
Hús og heimili

Amaryllis
Amaryllis er glæsilegt stofublóm sem oft verður áberandi í kringum jólin. Amaryllis er laukur, oft kallaður riddarastjarna og er fáanlegur í rauðum lit, hvítum og tvílitur.

Demetra var gyðja uppskeru
Demetra nefnist ný verslun með kristal og handunnar glervörur á Skólavörðustíg 21a. Þar er Björg Blöndal hæstráðandi og það er líka hún sem á heiðurinn af mörgum munum sem til sölu eru. Björg er nefnilega glerkúnstner, nam handbragðið hjá Gler í gegn í Hafnarfirði.

Íslenskt te úr arabískum katli
Auður Ólafsdóttir, rithöfundur og listfræðingur, kann vel við sig í eldhúsinu sínu, einkum á þessum árstíma þar sem Landakotskirkju ber við rökkurhimininn í öllu sínu veldi í gegnum gluggann. Það er einkum tvennt í eldhúsinu sem hún telur sérstök þarfaþing: "

Vaskar upp í víðóma
Mér finnst langskemmtilegast að vaska upp," viðurkennir Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður með meiru, og hlær skemmtilega við þegar hann er spurður af hverju svo er. "Ég verð einfaldlega svo afskaplega stoltur af sjálfum mér þegar ég er búinn með verkið."

Birna Anna býður í heimsókn
Uppáhaldsstaðurinn í húsinu er lítið skot við hornglugga í eldhúsinu. Ég skrifaði bókina mína þarna og því má segja að þetta horn sé vinnustaðurinn minn en svo finnst mér líka bara gott að vera þarna, lesa og dunda mér í tölvunni. Þar af leiðandi eyði ég talsvert miklum tíma þarna á hverjum degi." Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir DV á fimmtudögum.

Skúlptúrar og málverk
Blómaverslunin Holtablóm skipti um eigendur fyrir ári og nýi eigandinn, Inga María Sverrisdóttir listakona, hefur í rólegheitum unnið að breytingum í rekstrinum. Verslunin verður þó áfram með blóm og gjafavörur á boðstólum en Inga María,

Dreki, Jaki og Bessi
Erla Sólveig Óskarsdóttir er ein af okkar fremstu húsgagnahönnuðum. Hún hefur selt hönnun sína víða um heim. Erla Sólveig hefur fengist við ýmsa ólíka hönnun en eflaust eru stólarnir hennar hvað þekktastir enda hafa þeir hvarvetna vakið verðskuldaða athygli og selst mjög vel.

Ást við fyrstu sýn hjá Jóa Fel
Jói Fel og kona hans Unnur Helga Gunnarsdóttir voru á tímamótum þegar Unnur gekk inn í nýopnað bakaríið hans. Nokkrum vikum síðar voru þau orðin par. Nú eiga þau samtals fjögur börn og njóta þess að lifa.

Sækir hitann í heimilistækin yfir
"Það er einhver sjarmi við ákveðið horn í húsinu mínu. Þetta er í eldhúsinu þar sem eldavélin, uppþvottavélin og kaffivélin mætast í níutíu gráðu horni. Þetta er hornið sem ég halla mér upp að og sæki hitann úr eldavélinni og uppþvottavélinni sem yljar bakhlutanum á mér meðan ég teygi mig í kaffisopann,"

Kósí stemming í huggulegu húsnæði
"Markmið mitt með þessari verslun er að höfða til kvenna sem gera handavinnu og vilja hafa fallegt og huggulegt í kringum sig. Það eru lygilega margir fyrir það að fara úr vinnufötunum þegar heim er komið, skella sér í náttföt, setja fætur upp í sófa og hafa það virkilega kósí,"

Inga Lind býður í heimsókn
"Ég á marga uppáhaldsstaði hér á heimilinu en ætli ég eyði ekki mestum tíma í eldhúsinu," segir Inga Lind Karlsdóttir umsjónamaður morgunþáttarins Íslands í bítið. Inga Lind býr í stóru fallegu húsi á fjórum pöllum á Arnarnesinu ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum. Tímaritið <strong>Magasín </strong>fylgir DV á fimmtudögum.

