Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Samkomulag Bandaríkjanna og Danmerkur um Grænland gengur út á að halda sameiginlegum andstæðingum þeirra fjarri eyjunni. Leiðtogar þjóðanna skrifuðu undir samkomulagið í New York í dag. Erlent 22.9.2026 15:43
Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni. Erlent 22.9.2026 15:36
Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Þar er hann meðal annars talinn ætla að státa sig af afrekum sínum og leggja línurnar fyrir næsta árið. Erlent 22.9.2026 14:13
Fagnað á götum Kabúl Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar. Erlent 15. ágúst 2026 20:39
Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. Erlent 11. ágúst 2026 22:01
„Veiddu“ grænmetissala með dróna Rússneskir hermenn eltu á dögunum óbreyttan borgara með sjálfsprengidróna og reyndu að sprengja hann í loft upp. Maðurinn var að setja upp sölubás fyrir grænmeti í Kherson í suðurhluta Úkraínu þegar drónaárásin var gerð. Maðurinn lifði af en forseti Úkraínu segir þetta enn eina sönnun þess að Rússar hafi misst vitið og að rússneskir hermenn njóti þess að „veiða“ óbreytta borgara, drepa þá og misþyrma þeim. Erlent 4. ágúst 2026 16:04
Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu. Erlent 22. júlí 2026 13:07
Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum. Erlent 21. júlí 2026 15:42
Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Yfir 300 börn hafa farist eða særst í stríðinu í Súdan á síðustu sex mánuðum, flest vegna drónaárása. Þetta segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) en súdanski herinn og vígasveitirnar Rapid Support Forces (RSF) hafa barist í landinu frá því í apríl 2023. Átökin eru talin hafa kostað minnst 59 þúsund manns lífið. Erlent 6. júlí 2026 23:59
Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Fréttir 3. júlí 2026 15:57
„Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. Erlent 21. júní 2026 20:00
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Rúmlega tvö hundruð þúsund manns hafa látist af völdum hita í Evrópu á undanförnum fjórum árum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Hún telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir flest andlátanna. Erlent 11. júní 2026 11:34
Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð Mestu gljúfurkerfi íslenska landgrunnsins og kóralrif eru innan tæplega 33 þúsund ferkílómetra hafsvæðis sem Hafrannsóknastofnun leggur til að verði verndað. Verndunin er sögð geta haft einhver áhrif á botnvörpuveiðar. Innlent 11. júní 2026 10:09
Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Sameinuðu þjóðirnar hafa bætt Ísrael og Rússlandi á svartan lista vegna kynferðisofbeldis í átökum og vísa til misnotkunar af hálfu öryggissveita, þar á meðal nauðgunar á karlkyns föngum. Erlent 30. maí 2026 08:45
Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, fundaði í mars með hundruðum félagasamtaka á árlegri kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að í fyrsta skipti í 70 ára sögu þessa fundar hafi umræður og ályktun snúist um að verja þau réttindi sem þegar hafa náðst í stað þess að ræða það hvert eigi að stefna. Samtökin efna til fundar síðar í dag um bakslag í jafnréttismálum. Innlent 20. maí 2026 14:33
Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna nýs ebólufaraldursins sem geisar nú í Austur-Kongó. Mikil hætta er sögð á að faraldurinn breiðist út til nágrannaríkjanna. Erlent 18. maí 2026 08:56
Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Þegar borgin El Fasher í Súdan féll í hendur uppreisnarmanna Rapid Support Forces (RSF) frömdu þeir einhver verstu ódæði sem sést hafa frá þjóðernishreinsununum í Rúanda á árum áður. Þúsundum óbreyttra borgara var slátrað á götum borgarinnar og í nágrenni hennar. Erlent 29. mars 2026 07:30
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. Lífið 19. mars 2026 07:02
Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Farandfólk hverfur í massavís á Miðjarðarhafinu og ríkisstjórnir á svæðinu leyna upplýsingum um hvörfin og björgunarstörf. Fólk þetta er að reyna að komast frá Afríku og Mið-Austurlöndum til Evrópu en hundruð hverfa í hafið á leiðinni. Erlent 17. mars 2026 13:13
Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, mun stýra fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á fundi þeirra síðar í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem maki fer með formennsku í ráðinu. Erlent 2. mars 2026 16:44
Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Rúm fjórtán prósent evrópskra unglinga reykja svokallaðar rafrettur og er hlutfallið hvergi hærra á byggðu bóli. Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu segir það afleiðingu vísvitandi markaðsherferðar rafrettufyrirtækja sem beint sé að unglingum og ungmennum. Erlent 26. febrúar 2026 07:52
Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Bandaríkjastjórn hótar því að yfirgefa Alþjóðaorkumálastofunina ef hún fellur ekki frá tali um orkuskipti. Kolefnishlutleysi muni aldrei nást. Erlent 18. febrúar 2026 11:14
Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Að minnsta kosti sex þúsund manns voru myrt á þriggja daga tímabili þegar borgin El Fasher í Súdan féll í hendur uppreisnarmanna Rapid Support Forces (RSF) í október. Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna segir að umfang ofbeldisins og grimmdarverka í borginni hafi verið af sláandi skala. Ódæðin hafi verið gífurleg og líklega sé um að ræða stríðsglæpi og mögulega glæpi gegn mannkyninu. Erlent 15. febrúar 2026 14:16
Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Yfirvöld í Eþíópíu hafa reist leynilegar herbúðir þar sem þúsundir meðlima uppreisnarhópsins Rapid Support Forces (RSF) eru þjálfaðir fyrir átök við stjórnarherinn í Súdan. Framkvæmdirnar munu hafa verið fjármagnaðar af Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem hafa staðið þétt við bakið á RSF í átökunum blóðugu í Súdan. Erlent 11. febrúar 2026 09:21