Landspítalinn
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 59 ›
Starfsmaður Landspítala með Covid og deild lokað Starfsmaður Landspítala greindist með kórónuveiruna í gær. Hópur starfsmanna og sjúklinga var sendur í sýnatöku vegna þessa. Deild þar sem smitið kom upp hefur verið lokað. Innlent 7.3.2021 14:00
Telur ráðherra hafa misskilið svar Landspítalans um greiningu sýna Yfirmaður meinafræðideildar Landspítalans segir að heilbrigðisráðherra hafi misskilið svar spítalans um hvort að hann gæti tekið að sér greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimun. Verið sé að skoða hvað þurfi til að deildin geti tekið greininguna að sér sem færist að öðrum kosti úr landi. Innlent 4.3.2021 21:39
Svigrúm spítalans til að bregðast við náttúruhamförum takmarkað að sögn bráðalæknis Landspítalinn hefur nú gefið út þau skilaboð til almennings að hann leiti til heilsugæslu eða læknavaktar frekar en á bráðamóttöku ef kostur er vegna afar þungrar stöðu á bráðamóttökunni. Allar legudeildir spítalans eru yfirfullar. Innlent 3.3.2021 13:39
Fólki bent á að leita annað en á bráðamóttöku Landspítalinn biður fólk sem lent hefur í vægum slysum eða veikindum, eða þarfnast ekki bráðrar aðstoðar, að leita ekki á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Innlent 2.3.2021 22:37
Krefjast svara Landspítala í kjölfar ummæla yfirlæknis Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir því að Landspítalinn staðfesti vilja sinn til þess að annast greiningu leghálssýna vegna krabbameinsskimunar. Fyrirhugað er að skimunin verði flutt til Danmerkur. Innlent 2.3.2021 17:44
Ekki viss um að óvenju margar fæðingar undanfarnar vikur séu afleiðingar samkomubannsins Óvenju mörg börn hafa fæðst á fæðingarvakt Landspítalans undanfarnar tvær vikur, eða hátt í sautján á dag. Innlent 26.2.2021 20:05
Yfirlæknar á Landspítalanum vilja óháða úttekt á flutningi krabbameinsskimunar Samtök yfirlækna á Landspítala segja að yfirvöld hafi hunsað álit fjölmargra fagaðila þegar ákvörðun var tekin um að allar rannsóknir á leghálsskimunarsýnum verði fluttar frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. Innlent 26.2.2021 18:22
Sænskur kollegi upplifði jarðskjálfta í fyrsta sinn í miðri hjartaaðgerð Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir var í miðri hjartaskurðaðgerð á Landspítalanum þegar jörð tók að skjálfa á höfuðborgarsvæðinu. Upplifunin var einkar sérstök fyrir sænskan lækni sem framkvæmdi aðgerðina ásamt Tómasi en sá hafði aldrei upplifað jarðskjálfta áður. Innlent 24.2.2021 23:59
Læknirinn nú við störf hjá Landspítala Fyrrverandi læknir sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er nú við störf á Landspítalanum. Hann er ekki með starfsleyfi sem læknir. Kæra hefur verið lögð fram á hendur lækninum og lögreglurannsókn er hafin. Innlent 24.2.2021 18:37
Úr penna hjúkrunarfræðings Nú í febrúar markar ár frá því að Covid-19 veiran skall á Ísland. Faraldurinn hefur tekið sinn toll og markað sín spor á þjóðina sem og heimsbyggðina alla. Eins átakanlegt og árið hefur verið fyrir land og þjóð þá má einnig draga lærdóm af því sem á undan er gengið. Skoðun 20.2.2021 09:00
Ljósmæður fengu fyrstu köku ársins Ljósmæður og starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala tóku á móti fyrstu Köku ársins 2021. Landssamband bakarameistara efndi venju samkvæmt til árlegrar keppni um Köku ársins. Innlent 18.2.2021 13:16
Fjöldi á biðlista eftir þjónustu átröskunarteymis margfaldast Fjöldi einstaklinga á biðlista eftir þjónustu átröskunarteymis Landspítalans hefur sjöfaldast á fjórum árum. Innlent 16.2.2021 13:46
Enginn með virkt smit á Landspítalanum og gleðin allsráðandi Þeim árangri hefur verið náð í baráttunni gegn kórónuveirunni innanlands að nú liggur enginn inni á Landspítalanum með virkt COVID-19 smit. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar spítalans, segir að í hugum heilbrigðisstarfsfólksins sé þetta afar sérstakur dagur og skyldi engan undra því starfsfólk spítalans hefur borið hitann og þungann af þeirri erfiðisvinnu sem felst í því að hlúa að þeim sem verst hafa orðið fyrir barðinu á veirunni. Innlent 11.2.2021 16:21
Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð Það er fátt sem er okkur dýrmætara en heilsan um það erum við væntanlega flest sammála. Ákallið fyrir síðustu kosningar var að efla opinbera heilbrigðisþjónustu um allt land og á þessu kjörtímabili hafa verið stigin mikilvæg skref í þá átt undir forystu Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Skoðun 2.2.2021 11:32
Landspítalinn tekur mál Þórdísar til skoðunar Landspítalinn mun taka mál Þórdísar Brynjólfsdóttur, sem komst að því í gær að beiðni fyrir brjóstnámsaðgerð hennar hafði ekki verið gefin út, til skoðunar. Málið sé tekið mjög alvarlega. Þetta kemur fram í skriflegu svari Stefán Hrafns Hagalín, samskiptafulltrúa Landspítala, við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 28.1.2021 20:02
