Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum. Innlent 18.10.2026 19:43
Flúði táragas lögreglu í Nice Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. Innlent 18.10.2026 12:02
Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt. Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum. Erlent 18.10.2026 07:52
Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Töluvert magn af matvælum fór til spillis þegar tölvuárás slökkti á kælum stórra franskra matvöruverslanakeðja í dag. Franskar og evrópskar netöryggissveitir rannsaka árásina sem beindist að dönskum kælum. Erlent 12. október 2026 15:15
Elma seld til útlanda Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi. Bíó og sjónvarp 9. október 2026 10:55
Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Um 25 þúsund menntaskólanemendur komu saman á Place de la Bastille og héldu áfram mótmælunum sínum í þágu betra menntakerfis. Þúsundir hafa verið handteknir, flestir undir átján ára aldri. Erlent 9. október 2026 07:39
Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Henry Kagan og Kenso Soai skipta með sér Nóbelsverðlaununum í efnafræði fyrir uppgötvun ólínulegra áhrifa og sjálfhvötunar í ósamhverfri lífrænni efnasmíð. Erlent 7. október 2026 10:02
Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Íslensk hönnun var í hávegum höfð í sjóðheitu teiti í París á dögunum í tilefni af tískuvikunni þar. Þrír íslenskir listamenn komu þar saman að sýningunni „Reykjavík“ sem haldin var í Le Marais-hverfinu, sem er þekkt fyrir tísku, sjarma og töffara. Tíska og hönnun 6. október 2026 14:26
Missti hönd í mótmælunum Fimmtán ára drengur missti höndina þegar hann mótmælti fyrir utan framhaldsskóla í Frakklandi. Enn halda mótmælin áfram og fer umfang viðbragða lögreglu vaxandi. Erlent 6. október 2026 06:52
Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hundruðum menntaskóla víðs vegar í Frakklandi verður lokað á mánudag vegna mótmæla menntaskólanema sem snúist hafa í óeirðir. Að minnsta kosti fimm þúsund hafa verið handteknir, flestir unglingar. Erlent 4. október 2026 13:26
Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Þegar ég var tólf ára byrjaði ég að segja fólki að ég væri fyrirsæta þó að það væri ekkert til í því þá. Ég vissi bara að þetta væri það sem ég vildi gera,“ segir Alísa Helga Svansdóttir sem er í dag ein vinsælasta fyrirsæta sem Ísland hefur alið af sér. Lífið 3. október 2026 07:02
G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum. Viðskipti erlent 2. október 2026 15:14
Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Aniella Lóa, dóttir Ásdísar Ólafsdóttur listfræðings, varð fyrir táragasi þegar hún sótti stúdentamótmæli í Frakklandi. Töluverð harka er komin í mótmæli menntaskólanema sem krefjast bætinga á skólaumhverfinu. Erlent 2. október 2026 12:24
Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka. Erlent 2. október 2026 06:45
Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag. Erlent 30. september 2026 09:11
Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Hundruð þúsunda lögðu leið sína í miðborg Parísar til að berja páfann augum. Hann ók í gegnum fjöldann og messaði utandyra. Erlent 26. september 2026 16:25
Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Ibrahima Konaté hefur dregið sig úr franska landsliðshópnum vegna meiðsla í hægra hné, en allt bendir til þess að meiðslin séu ekki alvarleg. Fótbolti 24. september 2026 23:31
Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Kylian Mbappe, fyrirliði franska landsliðsins, var ekki með á æfingu hjá franska landsliðinu í dag. Hann var veikur og varð eftir þar sem liðið gistir meðan á æfingum stendur. Fótbolti 22. september 2026 23:01
Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins. Erlent 20. september 2026 15:16
Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Finnar hafa gengið til liðs við Frakka í verkefni sem varðar fælingarmátt kjarnorkuvopna. Þeir eru tíunda ríkið sem tekur þátt en Svíar og Norðmenn hafa þegar gengið í hópinn. Erlent 14. september 2026 21:42
Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Finnar ætla að hefjast samstarf um öryggis- og varnarmál við yfirvöld í Frakklandi. Samningur þessi mun fela í sér að Finnland mun heyra undir kjarnorkuvopnavernd Frakklands og Finnar munu eiga í auknu varnarsamstarfi við Frakka og aðrar þjóðir sem að samstarfinu koma. Erlent 14. september 2026 10:01
Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Minnst 44 hafa slasast og þar af einn alvarlega eftir að farþegalest fór út af sporinu í norðurhluta Frakklands í kvöld. Þetta segja yfirvöld á svæðinu en átján ára gömul kona er í lífshættu og var flutt með þyrlu á sjúkrahús. Erlent 11. september 2026 22:47
Frakkar vilja Infantino burt Franska knattspyrnusambandið kallar eftir allsherjar breytingum hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, í yfirlýsingu sem birt var í dag. Lykill að því sé að fjarlægja Gianni Infantino af forsetastóli. Fótbolti 10. september 2026 18:02
Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Hart er nú sótt að Jordan Bardella, forseta Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, vegna samkomulags sem hann gerði við Nigel Farage, leiðtoga Umbótaflokksins í Bretlandi nýlega. Samkomulagið er sagt ganga í berhögg við stefnu Þjóðfylkingarinnar. Erlent 9. september 2026 11:34