
Heilbrigðismál

Gerðu samning til sex mánaða
Dýralæknar á landsbyggðinni hafa gert hálfs árs óbreyttan verktakasamning við landbúnaðarráðuneytið til að gefa starfshópi svigrúm til að gera gagngerar breytingar á kerfinu.

Stjórn SÍBS vill aðkomu heilbrigðisráðherra
Stjórn SÍBS hefur óskað eftir aðkomu heilbrigðisráðherra.

Skimun á leghálskrabbameini fari fram á heilsugæslu
Heilbrigðisráðherra greindi frá því í svari við fyrirspurn RÚV í gærkvöldi að Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri taka yfir brjóstaskoðun en heilsugæslustöðvarnar yfir skimun fyrir leghálskrabbameini.

Fá rítalín eða Contalgin í skiptum fyrir að taka lyfin sín
Hópur langt leiddra fíkla með alvarlega smitsjúkdóma fær að gera samning um að fá töflu af Ritalin Uno eða Contalgin í skiptum fyrir að taka veirulyfin sín. Borgarfulltrúi og sóttvarnalæknir ósammála um fyrirkomulagið.

Kallar eftir því að fólk í valdastöðum vandi málflutning um vímuefnanotendur
Elísabet Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Frú Ragnheiði – skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, gagnrýnir ummæli Baldurs Borgþórssonar varaborgarfulltrúa Miðflokksins um neyslurými.

Segja upplifun ættingja ekki lýsingu á raunverulegri atburðarás
Málið hefur vakið mikla athygli en ættingjar Ingólfs gagnrýna Hrafnistu harðlega vegna málsins og segja starfsfólk hafa hundsað alvarlegt ástand hans.

Skólayfirvöld og foreldrar þurfi að taka á matarvenjum barna
Sálfræðingurinn og þjálfarinn Ragnhildur Þórðardóttir, sem flestir þekkja sem Röggu Nagla, segir ríka ástæðu til þess að vekja athygli á offitu barna á Íslandi.

Hefur trú á að sykurskattur verði að lögum
Heilbrigðisráðherra segir sykurskatt einn besta hvata í kerfinu til að hjálpa fólki að velja hollan mat. Það ásamt heilsueflingu og geðrækt á öllum skólastigum sé góð leið til að stemma stigu við offitu.

„Fyrir þeim var bara enn eitt herbergi að losna á Hrafnistu“
Sandra Gunnarsdóttir gagnrýnir stjórnendur Hrafnistu harðlega en afi hennar dó afar þjáður í faðmi aðstandenda.

Sjúkraþjálfarar segja sig frá samningi við SÍ
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar hafa sagt sig frá samningi við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi sjúkraþjálfara.

Ákveðið að heilsugæslustöðvar á Akureyri verði tvær
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að við endurnýjun húsnæðis fyrir heilsugæsluþjónustu á Akureyri verði gert ráð fyrir tveimur starfsstöðvum heilsugæslu í bænum, fremur ein einni líkt og nú er.

Skiljum engan eftir
Ungt fólk í aldurshópnum 18-24 ára er sá hópur sem finnur mest fyrir einmanaleika á Íslandi. Ungir karlmenn eru mest einmana. Einmanaleiki hefur áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu.

Nú verður hann alltaf hluti af henni
Hjón liggja saman á sjúkrastofu eftir að hann gaf henni annað nýra sitt.

Lækna-Tómas sá læknir sem skrifar mest út af viagra
Stinningarlyfið virkar vel við hæðarveiki.

Landlæknir lítur mál þunguðu albönsku konunnar alvarlegum augum
"Við náttúrulega lítum þetta einkar alvarlegum augum,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson aðstoðarmaður Landlæknis.

Ósammála um túlkun á vottorði ófrísku konunnar
Útlendingastofnun segir að ekkert hafi komið fram í læknisvottorði, sem gefið var út á kvennadeild Landspítalans vegna albanskrar konu í gær, sem benti til þess að flutningur hennar úr landi myndi stefna öryggi hennar í hættu.

Segir Embætti landlæknis ekki sópa offitu undir teppið
Embætti landlæknis segir mikilvægt að nota aðferðir sem skaða sem minnst þegar kemur að forvörnum vegna offitu. Annað auki á jaðarsetningu enda séu fitufordómar ríkjandi á Íslandi.

