Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Kröftug höggbylgja braut glugga og olli skemmdum á húsum í margra kílómetra fjarlægð eftir að eldur kom upp í flugeldaverksmiðju á Möltu. Röð öflugra sprenginga varð í kjölfarið og tveir eru á sjúkrahúsi með áverka af völdum höggsins. Erlent 1.6.2026 22:37
Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Viðræður eru hafnar um að Icelandair kaupi tæplega helmingshlut í starfsemi Play á Möltu. Icelandair segist sjá fyrir sér að með kaupunum geti það flutt hluta starfsemi sinnar til Miðjarðarhafseyjarinnar. Viðskipti innlent 1.4.2026 09:18
Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Farandfólk hverfur í massavís á Miðjarðarhafinu og ríkisstjórnir á svæðinu leyna upplýsingum um hvörfin og björgunarstörf. Fólk þetta er að reyna að komast frá Afríku og Mið-Austurlöndum til Evrópu en hundruð hverfa í hafið á leiðinni. Erlent 17.3.2026 13:13
Nefnd SÞ gegn pyndingum skráir erindi hælisleitenda sem vísað var frá Íslandi Innlent 27.10.2025 14:01
Fleiri hundruð kröfur og líklegt að óeðlilegum greiðslum verði rift Viðskipti innlent 22.10.2025 11:22
Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Aðgerðasinnar um borð í skipi sem er á leið til Gaza strandarinnar með hjálpargögn segja að drónaárás hafi verið gerð á skipið þar sem það var statt á alþjóðlegu hafsvæði undan ströndum Möltu í nótt. Erlent 2. maí 2025 07:51
Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Maltnesk stjórnvöld þurfa að hætta að falbjóða erlendum auðmönnum ríkisborgararétt samkvæmt dómi sem féll í Evrópudómstólnum í dag. Auðmenn gátu í reynd keypt sér rétt til að búa og starfa í Evrópu með því að kaupa vegabréf af Möltu. Erlent 29. apríl 2025 11:29
Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Play hefur náð samkomulagi um rekstur fjögurra véla úr flota flugfélagsins til ársloka 2027 fyrir erlendan flugrekanda með svonefndri ACMI leigu. Flugreksturinn mun fara fram í gegnum Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Til þess að anna eftirspurn yfir sumarmánuðina verður ein flugvél tekin á leigu. Viðskipti innlent 8. apríl 2025 16:45
Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., fékk í morgun afhent flugrekstrarleyfi frá flugmálayfirvöldum á Möltu. Félagið mun leigja út þrjár vélar til austur-evrópsks flugfélags. Viðskipti innlent 28. mars 2025 11:53
Bjóða fyrstu freyju 217 þúsund á mánuði og fimm veikindadaga á ári Maltneskt dótturfélag flugfélagsins Play hefur auglýst í lausar stöður flugliða, svokallaðra fyrstu freyja. Launin sem boðið er upp á eru 217 þúsund krónur á mánuði og veikindadagar eru fimm á ári. Ekki er um að ræða flugliða sem fljúga til og frá Íslandi. Viðskipti innlent 21. mars 2025 17:03
Sækja um leyfi á Möltu Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis. Viðskipti innlent 16. október 2024 16:57
Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja. Innlent 24. maí 2024 08:09
Maðurinn ríkisborgari Möltu Maðurinn sem grunur er um að hafi verið frelsissviptur í heimahúsi í Reykholti í Bláskógabyggð er með maltneskt ríkisfang. Fjögur eru í haldi vegna málsins, grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13. maí 2024 12:32
Bræður dæmdir fyrir morðið á Galizia George og Alfred Degiorgio voru í gær dæmdir í fjörutíu ára fangelsi hvor um sig fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017. Þriðji maðurinn, Vince Muscat, hafði þegar játað á sig aðild að morðinu. Erlent 15. október 2022 08:21
Landsliðsþjálfari Möltu grunaður um að hafa áreitt landsliðsmann kynferðislega Landsliðsþjálfari Möltu í fótbolta hefur verið settur til hliðar vegna ásakana um að hann hafi áreitt leikmann landsliðsins kynferðislega. Fótbolti 28. september 2022 10:02
Hlíf af mótor flugvélar Atlanta lenti í innkeyrslu í Belgíu Hlíf féll af mótor flugvélar frá flugfélaginu Atlanta ehf. sem var á leið frá Liége í Belgíu til Möltu síðastliðinn fimmtudag. Hlífin lenti í innkeyrslu við íbúðarhúsnæði í Waremme í Belgíu. Viðskipti innlent 14. september 2022 16:54
Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Erlent 24. júní 2022 07:46
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. Erlent 23. júní 2022 07:49
Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2. mars 2022 15:14
Maltverji nýr forseti Evrópuþingsins Hin maltneska Roberta Metsola var í morgun kjörin nýr forseti Evrópuþingsins. Hún tekur við stöðunni af hinum ítalska David Sassoli sem lést á dögunum. Erlent 18. janúar 2022 10:51
Maltneska ríkið bar ábyrgð á dauða blaðamannsins Daphne Caruana Galizia Niðurstöður sjálfstæðrar rannsóknar á dauða maltnesku blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia segja að maltnesk yfirvöld þurfi að taka ábyrgð á dauða hennar, eftir að hafa skapað menningu refsileysis í landinu. Erlent 29. júlí 2021 23:21
Malta borgar ferðamönnum til að koma í sumar Yfirvöld í Möltu stefnir á að greiða erlendum ferðamönnum, sem halda til á eyjunni í meira en þrjá daga í sumar, allt að 200 evrur, sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Þau segja aðgerðirnar til þess gerðar að koma ferðaþjónustu eyjunnar á réttan kjöl en atvinnugreinin hefur tekið dýfu niður á við vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 9. apríl 2021 19:26
Játar að hafa ráðið blaðakonuna Daphne Caruana Galizia af dögum Vince Muscat, einn af þremur mönnum sem ákærðir hafa verið fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017, hefur viðurkennt að hafa átt aðild að morðinu. Verjandi Muscat hefur upplýst dómara um að Muscat viðurkenni nú sök í öllum ákæruliðum. Erlent 23. febrúar 2021 14:22
Atlanta stofnar nýtt flugfélag á Möltu Forsvarsmenn íslenska Flugfélagsins Atlanta ehf. hafa ákveðið að stofna nýtt flugfélag á Möltu, sem hlotið hefur nafnið Air Atlanta Europe. Viðskipti innlent 14. október 2020 09:25
Vilja fá tönn sem Attenborough gaf prinsinum aftur Yfirvöld á Möltu munu mögulega krefjast þess að beingervingi hákarlatannar verði skilað til landsins. Hinn víðfrægi David Attenborough gaf Georg prinsi tönnina en hann fann hana í fríi á Möltu fyrir rúmum fimmtíu árum. Erlent 28. september 2020 15:01
Fjörutíu dagar á sjó og þrjár neitanir Hópur flóttafólks er nú kominn í land á Ítalíu eftir að hafa varið yfir 40 dögum á sjó. Danska skipinu sem flutti hópinn var meinað að leggjast að landi í þremur ríkjum. Erlent 13. september 2020 11:08