Landspítalinn
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 59 ›
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar milli daga 38 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Innlent 24.1.2022 09:53
Fimm „vel hæfir“ umsækjendur verið teknir í viðtöl í ráðuneytinu Fimm umsækjendur um stöðu forstjóra Landspítala, sem taldir eru „vel hæfir“ af hæfnisnefnd, hafa verið teknir í viðtöl í heilbrigðisráðuneytinu. Ekki er útilokað að fleiri viðtöl verði tekin svo ráðningarferlinu er ekki lokið. Innlent 24.1.2022 07:25
Enginn hefur þurft á gjörgæslu eftir örvunarskammt Enginn sem þegið hefur örvunarskammt bóluefnis við Covid-19 hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu vegna sjúkdómsins. Þá eru líkur á innlögn 85 ára einstaklings, sem hefur þegið örvunarskammt, þær sömu og 57 ára óbólusetts einstaklings. Þetta segir í niðurstöðum Covid-19 rannsóknarhóps Landspítala. Innlent 23.1.2022 18:09
Blasir við að stefni í afléttingar Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis. Innlent 23.1.2022 11:51
Tvö hundruð starfsmenn spítalans í einangrun 35 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim því fækkað um tvö á milli daga. Fjórir eru á gjörgæslu. Starfsmönnum spítalans í einangrun hefur fjölgað mikið um helgina. Innlent 23.1.2022 10:41
Skoða nú allar mögulegar afléttingar Heilbrigðisyfirvöld skoða nú, í samráði við sóttvarnalækni, allar mögulegar afléttingar með hliðsjón af skynsemi og öryggi. Innlent 23.1.2022 07:00
Hvert er verkefnið – leiðin út Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19. Skoðun 23.1.2022 07:00
Fjölgar um tvo á spítalanum 37 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim því fjölgað um tvö á milli daga. Starfsmönnum spítalans í einangrun fjölgar nokkuð á milli daga. Innlent 22.1.2022 10:47
35 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 35 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim því fjölgað um þrjá milli daga. Innlent 21.1.2022 09:33
Rugl að sýnatökur kosti 80 til 120 milljónir á dag Kostnaður heilsugæslunnar við PCR-próf er miklu lægri en gert var ráð fyrir í byrjun faraldursins. Tæpur milljarður hefur farið í sýnatökur á höfuðborgarsvæðinu og á landamærunum. Innlent 20.1.2022 23:00
„Hvað voru skipuleggjendur að hugsa?“ Tómas Guðbjartsson læknir segir alls ekki skynsamlegt að afnema sóttvarnir með hraði. Hann skýtur á ráðherra og segir að sjá megi leifturhraða útbreiðslu nýs afbrigðis kórónuveirunnar á Evrópumótinu í handbolta. Innlent 20.1.2022 20:06
Færri þurfa að leggjast inn vegna veirunnar Þeim hefur fækkað verulega síðustu daga sem hafa þurft að leggjast inn á Landspítalann vegna kórónuveirunnar. Þá eru veikindi þeirra sem þurft hafa að leggjast inn minni en áður. Innlent 20.1.2022 18:00
Þrjátíu starfsmenn Lækningar tímabundið til Landspítala Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við Lækningu í Lágmúla um að styrkja tímabundið mönnun á Landspítala vegna Covid-19. Samningurinn kveður á um allt að þrjátíu manna liðsauka. Innlent 20.1.2022 14:01
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fækkar um einn milli daga 32 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19 og fækkar um einn milli daga. Líkt og í gær eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Innlent 20.1.2022 09:58
Mikilvæg nýsköpun í tækni á Landspítala Stafræn tækni hefur breytt hefðbundinni atvinnustarfsemi um heim allan og þjóðarsjúkrahúsið Landspítali hefur tekið þátt í þeirri þróun af miklum krafti. Stafrænt umhverfi Landspítala er flókið og umfangsmikið á íslenskan mælikvarða og fjölbreytt nýsköpunarverkefni hafa sprottið upp á undanförnum árum. Skoðun 19.1.2022 13:00
Enn fækkar inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 33 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Innlent 19.1.2022 09:57
Algjörlega óraunhæft að komast niður í 500 smit Tveir læknar Landspítalans eru sammála um að það sé heldur óraunhæft markmið að ná daglegum fjölda smitaðra niður í 500 manns eins og sóttvarnalæknir sagði að markmiðið væri á fundi velferðarnefndar Alþingis síðasta þriðjudag. Innlent 18.1.2022 20:31