Börn með offitu þurfa að bíða í allt að ár eftir þjónustu
Ríflega sjötíu börn með offitu eru á biðlista til að komast að í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þurfa að bíða í allt að ár eftir þjónstu.

Matráðar með niðurgang taki sér tveggja daga frí
Matvælastofnun hvetur fólk sem meðhöndlar mat til að halda sig heima sé það með niðurgangspest, hið minnsta tvo sólarhringa eftir að einkenni hverfa.

Fimmti hver unglingsdrengur á Vestfjörðum er of feitur
Fimmti hver unglingsdrengur á Vestfjörðum er of feitur samkvæmt nýjustu mælingum á ofþyngd íslenskra grunnskólabarna. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða segir að vestfirsk börn labbi eða hjóli sjaldnar í skólann en jafnaldrar þeirra annars staðar á landinu. Tölurnar komi honum þó á óvart og kallar hann eftir rannsóknum á offitu barna.

Öryrkjar megi ekki verða vopn í baráttu sérfræðilækna
Margir sérfræðilæknar hafa gripið til þess ráðs að tukka sjúkling um aukagjald.

Þúsundir íslenskra barna með offitu: „Þessar tölur slá mann niður“
Íslenskum börnum fjölgar hratt sem eru skilgreind með offitu. Athygli vekur hátt hlutfall of feitra meðal unglingsdrengja en tíundi hver drengur í níunda bekk er með offitu.

Undir það búinn að fara á eftirlaun en ekki fyrirvaralausa uppsögn
Magnús Ólason, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi ræðir uppsögn sína í samtali við Læknablaðið.

Íslensk börn hafa aldrei verið jafn þung
Íslensk börn hafa aldrei verið jafn þung. Offita hefur aukist verulega síðustu fimm ár og sýna nýjustu mælingar að sex prósent grunnskólabarna séu með sjúkdóminn offitu.

Mikil þörf á að rannsaka streitu og kulnun í samfélaginu
Lýðheilsufræðingur segir afar mikla þörf fyrir fræðslu um streitu og það þurfi að rannsaka hana af meiri alvöru í samfélaginu. Það að vera í of mikilli streitu í langan tíma getur valdið fjöldan allan af líkamlegum og andlegum einkennum samkvæmt samantekt slysa-og bráðalæknis.

Fólk er að veikjast úr streitu og oft nokkuð alvarlega
Það getur tekið allt að þrjú ár að jafna sig eftir kulnun eða örmögnun segir sálfræðingur sem hefur unnið í slíkum málum í rúman áratug. Hún segir kulun vera að aukast hér á landi, fólk geti veikst alvarlega af of mikilli streitu.

"Það eru ekki nógu mörg rúm fyrir allt þetta veika fólk“
Róbert Marvin Gíslason vekur athygli á brotalömum í heilbrigðiskerfinu í nýlegum pistli þar sem hann fer yfir síðustu daga aldraðrar frænku sinnar.

Með höfuðverk í 28 ár
Steingrímur Sævarr Ólafsson lenti í bílslysi árið 1991 og hefur þjáðst af höfuðverkjum síðan. Hann leyfir "samferðamanninum“ ekki að stjórna lífi sínu.

Einkenni kulnunar komu hratt en það tekur sinn tíma að ná sér
Ungur íslenskur læknir sem sem glímdi við kulnun segir að einkennin hafi komið hratt og að hann hafi verið lengur að ná sér en hann bjóst við. Kulnun og streita er algeng meðal lækna um allan heim og rannsóknir hafa sýnt að hér á landi eru margir læknar sem glíma við slík einkenni.

Aðskilja á Reykjalund og SIBS
Óháð starfsstjórn yfir Reykjalundi á að mæta kröfum starfsfólks um aðskilnað við SÍBS og ráða nýjan forstjóra samkvæmt heimildum fréttastofu. Búist er við að starfsstjórnin verði kynnt á næstu dögum. SÍBS ætlar eftir sem áður að styrkja Reykjalund en skiptir sér ekki af neinni stjórnun.