta sig hverfa. Innlent 28.4.2024 11:31
Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í nótt. Meðal annars var hún kölluð út vegna ungmenna sem voru til leiðinda í sundlaug í hverfi 112 Reykjavík. Innlent 28.4.2024 07:20
Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Fastagestur Sundhallar Reykjavíkur segir að boðaðar viðgerðir á innilaug feli í sér „ófyrirgefanlegan skaða“ á hönnun Guðjóns Samúelssonar. Forstöðukona Sundhallarinnar skilur áhyggjur fastagesta en segir breytingarnar nauðsynlegar. Innlent 22.4.2024 22:21
Grátbiðja borgarstjórana um að bjarga „einstæðu listaverki Guðjóns“ Fastagestir og velunnarar Sundhallarinnar í Reykjavík biðla til borgarstjóra um að falla frá fyrirhuguðum breytingum á einni merkustu byggingu borgarinnar. Listaverki Guðjóns Samúelssonar eins og þeir komast að orði. Innlent 22.4.2024 10:24
Höfðu afskipti af barnaníðingi í Dalslaug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af dæmdum barnaníðingi í Dalslaug í Úlfarsárdal fyrr í dag. Maðurinn sótti laugina á skólatíma og var lögregla kölluð á vettvang. Innlent 11.4.2024 17:43
Ætla að fæla barnaníðing úr sundlauginni Skólastjórinn í Dalskóla í Úlfarsárdal hefur varað foreldra og forráðamenn barna í skólanum við dæmdum kynferðisbrotamanni sem leitar í Dalslaug á skólatíma. Hann spjalli reglulega við drengi í skólasundi. Allt kapp verði lagt á að fæla manninn frá sundlauginni. Innlent 11.4.2024 12:19
Foreldrar undra sig á skerðingu opnunartíma sundlauga Frá og með deginum í gær loka sundlaugar Reykjavíkurborgar klukkan 21 um helgar. Opnunartíminn hefur þannig verið styttur um klukkustund með það að yfirlýstu markmiði að spara fé. Foreldrar ungmenna undra sig á þessari ákvörðun þar sem sund er gríðarlega vinsæl kvöldafþreying unglinga og jafnframt eitt af fáum skjá- og vímulausum umhverfum sem þeim stendur til boða. Innlent 7.4.2024 17:01
Einstakar ljósmyndir úr Sundhöll Reykjavíkur í gegnum tíðina Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg á sér langa sögu sem nær aftur til fjórða áratugs seinustu aldar. Um áratugaskeið var Sundhöllin helsta kennslu- og æfingalaug Reykjavíkur og í gegnum tíðina hefur laugin eignast óteljandi fastakúnna sem þangað koma til að fá sér sundsprett, rækta líkama og sál og ræða þjóðmálin til mergjar í heita pottinum. Lífið 24.3.2024 12:10
Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Hveragerðisbær og Reykjadalsfélagið hafa náð samningi um uppbyggingu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði. Samningurinn felur í sér kaup Reykjadalsfélagsins á byggingarrétti og úthlutun lóða. Neytendur 6.3.2024 23:10
Sundlaugin fyllist á ný og bæjarbúar fagna Byrjað er hleypa vatni ofan í sundlaugina á Þingeyri á ný þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu mánuði. Nýr dúkur hefur verið lagður þar sem sá eldri lak og segir starfsmaður sundlaugarinnar að bæjarbúar fagni innilega. Innlent 4.3.2024 13:15
Heitavatnslaust og sundlauginni lokað Lokað var fyrir heitt vatn á Álftanesi í Garðabæ klukkan 14 í dag vegna bilunar. Sundlauginni á Álftanesi var lokað á sama tíma. Innlent 27.2.2024 16:07