Nóbelsverðlaun
1 2 3 4 5 6 … 11 ›
Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins. Erlent 9.10.2026 15:13
Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Norska Nóbelsnefndin ákvað að Navanethem „Navi” Pillay skildi hljóta friðarverðlaun Nóbels. Hún er menntaður lögmaður og er í dag dómari við Alþjóðadómstólinn í máli Mjanmar. Erlent 9.10.2026 09:02
Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Norska Nóbelsnefndin mun tilkynna innan skamms hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels. Erlent 9.10.2026 08:30
Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Líkurnar á því að Júlía Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans Alexei Navalní, hljóti friðarverðlaun Nóbels ruku skyndilega upp á vinsælli veðmálasíðu í nótt. Það sama gerðist fyrir ári kvöldið áður en tilkynnt var að leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela hlyti verðlaunin. Erlent 9.10.2026 07:36
Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi. Lífið 8.10.2026 20:01
Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum í morgun. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022 og hefur síðan þá búið hluta ársins hérlendis á heimili sínu á Ægisíðu. Carson sagði að það væri henni ráðgáta hvers vegna verðlaunin hefðu fallið henni í skaut. Lífið 8.10.2026 13:54
Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum. Menning 8.10.2026 11:02
Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Menning 8.10.2026 10:30
Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Henry Kagan og Kenso Soai skipta með sér Nóbelsverðlaununum í efnafræði fyrir uppgötvun ólínulegra áhrifa og sjálfhvötunar í ósamhverfri lífrænni efnasmíð. Erlent 7.10.2026 10:02
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði. Erlent 7.10.2026 09:15
Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Belginn Francis Halzen hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag fyrir framlag sitt til rannsókna á svonefndum háorkufiseindum með uppruna í fjarlægum vetrarbrautum. Hann átti frumkvæði að því að nota ís á suðurpólnum til þess að greina fiseindirnar. Erlent 6.10.2026 09:58
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði. Erlent 6.10.2026 09:15
Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Sænska vísindaakademían hefur veitt þeim Karl Deisseroth, Peter Hegemann og Georg Nagel Nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði í ár. Þeir hljóta verðlaunin fyrir uppgötvanir sínar á ljósstýrðum jónagöngum og ljósörvun. Erlent 5.10.2026 09:39
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 5.10.2026 09:02
Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Rússneskur dómstóll lýsti starfsemi elstu mannréttindasamtaka landsins ólöglega í dag. Úrskurðurinn er liður í gengdarlausri herferð stjórnvalda í Kreml gegn hvers kyns andófi í landinu. Erlent 9.4.2026 14:54
Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 5.2.2026 22:43
Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. Erlent 2.2.2026 13:03
Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Bandaríkjaforseti segist ekki lengur telja sig skyldugan til að hugsa aðeins um frið í heiminum eftir að hann hlaut ekki friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Þetta skrifar hann í bréfi til forsætisráðherra Noregs þar sem hann ítrekar hótanir vegna Grænlands. Erlent 19.1.2026 08:54
Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Nóbelsnefnd friðarverðlaunanna hefur gefið út yfirlýsingu vegna framsals Maríu Corinu Machado verðlaunahafa á medalíu sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Yfirlýsingin er stutt og afdráttarlaus og segir nefndin að verðlaunin séu verðlaunahafans eins, burtséð frá því hvar peningurinn sé niðurkominn. Erlent 18.1.2026 12:37
Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Donald Trump Bandaríkjaforseti tók við Nóbels-verðlaunapening Maríu Corinu Machado, stjórnarandstöðuleiðtoga Venesúela, sem hún afhenti forsetanum í Hvíta húsinu í gær og hyggst eiga hann. Erlent 16.1.2026 06:37
Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels María Corina Machado, einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa afhent Donald Trump Bandaríkjaforseta friðarverðlaun Nóbels. Þetta hafi hún gert „til að viðurkenna einstaka skuldbindingu hans við frelsi okkar.“ Erlent 16.1.2026 00:06
Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Donald Trump Bandaríkjaforseti mun taka á móti venesúelska stjórnarandstöðuleiðtoganum Maríu Corinu Machado í Hvíta húsinu á fimmtudaginn. Erlent 13.1.2026 07:19
Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela. Þá segir Trump að það yrði mikill heiður fyrir hann ef hún ákvæði að afhenda honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún vann í fyrra. Erlent 9.1.2026 15:13
Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist ætla að snúa aftur til landsins eins fljótt og henni er auðið. Hún segist einnig vilja afhenda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Trump hefur sagt að hún njóti ekki nægilegrar virðingar til að stýra Venesúela eftir að hann lét nema Nicolás Maduro, forseta, á brott á dögunum. Erlent 6.1.2026 11:21
Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló María Corina Machado, handhafi friðarverðlauna Nóbels, birtist á svölum Nóbels-svítunnar á Grand Hotel í Osló í nótt, aðeins klukkustundum eftir að dóttir hennar tók á móti verðlaununum fyrir hennar hönd. Erlent 11.12.2025 07:01
Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Afhending Nóbelsverðlaunanna 2025 fer fram við hátíðlega athöfn í dag, 10. desember á dánardegi Alfreds Nobels sem verðlaunin eru kennd við. Maria Corina Machado, handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár, verður hins vegar ekki viðstödd athöfnina til að veita verðlaununum viðtöku. Machado, sem er stjórnarandstæðingur frá Venesúela, hefur sætt líflátshótunum af hálfu valdhafa í heimalandinu og hafði ekki færi á að ferðast til Osló í tæka tíð. Erlent 10.12.2025 10:23
Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Nóbelsstofnunin þurfti að aflýsa blaðamannafundi með skömmum fyrirvara þar sem verðlaunahafi friðarverðlauna Nóbelsverðlauna er í felum. Ekki liggur fyrir hvort hún mæti á verðlaunaafhendinguna sjálfa á morgun. Erlent 9.12.2025 18:29
Segja friðarverðlaunahafann á flótta undan „réttvísinni“ sæki hann verðlaunin Stjórnvöld í Venesúela segja að María Corina Machado, friðarverðlaunahafi Nóbels í ár, verði skilgreind sem á flótta undan réttvísinni, ferðist hún til Noregs til að taka við verðlaununum. Þau saka hana um hryðjuverkstarfsemi og hatursáróður. Erlent 21.11.2025 10:02
Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Meirihluti Nóbelsnefndarinnar árið 1955 mælti með sem fyrsta valkosti að bókmenntaverðlaununum yrði deilt milli íslensku rithöfundanna Gunnars Gunnarssonar og Halldórs Laxness. Í lokaatkvæðagreiðslu innan akademíunnar varð niðurstaðan hins vegar sú að Halldór skyldi einn fá verðlaunin. Menning 14.11.2025 15:04
Vill að Þórunn tilnefni Trump til friðarverðlauna Nóbels Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins viðraði þá hugmynd á Alþingi í dag að Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis beiti sér fyrir því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hlyti friðarverðlaun Nóbels á næsta ári. Innlent 15.10.2025 16:59