Birtist í Fréttablaðinu

Stjórnendurnir áttu næsthæsta tilboðið
Tvö af þeim þremur félögum sem skiluðu inn tilboði í 18 prósenta hlut ríkisins í Klakka tengjast stjórnendum Klakka. Annað félagið vildi ekki að upplýst yrði um þátttöku þess í söluferlinu. Lindarhvoli ber að afhenda gögn um söluferlið samkvæmt nýjum úrskurði.

Segir fátt um mál Sigur Rósar
Gunnar Þór Ásgeirsson endurskoðandi segist hafa veitt aðstoð við reiknings- og framtalsskil hljómsveitarmeðlima á Íslandi.

Foreldrar langveikra barna lögðu Sjóvá
Í desember 2014 var því hafnað að tryggja Xavier Tindra Magnússon vegna sjúkdóms sem hann var með. Hálfu ári síðar var foreldrum hans boðið að kaupa sömu tryggingu. Faðir drengsins taldi af símtali við sölumann að tryggingin tryggði allt. Sjóvá segir að tryggingin hafi ekki átt að ná yfir fyrirliggjandi sjúkdóma

Íslendingar eru ekki lengur hamingjusamasta þjóð í heimi
Íslendingar eru í fjórða sæti yfir hamingjusömustu þjóðir í heimi. Finnar eru í efsta sæti. Ungu fólki á Norðurlöndum líður ekki eins vel og áður. Fjárhagserfiðleikar og einmanaleiki spá best fyrir um óhamingju.

Fjármálaáætlun lögð fram seinna en áætlað var vegna páska
Á fundi Steingríms J. Sigfússonar þingforseta með þingflokksformönnum í gær var þeim tilkynnt að forseta hefði borist tilkynning frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um að hann myndi leggja fjármálaáætlun fyrir þingið þann 5. apríl næstkomandi.

Fær bætur þrátt fyrir prófleysi
Ökumaður, sem misst hafði ökuréttindi og síðan ekið aftan á aðra bifreið á Reykjanesbraut í janúar 2015, á rétt á bótum þrátt fyrir prófleysið.

Ber að afhenda samræmd próf
Menntamálastofnun er skylt að veita Páli Hilmarssyni afrit af samræmdum prófum sem sonur hans þreytti síðastliðið haust.

Lög brotin á fylgdarlausum börnum
Börn sem koma hingað í hælisleit njóta ekki þeirra réttinda sem nýleg lög eiga að tryggja þeim. Norðurlöndin standa sig betur en önnur Evrópuríki við móttöku barna en ekkert þeirra tryggir réttindi barna samkvæmt alþjóðlegum kröfum. UNICEF vill úrbætur.

Þriðji dómur yfir sama manni
Karlmaður fæddur árið 1996 var í Héraðsdómi Reykjavíkur í upphafi mánaðar dæmdur í 40 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun.

Saga líkamlegrar vinnu kvenna innblásturinn
Dansverkið Crescendo verður frumsýnt í Tjarnarbíói á fimmtudaginn næstkomandi. Um er að ræða glænýtt íslenskt verk sem sækir innblástur sinn í líkamlega vinnu kvenna og dansarans sjálfs.

78 milljarða samdráttur lána
1.366 milljóna króna afgangur var á rekstri Íbúðalánasjóðs í fyrra.

Næstu skref verði tekin
BSRB skorar á atvinnurekendur að taka næsta skrefið í tengslum við #metoo byltinguna og ráðast að rótum vandans. Þetta kemur fram í ályktun fundar formannaráðs BSRB sem fór fram í gær.

Bresk könnunarflugvél skoðar hafstrauma hér
Hluti af stóru fjögurra ára rannsóknarverkefni á vegum East Anglia háskólans á Bretlandi fer nú fram við Ísland. Flugvél breskrar suðurskautsstofnunar er gerð út frá Akureyri og gerir margháttaðar mælingar á mikilvægum hafstraumum.

Eftirlitsmenn kvörtuðu yfir þúsundum kosningalagabrota
Vladímír Pútín verður áfram forseti Rússlands. Þegar kjörtímabilinu lýkur mun hann hafa stýrt Rússlandi, ýmist sem forseti eða forsætisráðherra, í 24 ár. Kosningar sunnudagsins þykja ekki án annmarka.

