Heilbrigðismál

Björgunarþyrlu ætti að staðsetja á Akureyri
Ísland er eitt strjálbýlasta land í heimi þar sem kjarni bráðaþjónustu vegna slysa og sjúkdóma hefur færst að mestu á tvo staði. Annars vegar til Reykjavíkur á Landspítalann og hins vegar til Akureyrar á Sjúkrahúsið þar. Smærri staðir hafa takmarkaðri heilbrigðisþjónustu og því full þörf á að auka aðgengi á svæðinu að bráðaþjónustu sem björgunarþyrlur eru.

Fjórir sóttu um embætti HVest
Fjórir sóttu um embætti forstjóra HVest. Forstjóri sagði af sér í september. Núverandi og tímabundinn forstjóri er ekki meðal umsækjenda um starfið.

Loftslagsbreytingar valdi verri öndunarfærasjúkdómum og sýkingum
Loftslagsbreytingar eru þegar farnar að hafa umtalsverð áhrif á lífsskilyrði á Íslandi og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eru þær stærsta heilsufarsógn mannkyns. Verkefnastjóri hjá landlækni segir tímaspursmál hvenær sjúkdómsberar á borð við moskítóflugur komi til landsins.

Skerða þjónustu heilsugæslunnar vegna kvennaverkfalls
Reikna má með að starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði verulega skert þriðjudaginn 24. október næstkomandi vegna boðaðs kvennaverkfalls. Heilsugæslustöðvar verða opnar en munu eingöngu sinna bráðaerindum þennan dag.

„Nauðungarvistunin er mesta ofbeldi sem ég hef upplifað“
Elín Atim, klæðskeri og starfandi jafningi á geðdeild segir að í nauðungarvistun á bráðageðdeild hafi ekki verið í boði að vera mennsk. Hún hafi örsjaldan fengið að fara út að hreyfa sig og rödd hennar verið tekin af henni.

Vill breyta reglum þegar kemur að lyfjakaupum
Forstjóri Lyfjastofnunar vill að sett verði aldurstakmörk þegar kemur að lyfjakaupum en í dag mega börn kaupa lyf í apótekum.

Fíknivandinn – við verðum að gera meira
Það er fíknisjúkdómur þegar einstaklingur hefur ekki lengur stjórn á hvötinni til að nota vímuefni hvort heldur ólögleg vímuefni, lyfseðilsskyld lyf eða áfengi, þrátt fyrir miklar og alvarlegar afleiðingar á geðheilsu, líkamlega heilsu og félagslega stöðu.

Bein útsending: Nýtt fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
Starfshópur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun kynna skýrslu sína um nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum á fundi sem hefst klukkan 11:30.

Að ráfa um völundarhús einmanaleikans með ADHD
Ég ætla að fara með þig lesandi góður í örstutt ferðalag til að kanna flókið völundarhús ADHD og einmanaleika. Þetta er leið sem ég hef gengið í gegnum og ég þekki skuggana sem hún getur varpað á líf okkar. En mundu að skilningur lýsir upp veginn og með þekkingu, aðstoð og vandvirkni getum við fundið útganginn úr þessu völundarhúsi.

„Ég brýt á mér átta fingur af tíu“
Kona sem tók verkjalyf daglega þegar hún var barn til að geta stundað fimleika fékk magasár af verkjalyfjanotkun. Ekkert kemur í veg fyrir að börn geti sjálf keypt sér verkjalyf í apótekum.

Myndi mæla gegn bólusetningu ungra karla gegn Covid-19
Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítalanum, segist líklega myndu mæla gegn því í dag að karlar 30 ára og yngri væru bólusettir gegn Covid-19.

Leggur til 1400 prósenta hærri niðurgreiðslu vegna tæknifrjóvgunar
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, mælir síðdegis á Alþingi fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lögum um tæknifrjóvgun. Málið snýst um að auka endurgreiðslur vegna tæknifrjóvgana til muna. Til að fjármagna þann kostnað leggur Hildur til að fella niður niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á valkvæðum frjósemisaðgerðum.

Bjartari framtíð NEET-ungmenna í vanda
Enska skammstöfunin „NEET“ er notuð um 18-29 ára ungmenni sem hafa til lengri tíma verið án vinnu, starfsþjálfunar og eru ekki í námi ((NEET; Not in Education, Employment or Training).


Ráðleggja sýklalyf eftir óvarið kynlíf til að draga úr kynsjúkdómasmitum
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur ákveðið að mæla með því að samkynhneigðir og tvíkynhneigðir karlmenn og trans konur taki sýklalyfið doxycycline eftir að hafa stundað óvarið kynlíf, til að draga úr líkum á kynsjúkdómasmiti.

Að tala við börn um alvarleg lífsógnandi veikindi, sorg, dauða og missi
„Hvenær kemur pabbi eða mamma aftur heim“ er spurning sem við höfum fengið að heyra í starfi okkar með börnum sem átt hafa foreldra sem hafa verið að takast á við alvarlega lífsógnandi sjúkdóma. Áhyggjurnar og kvíðinn leyna sér ekki og þau vilja helst fá staðfestingu á að allt muni ganga vel og verða eins og áður.

