Reykjavík

Svifryki slegið í augu Reykvíkinga
Loftmengunin í borginni rataði í fréttir í síðustu viku og eins og svo oft áður nýtti borgarstjóri tækifærið til að kenna nagladekkjum alfarið um, þótt lítið sé um slit á malbiki vegna nagladekkja enda snjómokstur arfaslæmur.

Ölvun og átök á veitingastöðum borgarinnar
Lögregla var tvisvar kölluð til í miðborginni í gær vegna einstaklinga sem voru með vesen á veitingastöðum. Í öðru tilvikinu aðstoðaði lögregla við að vísa manni út vegna ölvunarástands og í hinu var öðrum manni fylgt út vegna „óspekta“.

„Við verðum aldrei ánægð nema við fáum að vera öll saman“
Fastagestir í Vin, athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, segja áfangasigur hafa unnist í gær þegar ákveðið var að halda starfseminni áfram út árið. Þakklæti var efst í huga gestanna þegar fréttastofa leit við í Vin í dag.

Reyndi að svíkja út vörur með fölsuðum pappírum
Lögreglu barst tilkynning fyrr í dag um mann sem reyndi að svíkja út vörur hjá fyrirtæki í Kópavogi með fölsuðum pappírum.

Fjarlægja hið ægibjarta skilti og biðjast velvirðingar
Flennistórt ljósaskilti verslunar 10-11 í Austurstræti er ólöglegt og verður fjarlægt eftir að kvartanir bárust vegna ljósmengunar. Lýsingarhönnuður telur að skerpa eigi á reglum um lýsingu í borgarlandinu. Skær auglýsingaskilti eigi ekki heima hvar sem er.

Sólarhringsopnun í neyðarskýlum vegna fimbulkulda
Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar um helgina vegna veðurs. Mikill kuldi er í kortunum og frost nær tveggja staða tölu í Reykjavík samkvæmt spám.

Telja Sigrúnu ekki hafa brotið siðareglur lögmanna
Úrskurðarnefnd lögmanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður hafi í störfum sínum ekki gert á hlut Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, með háttsemi sem stríðir gegn lögum eða siðareglum lögmanna.

Slökkt á skiltinu umdeilda á meðan málið er skoðað
Orkan, rekstraraðili 10-11, hefur slökkt á umdeildu skiltu verslunarkeðjunnar á gafli Austurstrætis 17 í miðborg Reykjavíkur, á meðan næstu skref eru til skoðunar.

Hafa aldrei keyrt eins mikið af snjó í burtu í borginni
Snjómokstur stendur enn yfir í Reykjavík en vonir eru bundnar við að honum verði að mestu lokið eftir helgi. Á þriðja tug vörubíla vinna nú að því að fjarlægja snjóskafla. Rekstrarstjóri Borgarlandsins segir þau aldrei hafa flutt eins mikinn snjó og hefur vinnan því tekið lengri tíma en vanalega.

Vera ráðin framkvæmdastjóri Myndstefs
Vera Sveinbjörnsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Myndstefs. Í fréttatilkynningu kemur fram að Vera hafi umfangsmikla reynslu af stjórnsýslu og verkefnastjórnun.

Páll Óskar stígur út í veitingarekstur: „Aðdáandi sem þróast út í það að verða meðeigandi“
Poppstjarnan Páll Óskar er nú orðinn veitingastaðareigandi. Ást Palla á staðnum Indican hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum síðustu mánuði. Hann hefur nú tekið þá ást skrefinu lengra og gerst meðeigandi í staðnum.

Sprenging í útköllum vegna veggjalúsa
Meindýraeyðir segir sprengingu í útköllum vegna veggjalúsa á íslenskum heimilum. Þrátt fyrir að fást við óværur af öllu tagi, starfs síns vegna, segir hann að veggjalúsin sé það kvikindi sem hann vildi síst fá heim til sín.

Nýtt skilti 10-11 of stórt og veldur nágrönnum miklum ama
Embætti skipulagsfulltrúa Reykjavíkur hefur tekið neitkvætt í leyfisveitingu fyrir nýtt skilti verslunarkeðjunnar 10-11 á gafli Austurstrætis 17. Skiltið er metið of stórt miðað við skiltaleiðbeiningar borgarinnar, auk þess að það falli ekki vel að umhverfi sínu og valdi nágrönnum miklum ama.

Grunsamlegur náungi reyndist eftirlýstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo einstaklinga í Hlíðahverfi í Reykjavík í gærkvöldi í tengslum við líkamsárás og fíkniefnamisferli. Þá voru tveir handteknir í Vogahverfinu í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum, eftir að bifreið þeirra valt.

Fyrsta hugsun að kveikja í húsinu þegar veggjalýs komu í ljós
Heimasæta í Grafarvogi lýsir því sem áfalli og fær enn martraðir eftir að heilt vistkerfi af veggjalúsum fannst í rúminu hennar. Sem betur fer gekk hreinsunarstarfið vel svo ekki reyndist ástæða til að kveikja í húsinu, sem móðirin segir að hafi verið sín fyrsta hugsun.

