Landsliðsmenn biðlað til Freys um að halda áfram: „Þykir ótrúlega vænt um það“ Freyr Alexandersson segir að sér þyki afar vænt um að landsliðsmenn hafi komið að máli við sig og beðið um að hann bjóði áfram fram krafta sína fyrir íslenska karlalandsliðið í fótbolta. KSÍ virðist hins vegar ætla að leita annað. 23.11.2020 16:00
Missa þjálfara fyrir frumraunina í Pepsi Max deildinni Jón Stefán Jónsson hefur ákveðið að láta af störfum sem annar þjálfara kvennaliðs Tindastóls í fótbolta sem leika mun í efstu deild, Pepsi Max-deildinni, í fyrsta sinn á næstu leiktíð. 23.11.2020 15:01
Segja Ísak kosta hátt í tvo milljarða Ensku götublöðin eru farin að geta sér til um það hvaða stórlið muni hreppa hinn 17 ára gamla Ísak Bergmann Jóhannesson sem á dögunum lék sinn fyrsta A-landsleik í fótbolta. 23.11.2020 13:01
Sagði Aubameyang að þakka fyrir að geta sofið í rúmi Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að landsliðsferli Pierre-Emerick Aubameyang sé ekki lokið þó að landsliðsþjálfari Gabons hafi gefið það í skyn. 20.11.2020 17:01
Gunnleifur þakkar fyrir sig: Montinn af ferlinum og sé ekki eftir neinu Leikjahæsti leikmaður í sögu íslenskrar deildarkeppni í fótbolta hefur ákveðið að láta gott heita og leggja skóna formlega á hilluna. 20.11.2020 16:30
Ari mögulega hættur en vill fá ungu strákana í landsliðið hægt og rólega Ari Freyr Skúlason segir það ekki ljóst hvort leikurinn við England á Wembley hafi verið hans síðasti landsleikur á ferlinum. 20.11.2020 15:30
Gíbraltar og Færeyjar ofar en Ísland á forgangslistanum Lægra skrifuð landslið en Ísland eiga greiðari leið í umspilið fyrir HM í Katar vegna breyttra reglna UEFA. 20.11.2020 11:01
Grýtt leið Íslands að HM í Katar Nýr landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta karla á fyrir höndum erfiða undankeppni fyrir HM í Katar sem hefst á 2-3 útileikjum í mars. 20.11.2020 09:31
Hafið yfir allan vafa hverjir vinni: „Meira eins og Liverpool og Millwall“ „Ég held að við eigum eftir að taka þetta lið frekar létt, eins og alltaf,“ segir Sverrir Hjaltested, leikmaður Hafsins, fyrir úrslitaleikinn við Dusty í Vodafone-deildinni í tölvuleiknum CS:GO. 19.11.2020 16:30
Getur stjórn KSÍ bannað KR að taka þátt? Formaður knattspyrnudeildar KR segir að ekki sé hægt að treysta því að í stjórn KSÍ sitji ávallt svo skynsamt og gott fólk að ekki þurfi að vera mögulegt að véfengja ákvarðanir hennar. 19.11.2020 14:01