Myndlist

Fréttamynd

Vilja að lög­reglan finni þann sem skrifaði færsluna

Ingvar Smári Birgisson, lögmaður Péturs Gauts, segir mikilvægt fyrir skjólstæðing sinn að hann fái úr því skorið hvort hann eigi að þurfa að þola aðra eins meðferð og þá að látið sé að liggja að hann sé sekur um einn alvarlegasta glæp sem um getur.

Innlent
Fréttamynd

Banksy opin­beraður, enn einu sinni

Hulunni hefur enn einu sinni verið svipt af götulistamanninum Banksy, sem hefur í rúma þrjá áratugi farið huldu höfði, að mestu. Hann er fæddur 1973 sem Robin Gunningham og er frá Bristol í Englandi. Hann breytti þó nafni sínu í David Jones til að eiga auðveldara með að fara huldu höfði.

Erlent
Fréttamynd

Mun kæra á­burð um barna­perra­skap til lög­reglu

Pétur Gautur myndlistarmaður vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann var, upp úr þurru, sakaður um barnaníð. Þetta gerðist á Facebook-síðunni „Áfram Stelpur!“ Pétur hyggst kæra þessar ásakanir enda varði þær við lög.

Innlent
Fréttamynd

Finn­bogi hlaut Ís­lensku mynd­listar­verð­launin fyrir Skjálfta

Finnbogi Pétursson hlaut í kvöld Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga. Sýningarstjóri var Paulina Brzuskiewicz-Kuhn. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhendi Finnboga verðlaunin í Austurbæjarbíói í kvöld. Verðlaunahafi hlýtur 1,5 milljónir í verðlaun.

Lífið
Fréttamynd

Gjöfull trekantur

Það var líf og fjör í Gallery Port á dögunum þegar sýningin Throuple opnaði með pomp og prakt. Listunnendur komu þar saman og upplifðu fjölbreytileikann.

Menning
Fréttamynd

Þessi hljóta til­nefningu til Myndlistarverðlauna

Þann 11. mars næstkomandi verða Íslensku myndlistarverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíó. Verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan 2018 og hafa skipað sér mikilvægan sess í menningarlandslaginu. Hér að neðan má sjá lista yfir þau sem hljóta tilnefningu í ár.

Menning
Fréttamynd

Andrew á Louvre

Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi.

Menning
Fréttamynd

Albert gaf Villa mál­verk af mótorhjólaferðinni

Fótboltamaðurinn Albert Guðmundsson færði Vilhjálmi Hans Vilhjálmssyni, lögfræðingi sínum, málverk eftir listamanninn Sigurð Sævar Magnússon að gjöf. Albert fór í skýrslutöku á lögreglustöðina á Hverfisgötu eftir að hann var kærður fyrir kynferðisbrot 2023 og fékk síðan far hjá Villa aftan á mótorhjóli hans.

Lífið
Fréttamynd

Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið

Listamennirnir Sindri Dýrason, Anna Jansdóttir, Jón Múli, Jón Sæmundur og Narfi Þorsteinsson héldu málverkasýningu í gamla Landsbankahúsinu í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar föstudaginn 5. febrúar. Um fimm hundruð gestir mættu til að dást að listinni.

Menning
Fréttamynd

„Ný sýn, nýr heimur“

Menningarlífið iðaði í Hveragerði um helgina þegar Pétur Markan bæjarstjóri opnaði formlega fimm sýningar á Listasafni Árnesinga. Fjöldi fólks leit við og listin veitti innblástur.

Menning
Fréttamynd

Hestastelpa úr sveit og sjóð­heitur hönnuður

„Ég er hugfangin af hestum enda eru þeir einstaklega falleg dýr,“ segir listakonan og vöruhönnuðurinn Salóme Hollanders sem hefur algjörlega slegið í gegn með listræna spegla sína og einstök listaverk.

Menning
Fréttamynd

Jói Fel málar með puttunum

Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum.