Vatnaskil orðið í faraldrinum og því tímabært að endurskoða viðbrögð og takmarkanir Landspítalinn telur tímabært að fara að endurskoða viðbragð sitt í heimsfaraldrinum með tilliti til vægari veikinda. Vatnaskil hafi orðið og því komi til greina að fækka fjölda starfsmanna á hvern covid-sjúkling. Þá sé ástæða til að íhuga að létta á sóttvarnaaðgerðum. Innlent 18.1.2022 18:47
Læknar með gjörólíka sýn á faraldurinn takast á í Pallborðinu Gamlir vinir og samstarfsmenn á Landspítala mætast í Pallborðinu klukkan 14:30 í beinni hér á Vísi og Stöð 2 Vísi í dag til að ræða heimsfaraldurinn og leiðir út úr honum. Fylgst er með gangi mála í textalýsingu í vaktinni hér að neðan. Innlent 18.1.2022 12:09
Inniliggjandi með Covid-19 fækkar á milli daga Þeim sem liggja inn á Landspítala með Covid-19 fækkaði um sex á milli daga, þar af fækkaði inniliggjandi með Covid-19 á gjörgæslu um þrjá. Innlent 18.1.2022 10:44
Málefni sjúklinga með endómetríósu tekin til tímabærrar skoðunar Heilbrigðisráðherra hefur svarað fyrirspurn minni á Alþingi um meðhöndlun endómetríósu (legslímuflakks). Líkt og ég hef áður fjallað um á þessum vettvangi, getur sjúkdómurinn valdið sárum verkjum og ófrjósemi, en talið er að hann hrjái allt að 10% kvenna og að meðalgreiningartími hans sé allt að 7-9 ár. Skoðun 18.1.2022 07:01
Um þriðjungur Covid-smitaðra á Landspítala ekki inni vegna Covid Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala í einangrun með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Nýtt spálíkan er væntanlegt frá spítalanum sem gæti orðið til þess að sóttvarnalæknir endurskoði samkomutakmarkanir. Innlent 17.1.2022 19:31
Tæplega 3500 börn á aldrinum 5-11 ára greinst en ekkert lagst inn Hér á landi hafa 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022, þar af eru 3.449 börn á aldrinum 5–11 ára. Innlent 17.1.2022 15:35
Getur enn ekki sagt til um hversu alvarlegt ómíkron sé Allt bendir til að ómíkron-afbrigði veirunnar sé talsvert vægara en menn hafa reiknað með. Gjörgæsluinnlögnum fækkar dag frá degi á meðan fjöldi smitaðra stendur í stað. Sóttvarnalæknir vill þó enn stíga varlega til jarðar og segist ekki hafa nægar upplýsingar frá Landspítalanum um alvarleika veikinda. Innlent 17.1.2022 13:12
Ráðherra skipi sjö manna stjórn yfir Landspítalanum Heilbrigðisráðherra mun skipa sjö manna stjórn yfir Landspítalanum til tveggja ára í senn en í henni þurfa meðal annars að vera tveir stjórnarmenn með sérþekkingu á rekstri og áætlanagerð. Innherji 17.1.2022 10:08
45 sjúklingar nú inniliggjandi með Covid-19 45 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Sjö eru nú á gjörgæslu og eru tveir þeirra í öndunarvél. Innlent 17.1.2022 09:49
Fleiri teknir inn í hjúkrun í Háskóla Íslands Allir þeir sem náðu tilskilinni einkunn í samkeppnisprófum í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands komast inn í námið. Til stóð að hleypa 122 nemendum í gegn en þeir verða 127. Innlent 17.1.2022 06:35
Ráðherrar verði að gæta orða sinna í miðjum heimsfaraldri Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir hjá Landspítala, finnst utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa talað óvarlega og af undarlegum hætti um faraldurinn og sóttvarnatakmarkanir undanfarið. Landspítali hefur starfað á neyðarstigi í tæpar fjórar vikur og segir Tómas ástandið á skurðdeildunum skelfilegt. Innlent 16.1.2022 21:12
Róm brennur en ráðherra spyr spurninga Nú hefur Landspítali verið á neyðarstigi frá 28. desember síðastliðinn, en róðurinn var sömuleiðis afar þungur allan mánuðinn á undan. Víða er erfitt að halda starfsemi gangandi innan veggja spítalans vegna uppsafnaðs álags á starfsfólk og vaxandi fjarveru þess sem rekja má til smita í samfélaginu. Skoðun 16.1.2022 19:31
Mjög þungur dagur á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Mikið álag hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans í dag vegna hálkuslysa. Yfirlæknir segir höfuðhögg og beinbrot vera algengustu meiðslin í kjölfar slysanna. Innlent 16.1.2022 15:55