

Forsætisráðherra væntir þess að frumvarp um uppgjör á íbúðarhúsnæði í Grindavík verði kynnt síðar í vikunni. Hún segir frumvarpið lúta að því að fólki verði gert kleift að koma sér fyrir á nýjum stað, óháð því hvort hús þeirra hafi verið metin sem tjónuð af Náttúruhamfaratryggingu eða ekki.
Risavaxin sprunga fannst í dag undir íþróttahúsinu Hópinu í Grindavík. Legið hafði fyrir að húsnæðið hafði orðið fyrir miklum skemmdum, en sprungur liggja upp eftir byggingunni og sigdalur er þar í kring.
Brasilísk brjóstafyrirsæta segist hafa þurft á aðhlynningu að halda á íslensku sjúkrahúsi eftir að hafa berað brjóstin við Grindavíkurskilti á Suðurnesjum. Hún segist elska Ísland og geta hugsað sér að búa hér á landi.
Benedikt G. Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofunni, segir að miklar líkur séu taldar á þriðja eldgosinu á Reykjanesi á nokkurra mánaða tímabili. Staðan sé svipuð og fyrir síðastu gos.
Verðmætabjörgun hélt áfram í Grindavík í dag. Fjölmiðlar fóru inn í bæinn í fyrsta sinn í þrjár vikur og fengu að virða fyrir sér skemmdirnar og nýja hraunið.
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi, þó hægt hafi aðeins á landrisi síðustu daga. Svipað ferli er sagt hafa átt sér stað fyrir kvikuhlaupin og eldgosin sem urðu á svæðinu í janúar og í desember.
Forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins Einhamars í Grindavík hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna banns við viðveru og starfsemi í Grindavík.
Grindavík er golfbær. Húsatólftavöllur er heimavöllur Golfklúbbs Grindavíkur og þar stefna menn á að spila hvað sem líður jarðhræringum og eldgosum.
Verðmætabjörgun í Grindavík heldur áfram í dag. Svipað mynstur er á jarðhræringum á svæðinu og fyrir síðasta gos en mögulegt er að minni atburð þurfi en áður til að koma gosi af stað vegna skamms tíma frá síðasta gosi.
Á morgun, þriðjudaginn 6.febrúar, verður aftur farið í fyrra útgefið skipulag þar sem aðgengi að Grindavík verður með þeim hætti að íbúar fá fyrirframskilgreindan dag til að fara til Grindavíkur í lengri tíma en áður.
Yfir 1.200 manns fóru til Grindavíkur í gær, að stærstum hluta íbúar en einnig viðbragðsaðilar. Þess er vænst að fjöldinn verði í kringum þúsund í dag.
Sama magn kviku, eða um 6,5 milljón rúmmetrar, hefur flætt inn í kvikuholfið undir Svartsengi frá goslokum og talið er að hafi flætt inn í kvikuinnskotið í aðdraganda eldgoss 14. janúar síðastliðinn.
Fjöldi Grindvíkinga tæmdi hús sín í dag, þegar íbúar fengu rýmri aðgang að bænum en áður. Einhverjir vonast til að geta snúið aftur á meðan aðrir kvöddu bæinn fyrir fullt og allt í dag.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður og Grindvíkingur, segir Þorrablót Grindvíkinga sem haldið var í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi hafa verið kærkomna stund fyrir Grindvíkinga. Mikið hafi verið hlegið og gert grín að flækustiginu á bakvið aðgerðir almannavarna.
Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir er mjög sátt við að Bláa lónið sé opið þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesi. Hún segir fyrirtækið afar mikilvægt þegar ferðaþjónustan er annars vegar en þar starfa tæplega níu hundruð manns.
Andrea Ævarsdóttir er ein þúsunda Grindvíkinga sem er í Grindavík í dag að tæma húsið sitt.
Þúsund manns munu fara inn til Grindavíkur í dag að vitja eigna sinna og/eða aðstoða við að pakka og/eða flytja búslóð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.
Lögreglustjóri segir viðbragðsaðila á fullu við að undirbúa vitjanir Grindvíkinga á heimilum sínum á morgun. Grindvíkingum verður hleypt inn í bæinn á morgun og á mánudag til að sækja verðmæti. Samskiptastjóri almannavarna segir í boði að samnýta bíla.
Píparar og rafvirkjar ganga nú hús úr húsi í Grindavík ásamt viðbragðsaðilum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Í fyrsta sinn í sögunni geta björgunarsveitir ekki mætt óskum viðbragðsaðila um mannskap og ná ekki að manna vaktir í Grindavík. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir eðlilegt að þolinmæði björgunarsveitarmanna og aðstandenda þeirra þverri.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir almannavarnir munu funda með bæjarstjórn Grindavíkur um aðgengi að bænum á þriðjudag. Hann segir almannavarnir nú vilja létta álagi á björgunarsveitir sem hafi sinnt mikilli þjónustu fyrir almannavarnir á Reykjanesi undanfarin ár.
Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segir það vera haugalygi og rógburð að hann hafi verið handtekinn eftir að hafa neitað að yfirgefa heimili sitt í Grindavík í janúar.
Vegna aukinna líkna á eldgosi við Grindavík og styttri fyrirvara samkvæmt hættumatskorti Veðurstofu Íslands þá hafa almannavarnir ákveðið að Grindvíkingar fái aðgang að íbúðarhúsnæðum sínum fyrr, eða í sex klukkustundir á sunnudag og mánudag.
Grindavík er án kalds neysluvatns vegna ónýtrar stofnlagnar og er dreifikerfið talið verulega laskað. Stofnlögn heitavatns frá Svartsengi er sömuleiðis ónýt og er notast við leka lögn í staðinn. Hugsanlega þurfi að grípa til skömmtunar í öðrum sveitarfélögum vegna þessa.
Jörð heldur áfram að gliðna í Grindavík og frekari skemmdir að verða á húsum í bænum. Fimmtíu starfsmönnum fyrirtækis í Grindavík var sagt upp vegna hamfaranna. Eldgos gæti hafist á næstu vikum eða jafnvel dögum.
Halla María Svansdóttir, veitingakona í Grindavík sem rekið hefur veitingastaðinn hjá Höllu í heimabæ sínum hefur samið við Suðurnesjabæ um aðstöðu í Vörðunni í Sandgerði.
„Þetta er erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu, að gera þetta. Það var bara ekki annað hægt,“ segir Hermann Th. Ólafsson, framkvæmdastjóri Stakkavíkur ehf. í samtali við fréttastofu vegna hópuppsagnar sem fór fram hjá fyrirtækinu um nýliðin mánaðamót.
Veðurspáin í dag gerir ráð fyrir eldingaveðri á Reykjanesi. Til að koma í veg fyrir tjón ef til eldingarveðurs kemur, var ákveðið að taka spennu af strengnum sem liggur yfir hraunið við Grindavík.
Forsætisráðherra mun funda með almannavörnum um stöðuna í og við Grindavík síðar í dag. Hún segist vona að línur skýrist fyrir Grindvíkinga í næstu viku þegar von sé á að frumvarp um stuðning þeim til handa verður kynnt.
Dregið gæti til tíðinda á Reykjanesi á næstu dögum og starfsmenn Veðurstofunnar eru á sólarhringsvakt með augun límd á mælitækjum. Fyrirvarinn gæti orðið styttri en áður þar sem jarðskorpan er heit og minna brotgjörn.