Hætta við lokun Vinjar í bili
Dagsetrið Vin á Hverfisgötu 47 verður rekið í óbreyttri mynd, í það minnsta út þetta ár.

Humarsúpa Bryggjunnar á lista Condé Nast yfir bestu máltíðirnar
Bryggjan Grindavík er á nýjum lista sem birtur hefur verið á síðu Condé Nast Traveler. Ritstjórar síðunnar tóku saman bestu máltíðirnar sem þau höfðu fengið á árinu og humarsúpan frá Bryggjunni komst þar á lista.

Upplifir enn ofbeldi frá borginni þrátt fyrir Landsréttardóm
Reykjavíkurborg hefur ekki enn greitt konu skaðabætur sem Landsréttur dæmdi borgina til að greiða í júní 2021. Konan segist upplifa framkomu borgarinnar í málinu sem hreint ofbeldi.

Óþolandi ástand vegna loftmengunar
Stjórn Landverndar telur að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafi ítrekað upplifað óþolandi ástand vegna loftmengunar. Mengunin sé algjörlega óviðunandi og kallað er eftir aðgerðum.

„Það skortir alla skynsemi í þetta“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill að beðið verði með milljarðaframkvæmdir á Grófarhúsi í miðborg Reykjavíkur í ljósi afleitrar fjárhagsstöðu borgarinnar. Alla skynsemi skorti í fyrirætlanir meirihlutans. Grófarhús gjörbreytist á næstu árum samkvæmt vinningstillögu.

Ekki enn reynst unnt að ræða við þann sem var sparkað niður 23 steintröppur
Ekki hefur reynst unnt að taka skýrslu af karlmanni sem slasaðist alvarlega þegar honum var sparkað niður 23 steintröppur við veitinga- og skemmtistað í október. Rannsókn héraðssaksóknara miðar vel og verður tekin ákvörðun um saksókn í næstu viku.

Óvænt uppgötvun á hótelherbergi í Reykjavík
Meðfylgjandi myndskeið hefur vakið talsverða athygli og umtal eftir að breskur áhrifavaldur að nafni Annchririsu birti það á Tiktok síðastliðinn fimmtudag.

Hraðlestin opnar í húsnæði CooCoo‘s Nest á Granda
„Þegar ljóst var að þau höfðu gert upp hug sinn og að CooCoo's Nest yrði ei meir, þá var það besta í stöðunni að grípa þetta góða tækifæri fyrir okkar veitingahús,“ segir Chandrika Gunnarsson, annar stofnandi og eigandi veitingastaðanna Austur Indíafjelagið og Hraðlestin. Hraðlestin mun opna nýjan stað á Granda í vor, þar sem áður var veitingahúsið CooCoo‘s Nest. Um er að ræða fjórða útibú Hraðlestarinnar á höfuðborgarsvæðinu.

Reyndist ekki tilbúinn að hætta: „Núna er vikan mín komin“
Veitingastaðurinn Lauga-ás var opnaður í gær eftir nokkurra vikna lokun. Opnunin er þó ekki með hefðbundnu sniði en allur ágóði rennur nú til góðgerðamála.

Borgin ekki enn greitt skaðabætur vegna mistaka barnaverndar árið 2013
Reykjavíkurborg hefur ekki enn greitt konu skaðabætur sem Landsréttur dæmdi borgina til að greiða í júní 2021. Þá neitar borgin að afhenda konunni greinagerð dómkvaddra matsmanna um miska konunnar, sem borgin óskaði eftir.

Velferðarráð Reykjavíkurborgar ræðir lokun Vinjar á morgun
Velferðarráð Reykjavíkurborgar mun á morgun fjalla um tillögu borgarstjórnar frá 6. desember síðastliðnum um að leggja niður Vin, dagsetur fyrir fólk með geðraskanir.

Fjölmargar ábendingar borist um vitni í Breiðholtslaug
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið fjölmargar ábendingar um vitni að því þegar hreyfihamlaður karlmaður á áttræðisaldri missti meðvitund í Breiðholtslaug í desember. Andlátið er til rannsóknar hjá lögreglu.

Rannsókn á axarárásinni í Úlfarsárdal miðar vel
Karlmaður sem réðst á fyrrverandi eiginkonu sína vopnaður öxi fyrir framan Dalskóla þann 30. nóvember sætir en gæsluvarðhaldi vegna árásarinnar.

Lögreglumanni dæmdar bætur vegna slyss á valdbeitingarnámskeiði
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða tæpar 8,8 milljónir króna í bætur til lögreglumanns sem varð fyrir vinnuslysi. Umrætt slys átti sér stað í janúar 2020 þegar maðurinn starfaði við þjálfun lögreglumanna á valdbeitingarnámskeiði á vegum ríkislögreglustjóra.

Sérfræðingur í lestarmálum segir aðstæður hér á landi sérlega góðar fyrir lest
Franskur byggingarverkfræðingur sem hefur sérhæft sig í lestarsamgöngum segir aðstæður hér á landi sérlega góðar fyrir lestarkerfi. Framkvæmdin sé vissulega dýr en samgöngur eigi ekki endilega að vera fjárhagslega arðbærar.