Hefur beðið eftir brjóstnámi í þrjú ár en beiðnin var aldrei gerð Kona sem beðið hefur eftir því að komast í brjóstnámsaðgerð og uppbyggingu á brjóstum í rúm þrjú ár komst að því í dag að beiðni um aðgerð hafi aldrei verið gefin út fyrir hana. Hún segir Landspítalann hafa brugðist sér í þessu máli. Innlent 27.1.2021 22:04
Sundhöllin er með skynjara sem sendir viðbragð ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni sundlaugar Sundhöll Reykjavíkur er með eftirlitskerfi í innilaug sem sendir frá sér viðvörun ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni laugarinnar. Fyrirtækið Swimeye sem selur búnaðinn segir búnaðinn bregðast fyrr við en sundlaugarverðir. Faðir manns sem lést eftir að hafa legið á botni sundlaugarinnar á fimmtudag veltir fyrir sér hvað fór úrskeiðis. Innlent 26.1.2021 13:18
Íbúinn útskrifaður af slysadeild Altjón varð þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Kaldasel snemma í morgun. Varðstjóri telur að eldurinn hafi verið búinn að malla lengi því efri hluti hússins hafi verið nánast alelda. Einn íbúi var fluttur á slysadeild með reykeitrun. Hann hefur verið útskrifaður. Innlent 25.1.2021 11:48
Um tíu einstaklingar undir fertugu bráðkvaddir á ári hverju Í kringum tíu einstaklingar undir fertugu deyja svokölluðum skyndidauða hérlendis á hverju ári. Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, segir að yfirleitt sé það breytilegt eftir aldri hvað veldur því að einstaklingar verða bráðkvaddir. Innlent 19.1.2021 20:37
Sautján andlát rakin til hópsmitsins á Landakoti Alls eru sautján andlát rakin til hópsmitsins sem kom upp á Landakoti í október í fyrra. Fjórtán þeirra sem létust vegna Covid-19 og smituðust af veirunni í hópsýkingunni létust á Landakoti. Þrír létust á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka. Innlent 19.1.2021 10:30
Jón Magnús segir upp sem yfirlæknir bráðalækninga Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, hefur sagt upp störfum. Hann segir ástæðu þess að hluta til vegna álags á bráðamóttöku, þar sem sjúklingar hafa ítrekað þurft að liggja frammi á göngunum. Innlent 17.1.2021 20:32
Páll svarar sögusögnum um bólusetningar stjórnenda á Landspítalanum Forstjóri Landspítala, framkvæmdastjórn eða aðrir stjórnendur spítalans hafa ekki verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Þetta kemur fram í pistli Páls Matthíassonar forstjóra í dag, þar sem hann svarar sögusögnum um bólusetningu stjórnendateymisins. Innlent 15.1.2021 13:59
Hvorki starfsmenn né sjúklingar smitaðir af veirunni Enginn sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans, utan þess sjúklings sem greindist í gærkvöldi, reyndist smitaður af Covid-19. Starfsmenn og sjúklingar á deildinni voru skimaðir fyrir veirunni í morgun og kom fram fyrr í dag að enginn starfsmaður hafi reynst smitaður af veirunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. Innlent 14.1.2021 17:22
Enginn starfsmannanna reyndist smitaður Enginn af starfsmönnum blóð- og krabbameinslækningadeildar, sem fóru í skimun fyrir kórónuveirunni í morgun vegna smitaðs sjúklings, reyndist smitaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. Innlent 14.1.2021 15:44
„Við álítum þetta mögulega hættu og gætum fyllstu varúðar“ Sjúklingurinn sem greindist með kórónuveiruna á Landspítalanum í gær naut áður þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Af þeim sökum hefur sjúkrahúsið á Ísafirði verið fært á hættustig sem þýðir að þjónustan á sjúkrahúsinu verður í lágmarki þar til frekara ljósi verður varpað á stöðuna fyrir vestan. Innlent 14.1.2021 11:11
Segir smitin ekki dæmi um vanrækslu heldur árvekni starfsfólks Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og formaður farsóttarnefndar, segir að það taki um sólarhring að átta sig nákvæmlega á stöðunni eftir að smit greindist á blóð- og krabbameinsdeild í gærkvöldi. Hann segir stöðuna býsna góða. Innlent 14.1.2021 10:39
Sjúkrahúsið á Ísafirði komið á hættustig vegna Covid-19 smits Sjúkrahúsið á Ísafirði er komið á hættustig eftir að sjúklingur sem nú liggur á Landspítala greindist með Covid-19 í gær. Sá hefur á síðustu dögum notið þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu á Ísafirði eru í sóttkví og þrír til viðbótar í úrvinnslusóttkví. Innlent 14.1.2021 10:16
Enginn grunur um smit í sjúklingum eða starfsfólki Enginn grunur leikur á smiti í sjúklingum eða starfsfólki blóð- og krabbameinsdeildar Landspítalans þótt sjúklingur á deildinni hafi greinst með kórónuveiruna í gærkvöldi. Innlent 14.1.2021 08:32
Greindist smitaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) greindist í kvöld smitaður af Covid-19. Innlagnir á deildina hafa því verið stöðvaðar og fara um þrjátíu sjúklingar og þrjátíu starfsmenn í skimun í fyrramálið. Innlent 13.1.2021 23:38
Reyndist vera með gamalt kórónuveirusmit Betur fór en á horfðist þegar sjúklingur á hjartadeild Landspítalans greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í gær. Aðrir sjúklingar á deildinni og starfsmenn hennar reyndust allir neikvæðir. Innlent 13.1.2021 19:21