Stafar krafti á heimilið
Málverkið fyrir ofan flygilinn hjá Gunnari Gunnarssyni

Andarunginn í Lækjargötu
Nýr veislusalur á Litla ljóta andarunganum bætir ásýnd miðbæjarins og gæðir borgina meira lífi.

Óvenjulegar klukkur og fleira fínt
Verslun með listmuni í Listasafni Íslands er sneisafull af spennandi munum. bæði innlendum og frá frægum söfnum í New York.

Síbleikt jólatré
Litskrúðug jólatré hafa haldið innreið sína á heimili landsmanna

Sígildur kollur með gæru
Var til á nánast hverju heimili á áttunda áratugnum og er nú kominn í tísku aftur.

Smækkuð mynd af samfélagi
Nútíma íslenskur arkitektúr hefur að miklu leyti fengið að brjótast út í öllum þeim skólabyggingum sem hafa risið síðustu árin víðsvegar um landið og er áhugavert að skoða hugmyndirnar á bakvið þær. </font /></b />

Mannréttindi að eiga uppþvottavél
Aðalbjörg Guðgeirsdóttir fékk sér skúffur sem eru uppþvottavélar og kom þeim fyrir sitthvoru megin við vaskinn. </font /></b />

Friður og ró við arineld
Margir eiga eflaust eftir að orna sér við elda frá örnum og kamínum í vetur, njóta þess að hlusta á snarkið og horfa í glæðurnar. </font /></b />

Elegans og hátíðleiki
Þjóðmenningarhúsið er flottasta húsið í bænum að mati Lísbetar Sveinsdóttur listakonu. </font /></b />

Jólahreingerningin framundan
Léttum okkur störfin með því að hafa pappír ofan á efri skápunum. </font /></b />

Graffití í nýja herbergið
Rósa Stefánsdóttir og Ragnar Hilmarsson, ásamt börnum sínum Alex og Birtu, eru nýflutt í íbúð í Laugarneshverfinu. Alex litli hefur yndi af hjólabrettum og veggjakroti, eða graffítí, og ákvað því að hafa herbergið sitt á nýja staðnum örlítið öðruvísi. </font /></b />

Sængin varin og rúmið skreytt
Rúmteppið gefur stemminguna í svefnherbergið

Hreinar rúður spegla ljósadýrðina
Volgt vatn, uppþvottalögur og skafa eru ómissandi við gluggaþvott.

Þar sem kisulóran kúrir
Gluggakistan getur verið mikil húsprýði ef valið er vandað.

Leiðist eldhúsið
Erla Ragnarsdóttir kennari og söngkona í Dúkkulísunum segist vilja vera þar sem hún hafi góða yfirsýn yfir hlutina á heimilinu og tekur fram að eldhúsið sé ekki í uppáhaldi </font /></b />

Nýtt heimili í Drápuhlíð
Valdimar Gunnar Hjartarson og Stella Vestmann falla alveg í skilgreininguna "fátækir námsmenn", eru tuttugu og tveggja ára og bæði í Háskólanum, hún í stjórnmálafræði og hann í lögfræði.

Veldu rétta litinn
Þegar daglegu amstri er lokið er fátt betra en að leggjast upp í rúm í svefnherbergi og slaka á. Til að geta slakað almennilega á verður svefnherbergið að vera róandi og þægilegt.

Úrvalið alltaf að aukast
Margt er í boði fyrir þá sem ætla að fá sér steinefni á eldhúsborðin. Auk hefðbundinna steinefna eins og graníts og marmara fæst nú akrýlblandaður steinn sem forma má á alla vegu.

Vandi að velja blönundartæki
Fallegur krani vekur eftirtekt.