Erlent

Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í efna­fræði?

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fundurinn hefst klukkan 9:45.
Fundurinn hefst klukkan 9:45. Getty

Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði.

Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlaunin. Blaðamannafundurinn fer fram í Stokkhólmi og hefst klukkan 9:45 að íslenskum tíma.

Susumu Kitagawa, Richard Robson og Omar M. Yaghi hlutu Nóbelsverðlaunin í efnafræði árið 2025 fyrir þróun málmlífrænna grinda. Svokallaðar málmlífrænar grindur eru vænlegur flokkur efna í misleitum hvötunarferlum vegna einstakra eiginleika þeirra. Hægt er að hanna slíkar grindur til að binda koltvíoxíð sem gæti reynst mikilvægt í baráttunni við loftslagsvána.

Tilkynnt um handhafa Nóbelsverðlaunanna 2026

Mánudagur 5. október: Lífeðlis- og læknisfræði

Þriðjudagur 6. október: Eðlisfræði

Miðvikudagur 7. október: Efnafræði

Fimmtudagur 8. október: Bókmenntir

Föstudagur 9. október: Friðarverðlaun Nóbels

Mánudagur 12. október: Hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×