Lífið
Fréttamynd

Líf og fjör í loðnu mál­verkunum

Það var margt um manninn í versluninni La Boutique Design á Granda síðastliðinn laugardag þegar frumlega listakonan Lilý Erla Adamsdóttir opnaði sýninguna Gróðurþel.

Menning
Fréttamynd

Blint stefnu­mót heppnaðist vel

Menningarvitar landsins komu saman í Ásmundarsal síðastliðna helgi og skáluðu fyrir glæsilegri opnun samsýningarinnar Blint stefnumót eða Blind date. Þar mætast listamennirnir Kristín Karólína Helgadóttir og Sigurður Guðmundsson á skemmtilegan máta.

Menning
Fréttamynd

Líkamsumhirða sem þróast í þrá­hyggju

Listakonan Kristín Helga Ríkharðsdóttir fer einstakar leiðir í listsköpun sinni og hefur vakið mikla athygli hérlendis undanfarið ár. Kristín Helga, sem er fædd árið 1993 og lærði í New York, var að opna einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur sem ber heitið Silkimjúk. Viðfangsefnið snertir meðal annars á þráhyggju fyrir líkamsumhirðu og óútskýrðum ótta við stutt, svört hár.

Menning
Fréttamynd

Hvers virði er starfs­um­hverfi mynd­listar­manna?

Menning og skapandi greinar eru oft settar til hliðar í umræðu um atvinnulíf, eins og þær séu fyrst og fremst skemmtun eða munaður. Raunin er hins vegar sú að listir og menning eru einn af burðarásum samfélagsins – þær móta sjálfsmynd þjóðar, styrkja lýðræði, efla nýsköpun og skapa veruleg efnahagsleg verðmæti.

Skoðun
Fréttamynd

Tekur yfir borgina á ný­árs­dag

Auglýsingahlé verður á yfir 550 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg frá 1. til 3. janúar 2026 þegar verkið Sólarhringur eftir Þórdísi Erlu Zoëga tekur yfir þá. Í verkinu breytast skjáir borgarrýmisins með birtu dagsins, taka mið af litbrigðum sólarljóssins og verða þannig að stafrænni sólarklukku.

Menning
Fréttamynd

Sigurður Sæ­var fyllti Landsbankahúsið

Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar Magnúsarson opnaði einkasýningu með pomp og prakt í Landsbankahúsinu í Austurstræti í gær. Margt var um manninn á opnuninni en um er að ræða verk sem spanna tíu ár á ferli listamannsins.

Menning
Fréttamynd

Ís­lenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum

Vöruhönnuðurnir Bríet Sigtryggsdóttir og Erla Lind Guðmundsdóttir veltu því fyrir sér hvernig Íslendingar myndu framleiða Labubu ef skorið yrði á tengsl landsins við umheiminn. Við tók langt ferli þar sem þær smíðuðu íslenskt lambubu úr kindahorni, ull, heststagli, fiskaugum og roði.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Brjálað að gera á „Brjálað að gera“

Jólastemningin náði nýjum hæðum í Ásmundarsal um helgina þegar Jólasýningin 2025, Brjálað að gera!, var opnuð við frábæra þátttöku gesta. Nafnið reyndist sannarlega lýsandi – frá fyrstu mínútu var líf og fjör í salnum og aðsóknin sló öll fyrri met. 

Menning
Fréttamynd

Vilja minnka allt þetta nei­kvæða suð

Einhverjir koma kannski af fjöllum þegar rætt er um hljóðdempandi listaverk en hönnuðurinn og listamaðurinn Markús Bjarnason hefur á undanförnum árum sérhæft sig í þeim. Hann var að opna sýningu með þessu listformi sem einkennist af miklu notagildi.

Menning
Fréttamynd

Gervigreindin sé enn einn pensillinn í höndum lista­manna

„Við fögnum þessari umræðu og okkur þykir mjög vænt um að fá að taka þátt í því að móta framtíðina,“ sagði Elías Þór Þorvarðarson, sölu- og markaðsstjóri Kjöríss, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Til umræðu voru umdeildar umbúðir jólaíss Kjöríss, sem voru teiknaðar með aðstoð gervigreindar.

Innlent