Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. ágúst 2026 08:02 Götulistamaðurinn Chris Ashmore hefur varið umdeilda veggmynd sína af snókerkappanum Ronnie O'Sullivan. Myndin hefur fallið misjafnlega í kramið hjá fólki.
Ashmore var fenginn til að gera veggmynd af O'Sullivan fyrir aftan snókerstaðinn Spot On í Sheffield. Skiptar skoðanir eru á veggmyndinni af O'Sullivan. Á meðan sumum finnst hún vel heppnuð segja aðrir að heimsmeistarinn sjöfaldi líti út eins og uppvakningur á veggmyndinni, að hann sé undir áhrifum lyfja eða minni á apa. Residents in Sheffield react to a new mural of snooker icon Ronnie O'Sullivan. pic.twitter.com/F56WQwupu9— BBC Sport (@BBCSport) August 28, 2026 Ashmore segir að það hafi komið sér á óvart hversu mikil viðbrögð hann fékk við veggmyndinni hjá netverjum. Hann sagði jafnframt að veggmyndin væri alls ekki tilbúin. Aðeins tveimur vikum af fimm, sem voru áætlaðar til að klára verkið, væri lokið. Ennfremur sagði Ashmore hann hefði skort heildarsýn yfir verkið þar sem hann hafi unnið á vinnupalli sem byrgði honum sýn. „Ég nota yfirleitt skæralyftu þar sem maður getur stigið aftur og séð hlutina í heild sinni en ég gat ekki notað hana þar sem landið er of ójafnt,“ sagði Ashmore. „Þegar vinnupallurinn var tekinn niður fór ég og búmm! Þetta fór á flug. Ég sá fólk segja að þetta liti út eins og Michael Jackson eða uppvakningur. Ég er með þykkan skráp og það verður allt í lagi með mig en mér fannst þetta ekki sanngjarnt.“ Ashmore lætur gagnrýnina ekki á sig fá og ætlar ekki að flýta sér um of að klára myndina af O'Sullivan bara af því að fólk hefur gagnrýnt hana á samfélagsmiðlum. Hann vill vanda sig og skila af sér góðu verki.
Snóker Myndlist Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Valur – Keflavík | Finna Keflavíkurkonur týndu klærnar? Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Sjá meira