
Alsír

Herinn gefst upp á Bouteflika
Gaid Salah, yfirmaður herafla Alsír, segir að beita þurfi 102. grein stjórnarskrár landsins til að koma forsetanum Abdelaziz Bouteflika frá völdum. Sú grein fjallar um hvað grípa skuli til bragðs ef forseti landsins er ófær um að sinna skyldum sínum.

Bouteflika stígur til hliðar
Abdelaziz Bouteflika, forseti Alsír, er hættur við að gefa aftur kost á sér.

Dómarar snúa baki við hinum heilsuveila Bouteflika
Á annað þúsund alsírskra dómara segjast ekki ætla að taka þátt í eftirliti með fyrirhuguðum kosningum í landinu, bjóði forsetinn Abdelaziz Bouteflika sig fram til endurkjörs.

Forseti Alsír snúinn heim þar sem mótmæli bíða hans
Abdelaziz Bouteflika, forseti Alsír, sem gefið hefur út að þrátt fyrir heilsuvandamál sín ætli hann að gefa kost á sér í komandi forsetakosningu, er kominn aftur til landsins.

Bouteflika situr áfram en lofar að sitja ekki út kjörtímabilið
Alsíringar hafa undanfarið mótmælt því að forseti landsins, hinn 82 ára gamli Abdelaziz Bouteflika, ætli sér að sitja eitt kjörtímabil enn.

Sitjandi forseta mótmælt í Alsír
Almenningur í Algeirsborg og annarsstaðar í Alsír er ansi andstæður áformum Abdelaziz Bouteflika forseta Alsír.

Boðað til forsetakosninga í Alsír
Ekki er tekið fram í tilkynningu hvort að sitjandi forseti bjóði sig fram til endurkjörs.

Bjargað hátt í 900 flóttamönnum
Flugvél Landhelgisgæslunnar hefur tekið þátt í björgun á hátt í 900 flóttamönnum við landamæraeftirlit á Spáni. Stýrimaður vélarinnar segir átakanlegt að sjá hvað flóttafólki hefur fjölgað á þessu svæði.

BBC fjallar um sjúkan og spilltan fótboltaheim í Alsír
Alsír var einu sinni eitt af stórveldum afríska fótboltans en nú má fótboltalandsliðið í Alsír muna sinn fífil fegri.

Afrískt hitamet líklega slegið
Hitinn í Ouargla í Alsír mældist 51,3°C í gær.

Slökkva á nettengingu landsins á prófatímabilinu
Alsírsk stjórnvöld lokuðu á nettengingu landsins í gær vegna lokaprófa í framhaldsskólum landsins.

Á þriðja hundrað létust í flugslysi í Alsír
Um var að ræða herflugvél af gerðinni Il-76 með hermenn um borð en vélin brotlenti skömmu eftir flugtak frá herstöðinni í Boufarik í norðuhluta Alsír.

Óttast um afdrif 200 farþega eftir flugslys
Óttast er að tugir, ef ekki hundruð flugfarþega hafi látist þegar herflugvél hrapaði skömmu eftir flugtak í Alsír í morgun.