Gagnrýna breytingar á ökunámi
Ökukennarafélag Íslands og ökukennaranemar gera talsverðar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi ökukennslu sem fram koma í drögum að nýju frumvarpi til umferðarlaga.

Ólympíufarar goð í Bandaríkjunum
Freydís Halla Einarsdóttir var fánaberi Íslands á Vetrarólympíuleikunum en hún var fyrsti þátttakandi leikanna í sögu Plymouth State háskólans sem hún er nemandi við og æfir með. Frestanir vegna veðurs trufluðu undirbúninginn en hún horfir stolt til baka á leikana.

Vogur fullur og neyslan eykst
Frá 1984 hefur sjúkrarúmum fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga fækkað um 200. Biðlistar eftir að komast að í meðferð lengjast. Nauðsynlegt að verja meira fé til málaflokksins að mati framkvæmdastjóra lækninga.

Vandræði VG hafi ekki áhrif á ríkisstjórnina
Stjórnmálafræðiprófessor segir ríkisstjórnina sigla lygnan sjó þrátt fyrir vandræði innan VG. Stjórnin þurfi ekki að reiða sig á atkvæði Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur og Andrésar Inga Jónssonar. Reynt að greiða úr málum á þingflokksfundi í dag.

Matarkarfan hækkar í verði
Meirihluti matvörunnar í verðkönnun Fréttablaðsins hjá Costco og Bónus hefur hækkað milli kannana. Viðskiptavinir kvarta á Facebook yfir verðhækkunum hjá Costco. Kílóverð á hveiti hækkað mest hjá Bónus

Skilur ef ráðamenn þurfa að sitja heima
Formaður KSÍ segir óskandi að stjórnmál og Heimsmeistarakeppnin í fótbolta sem hefst í sumar væru aðskilin. Hins vegar skilji hann það ef ráðamenn sniðganga HM. NATO-ríkin skoða mögulegar aðgerðir gegn Rússum í vikunni. Málið truflar ekki undirbúning KSÍ.

Tölvurnar eru enn ófundnar
Enn hefur hvorki sést tangur né tetur af um 600 tölvum sem stolið var í þremur innbrotum í gagnaver í Borgarbyggð og Reykjanesbæ.

Vildi fá bætur eftir flugeldaslys
Karlmaður fær ekki bætur úr ábyrgðartryggingu flugeldasala eftir að eining úr skotköku sprakk í andlit hans.

Ráðherra vill meira samráð um flutningskerfi raforku
Iðnaðarráðherra boðar aukið samráð um málefni flutningskerfis raforku með því að setja á laggirnar hagsmunaráð sem á að styrkja áætlanagerð, framkvæmdir og forgangsröðun framkvæmda.

Leyfi séra Ólafs lýkur í vikunni
Frestur til að áfrýja úrskurðum úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í málunum fimm gegn Ólafi Jóhannssyni, sóknarpresti í Grensáskirkju, rennur út í dag.

Fundu verðmæt spjöld í kompu
Það getur borgað sig að flýta sér hægt við tiltekt.

Á sviði á sama tíma og stærsta númerið
Reykjavíkurdætur spiluðu á Sónar Reykjavík um helgina en þær spiluðu á sama tíma og stærsta atriði hátíðarinnar, með bresku sveitinni Underworld, fór fram í sal við hliðina og létu það ekki á sig fá.

Friða flugskýlisgrind frá hernámsárunum
Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform Minjastofnunar um að friðlýsa burðargrind og rennihurðir flugskýlis 1 sem Bretar reistu á Reykjavíkurflugvelli á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Stálgrindin jafnvel einstök á heimsvísu.

Bestu vinkonur í vísindum
Arna og Unnur hafa fylgst að síðan þær hittust í Háskóla Íslands árið 1992.

Flugvélar að æra þau Ævar og Guðrúnu
Guðrún Kristjánsdóttir og Ævar Kjartansson á Nönnugötu segja flugumferð keyra um þverbak í miðbænum. Heilbrigðiseftirlitið vitnar til Isavia um að flugumferð hafi minnkað. Umhverfisráð Reykjavíkur minnir á samkomulag um nýjan stað fyrir einka- og kennsluflug.

Leiðin til Afrin
Vinir og samferðamenn Hauks Hilmarssonar minnast vinar síns og segja frá hversdeginum í stríðinu lífinu með Kúrdum í Rojava og hugsjónum sínum.