Nýtt húsnæði Grensásdeildar
Framkvæmdir heildaruppbyggingar Landspítala eru í fullum gangi. Í síðustu viku voru ánægjuleg tímamót er fyrsta skóflustungan að nýrri viðbyggingu Endurhæfingardeildar Landspítala við Grensás var tekin.

Líknarmeðferð og líknarmiðstöðvar
Í hugum margra einskorðast líknarmeðferð við þá meðferð sem veitt er þegar einstaklingur er deyjandi á næstu dögum/vikum og fyllast því margir áhyggjum og kvíða þegar á líknarmeðferð er minnst. Töluverð hugarfarsbreyting hefur hins vegar átt sér stað undanfarin ár og áratugi víða um heim.

Blindaðist á öðru auga vegna streitu og kvíða
Eva Katrín Sigurðardóttir læknir og Wim hof þjálfari segist hafa verið farin að greina sjálfa sig með Parkinson eða MND þegar hún örmagnaðist á líkama og sál árið 2020. Hún var hreinlega farin að vona að hún væri með MS.

Alþjóðlegur dagur gigtar
Í dag 12. október er Alþjóðlegur dagur gigtar sem notaður er til að vekja athygli á gigtarsjúkdómum og afleiðingum þeirra á einstaklingana sem greinast með þá og einnig áhrif þeirra á fjölskyldur þeirra sem eru með sjúkdóminn.

Er einhver á þínum vinnustað að takast á við krabbamein eða afleiðingar þess?
Á hverju ári greinast að meðaltali um 924 einstaklingar á vinnualdri með krabbamein. Meinið sjálft og meðferð vegna þess getur haft mikil og víðtæk áhrif á líf hvers og eins, þar á meðal hvað varðar atvinnuþátttöku.

„Svona gerir maður ekki, mamma“
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn var í gær og af því tilefni fór dagskrárgerðarmaðurinn Garpur I. Elísabetarson og hitti móður sína, Elísabetu Jökulsdóttur rithöfund, á heimili hennar í Hveragerði.

Milljarðar frá fólkinu í landinu
Nýverið birti fjármálaráðuneytið frétt um að almenningur hefði styrkt almannaheillafélög um 6,6 milljarða króna á síðasta ári. Þetta eru afar áhugaverðar upplýsingar sem nú eru í fyrsta sinn aðgengilegar, í kjölfar lagabreytinga sem gerðar voru árið 2021.

Líknarmeðferð - ekki bara fyrir deyjandi
Líknarmeðferð er hugtak sem margir tengja við yfirvofandi lífslok einstaklinga með illkynja sjúkdóma, þegar „ekkert er lengur hægt að gera”. En staðreyndin er sú að líknarmeðferð er mun meira en meðferð við lok lífs og margt hægt að gera til að bæta líðan og efla lífsgæði.

Bleikasta partý ársins í Höfuðstöðinni
Eitt bleikasta partý ársins fór fram í Höfuðstöðinni í Elliðarárdal þar sem útgáfa Bleiku slaufunnar var fagnað. Hönnuðir slaufunnar í ár eru gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir.

Fitubjúgur fær litla athygli hér á land
Fitubjúgur er sjúkdómur, sem fær litla athygli hér á landi á sama tíma og tíðni hans er um 11 prósent í löndunum í kringum okkur en hann leggst aðallega á konur. Geitabóndi í Borgarfirði hefur þurft að fara í tvær aðgerðir á sjúkrahúsi í Svíþjóð til að láta „tappa“ af sér 23 kílóum af fitu og er á leiðinni í þriðju ferðina.

Hindranir heyrnarlausra
Ég er 57 ára heyrnarlaus kona. Fyrsta mál mitt er táknmál. Ég er notandi táknmálstúlks og þeir hafa gert lífið mitt auðveldara í samskiptum mínum við lækna, hjúkurnarfólk og aðra umönnunaraðila sem ég þarf.

Einmanaleiki eldra fólks á Íslandi minni en annars staðar í Evrópu
Eldra fólk á Íslandi finnur fyrir minni einmanaleika en annars staðar í Evrópu samkvæmt niðurstöðum úr nýrri könnun félagsvísindastofnunar. Þá benda niðurstöður til þess að innflytjendur yfir 67 ára aldri finni fyrir meiri einmanaleika en innfæddir eldri borgarar.

Þurfti að læra allt upp á nýtt
Líf Svövu Magnúsdóttur gjörbreyttist eftir slys sem hún varð fyrir í vinkonuferð á Tenerife. Hún hlaut mænuskaða og við tók löng endurhæfing á Grensás.

Frú Ragnheiður á ferðinni í 14 ár
14 ár eru liðin síðan sjálfboðaliðar Frú Ragnheiðar keyrðu af stað á fyrstu vakt verkefnisins, en nafnið Frú Ragnheiður er til heiðurs Ragnheiðar Guðmundsdóttur, sem var ein af stofnendum kvennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins.